30.04.1918
Neðri deild: 13. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í C-deild Alþingistíðinda. (1867)
26. mál, úthlutun matvöru- og sykurseðla
Magnús Pjetursson:
Jeg stend ekki upp til þess að andmæla till., því jeg er á sömu skoðun og hv. flm. (Þorl. J.) um það, að ef nægilegur vöruforði er fyrir hendi, þá sje sjálfsagt að láta vöruúthlutunina ná yfir lengri tíma en 4 mánuði, sjerstaklega upp til sveita. En það var aðallega út af síðari liðnum, að jeg stóð upp, því að mínu áliti þarf betur að athuga hann heldur en hjer er gert. Og úr því að hv. flm. (Þorl. J.) gerði það ekki beinlínis að tillögu sinni, að málinu yrði frestað og vísað til bjargráðanefndar, þá vil jeg hjer með gera það að minni tillögu.
En eins og jeg tók fram áðan, var það út af 2. liðnum, að jeg tók til máls. Þar er talað um, „að láta þau hjeruð, þar sem eru slæmar hafnir eða erfiðir fjallvegir, sitja fyrir vörum til vetrarforða og flutningum á þeim að sumrinu“.
En ef sú verður raunin á í sumar, eins og reyndist í fyrra sumar, að vöruforði yrði nægur fyrir í landinu, þá sjá allir, hversu brýn þörf er á að birgja fyrst og fremst þá landshluta og þær hafnir, sem algerlega geta tepst í 6—9 mánuði, vegna íss.
Jeg hafði ekki hugsað út í að koma með brtt. nú þegar, til þess að bæta úr þessu, en jeg vona, að það gangi greiðlega að koma málinu í nefnd, og býst því við, að þar gefist tími til að athuga þetta betur, því það liggur í augum uppi, að þeim höfnum verður fyrst að sjá borgið, þar sem alt fer saman, slæmar hafnir, erfiðir fjallvegir og svo íshættan.