14.05.1918
Neðri deild: 22. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í C-deild Alþingistíðinda. (1880)

46. mál, biðlaun handa Metúsalem Stefánssyni

Frsm. (Jón Jónsson):

Það getur verið, að till. þessi reynist óþörf, og það væri engin ástæða til að samþykkja hana ef vissa fengist fyrir því, að maðurinn mundi fá sæmilega þóknun fyrir kenslustörf á Eiðum næsta vetur. En um það er ekki vissa enn. Till. er nú svo úr garði gerð, að ef til þess kæmi, þyrfti ekki að borga út þessa upphæð. Það er ekki talað um, að hún verði borguð nema maðurinn fái enga fasta stöðu. Jeg geri ráð fyrir, að fjárveitinganefndin hafi ekkert á móti því að taka málið til athugunar aftur, þ. e. a. s. þessa hlið málsins, hvort um nokkur kenslustörf verði að ræða handa manninum í vetur. Annars sje jeg ekki, að það komi neitt till. við, og sje ekki annað en að það sje óþarft að vera að togast á um hana. Jeg skil ekki annað en að hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) sje það ljóst, að það eru aðrir hæfileikar, sem útheimtast til þess að vera búnaðarskólastjóri, heldur en til þess að vera kennari við alþýðuskóla. Til þess þarf sjerþekkingu, og hún er dýrkeypt, ef hún er meira en nafnið tómt. Fullkomið búnaðarnám verður því mun kostnaðarsamara en nám manna hefir verið, sem fengist hafa við barna- og unglingakenslu hjá okkur.

Nú er það kunnugt, að þessi maður hefir staðið sjerstaklega vel í stöðu sinni og er mjög vel að sjer í sinni grein, og þess vegna vill fjárveitinganefndin, að hann fái viðurkenningu fyrir sitt góða starf, og hjer er sannarlega ekki til mikils mælst.