06.05.1918
Neðri deild: 17. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í C-deild Alþingistíðinda. (1873)

26. mál, úthlutun matvöru- og sykurseðla

Bjarni Jónsson:

Jeg ætla, að jeg hafi getið þess, þegar þessi till. var til umr. hjer fyr, að það mundi verða erfitt að binda stjórnina eða skipa henni að skamta mönnum mat yfir svo og svo langan tíma, af því að svo gæti farið, að maturinn væri ekki til. Þess vegna finst mjer góð skil gerð þessu máli með till. nefndarinnar, og því rjett að samþ. hana, eins og hv. flm. þingsál.till. (Þorl. J.) hefir að sumu leyti kannast við. En um leið og málið með þessum hætti er afgreitt til stjórnarinnar vildi jeg minna hana á Dalasýslu. Þar er, sem menn vita, svo háttað, að frost og ísalög loka þar oft fjörðunum, svo að ekki er hægt að ná mat, ef það er ekki gert áður, og á síðasta hausti komu frost svo snemma og svo óvænt, að til vandræða horfði. Þá vildi jeg nefna annan landshluta; það er Fljótsdalshjerað. Svo getur oft staðið á, að mjög ilt verði að koma við ferðum og flutningi úr fjörðunum, svo að ef auðið væri að láta það hjerað fá mat til lengri tíma, þá teldi jeg það sjálfsagt. Víðar kann að haga mjög líkt til og þar, og vænti jeg þess, að þeir hv. þm., sem hlut eiga að máli, bendi stjórninni á hvar skórinn kreppir að. Það var rjett, sem hv. þm. A.-Sk. (Þorl. J.) sagði, að þær sýslur, er hann nefndi, eru illa staddar með það að fara langar leiðir á vetrardegi til að sækja sjer forða, og þess vegna mun stjórnin að sjálfsögðu hafa eftirlit með, að til þess þurfi sem minst að taka. Þetta munu vera erfiðustu staðirnir, þó að á Norðurlandi geti ef til vill verið líkt ástatt, þótt mjer sje ekki kunnugt um það.

Jeg ætlaði ekki að gera annað en að skora á stjórnina að gæta þeirra, sem svo erfitt eiga, eins og allir þeir, sem jeg hefi nú nefnt.