21.05.1918
Neðri deild: 27. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 406 í C-deild Alþingistíðinda. (1889)

51. mál, námurekstur landssjóðs á Tjörnesi

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Það ræður að líkindum, að búist sje við því, að jeg taki til máls næst á eftir hv. frsm. fjárhagsnefndar (G. Sv.). Menn hafa að sjálfsögðu búist við, að jeg hefði athugað málið og búið mig undir að gera athugasemdir og skýringar því viðvíkjandi, að því leyti sem skýrsla hv. nefndar nær. Það er líka svo, og það gerir mjer ljettara, að jeg hefi hugsað mjer að fylgja nokkurn veginn sömu röð og hv. frsm. (G. Sv.). Það er líka eðlilegt, að þegar 2 menn hugsa um sama málið, þá hugsa þeir báðir sama þráð í skýringum á því. Hitt væri ekki eðlilegt, að þeir hjeldu sína leiðina hvor.

Umræðuefninu, sem fyrir liggur, má skifta í þrent. 1) Skýrsla fjárhagsnefndar, þgskj. 111; 2) Þingsályktunartillagan, þgskj. 112; 3) Viðbótarskýringar framsögumanns ásamt viðbót og endurtekningum fleiri hv. þm., sem vænta má að fram komi, þegar um mál er að ræða, sem fara í svipaða stefnu og hjer er á ferðinni. Skýrsla fjárhagsnefndar er nokkurskonar greinargerð með till. Það er venja, að með till. og frv. fylgi greinargerð, sem tekur fram ástæður fyrir því, sem fram er flutt. Venjulega er greinargerðin á eftir, en hjer er hún á undan, og er ekki um það að fást; það er jafnvel bara betra.

Jeg hefi þá ástæðu til að snúa mjer fyrst að skýrslunni á þgskj. 111. Ekki skal jeg fara út í það að dæma, hversu nákvæm og ábyggileg skýrslan er. Mig vantar ýmisleg gögn til þess. En það er ljóst, af þeim skýringum, sem fram hafa komið, að nefndina hefir vantað ýms gögn til þess að gera skýrsluna svo úr garði, að fulltrygg geti talist að þeirra áliti. En við það verður að sitja frá báðum hliðum. En jeg vil reyna að skýra málið í sumum atriðum nokkuð nánar og koma fram með athugasemdir við ýmislegt, sem í skýrslunni stendur, og leiðrjettingar.

Það, sem vantar í skýrsluna, og jeg vildi taka dálítið nánar fram, er fyrst og fremst um tildrög málsins. Fyrstu tildrög til þessa námurekstrar felast í þingsályktunartill., sem samþ. var á síðasta aukaþingi hjer í deildinni, en eigi varð útrædd í Ed. Af umr. málsins þá sjest það, að þingmenn lögðu afarmikla áherslu á, að landsstjórnin ljeti sem mestan árangur verða af till. Till. þessi var í tveimur liðum, sem sje: að láta sjerfræðing rannsaka kolafundi, og að heimila landsstjórninni kolavinslu á kostnað landssjóðs.

Jeg get upplýst það nú, ef menn hafa ekki vitað það áður, að stjórnin hefir altaf verið á hnotskóg til að reyna að útvega sjerfræðing. En eins og jeg tók fram í hv. Ed. fyrir skömmu, þá hefir það verið svo miklum örðugleikum bundið að fá sjerfræðing í kolanámufræði, að það hefir ekki lánast að fá neinn fyr en nú fyrir skömmu. En jeg skal taka það fram, að þar sem svo er að orði komist í skýrslunni, að vegamálastjórinn hafi útvegað manninn, þá ef það ekki rjettilega skýrt. Jeg skal ekki draga neitt úr afskiftum vegamálastjórans. Hann hefir gengið mjög vel fram í málinu. En frumkvæðið var þó hjá stjórninni. Hún hefir gert sitt ítrasta til að útvega manninn, bæði með brjefaskriftum til íslensku stjórnarskrifstofunnar í Kaupmannahöfn og fyrir milligöngu Kirks hafnarverkfræðings, sem hjer var. Með tilstyrk vegamálastjórans hefir nú tekist að útvega manninn, en það er alls ekki honum að þakka, fremur en stjórninni. — Þessi námuverkfræðingur hefir verið trúnaðarmaður sænsku stjórnarinnar við rannsókn á brúnkolanámum þar í landi. Hann er ráðinn hjer til næstu áramóta, og er nú að rannsaka Tjörnesnámuna, en að því loknu er honum ætlað að rannsaka kolafundi sem víðast, þó einkum þar, sem menn áður vita um kol, svo sem á Vestur- og Austurlandi.

Síðari liður till. frá aukaþinginu stendur í nánara sambandi við Tjörnesnámuna en skýrslan ber með sjer. Þó till. tali um að útvega sjerfræðing til að rannsaka kolafundi, þá er ekki í henni bannað að hafast eitthvað að áður en hann fáist. Síðari liður till. heimilar það beinlínis, og telur jafnvel æskilegt, að eitthvað sje gert áður.

Fyrst stjórnin vildi nú verða við óskum þingsins í þessu efni, þá varð það úr, að sumarið var ekki látið líða, nje heldur beðið eftir tilraunum einstakra manna, sem stjórnin vissi ekkert um að ætluðu sjer að vinna kol, eða beðið eftir sjerfræðingnum frá útlöndum, sem þá og lengi síðan var ekkert víst um að kæmi.

Stjórninni var nú kunnugt um það, — ekki einungis úr fræðiritum, heldur og af innlendri reynslu margra manna, að surtarbrandur var til víða um land og að vart hafði orðið við brúnkol á stöku stað. Þar eð engum sjerfræðingi var til að dreifa til kolarannsókna, virtist stjórninni helst tiltök að byrja kolanám á þeim stað, þar sem mest var fengin reynslan um kolavinslu og notagildi kolanna. Stjórninni var nú ókunnugt um, hvernig kol höfðu reynst, þau er tekin höfðu verið, nema á Tjörnesi. Þar vissi stjórnin með vissu, að surtarbrandstekja hafði verið stunduð í 30 ár, og brúnkol tekin til eldneytis, stundum allmikið, einkum síðustu árin. Það var því fengin góð reynsla um þessi kol. Þó það væri ekki efnafræðileg reynsla, þá var hún notagildisleg, bygð á umsögn manna þar um slóðir, sem höfðu notað kolin og reynst þau góð, ef hagað var eldstæðum eftir því, sem best hentar þessum kolum.

Stjórnin taldi þessa notkunarreynslu nokkurn veginn ábyggilega. Jeg skal geta þess, að einn í stjórninni, fyrverandi fjármálaráðherra (B. K.), veitti þessu máli mikla athygli. Hann er mjög áhugasamur í þessum efnum og hafði, meira en nokkur annar í stjórninni og meira en nokkur annar í þessari hv. deild og í Ed., kynt sjer námufræði og steinafræði. Hann hafði skrifast á við Benedikt Björnsson, skólastjóra á Húsavík, um Tjörnesnámuna, og hefi jeg hjer í höndum brjef, sem Benedikt skrifaði þáverandi fjármálaráðherra (B. K.), dags. 9. maí 1917. Hefir hann góðfúslega lofað mjer að sjá brjefið, og þó að það sje „privat“-brjef, vil jeg leyfa mjer að lesa úr því svolítinn kafla. Hann segir svo:

„Eingöngu kol úr þessari námu hafa verið notuð hjer á Húsavík í vetur. Verð þeirra hefir verið kr. 20,00 tonnið við námuna, en kr. 29,00—30,00 hingað komið, og hafa flutningar orðið svo dýrir vegna óhentugra flutningatækja.

Nú hafði jeg undirbúið kolanám í sumar í allstórum stíl, eftir beiðni og pöntunum ýmsra manna hjer og kringum Eyjafjörð og víðar… Menn hafði jeg ráðið og lagt í allmikinn kostnað með verkfæri og annan útbúnað, enda allur atvinnuvegur minn í sumar bygður á þessu og miðaður við þetta. En nú veit jeg ekki, hvernig um hann fer, ef landsstjórnin tekur námurnar til rekstrar, eða einhverra athafna.

Um notagildi kolanna ber mönnum ekki saman. En eftir minni reynslu tel jeg kolin hálfgildi góðra enskra ofnkola. En rúmgóð og dráttmikil eldstæði þarf fyrir þau, ef vel á að fara, því þau eru svo öskumikil.“

Það er einmitt þetta atriði, sem sumir hafa ekki vitað um, sem harðast hafa dæmt Tjörneskolin, og ekki er sagt, að dómurinn hefði orðið á þá leið, ef rjettilega hefði verið með kolin farið.

Nú voru send tvö sýnishorn af kolum úr þessari námu hingað suður, til rannsóknar, og reyndust þau svo vel, að upp frá því var afráðið að byrja að vinna þarna.

Á þinginu í fyrrasumar var enn samþykt þingsályktun í sameinuðu þingi, þgskj. 241, þar sem enn fastara er kveðið á um öflun eldsneytis, sjerstaklega innlendra kola, og er stjórninni þar meðal annars heimilað fje til leigu og kaupa á kolanámum. — Eins og tekið er fram í skýrslunni, var náman á Tjörnesi fyrst leigð, en eftir að tillagan var samþ. í þinginu, fóru fram kaup á öllum námurjettindum í Ytri-Tungulandi, 16. ágúst f. á.

Af þessu er það ljóst, að stjórnin hefir í þessum efnum farið eftir skýlausum vilja þingsins og heimildum þess, og kappkostað að koma þessu ítrekaða áhugamáli þingsins svo til framkvæmda, sem henni virtust atvik helst liggja til. Stjórnin skildi svo framkomu þingsins í þessu máli, að það hefði ekki lagt áherslu á annað meira en að þarna væri duglega hafist handa. Auðvitað ekki með reikningslegum halla, ef unt væri. En hvar er hægt að fá fulla vissu, eða þó ekki sje nema viðunanlegar líkur til þess, að ekki geti orðið tap á svona stóru fyrirtæki, þar sem kunnáttu og reynslu vantar svo tilfinnanlega?

Í þessu sambandi er rjett að taka það fram, að stjórnin hefir, rjettilega, ekki látið sitja við kolavinsluna á Tjörnesi. Hún hefir, með þeirri bestu aðstoð, sem hún getur fengið hjer innanlands, þegar sjerfræðing vantaði, látið rannsaka kolafundi á Vesturlandi og Austurlandi og gefa þær upplýsingar, sem föng voru á. Hún hefir látið rannsaka kolasýnishorn hjer í Reykjavík frá ýmsum stöðum, útvegað verkstjóra, þar sem þess hefir verið óskað, útvegað verkfæri og sprengiefni og yfir höfuð reynt að greiða fyrir kolavinslu sem mest.

Hjer get jeg líka tekið það fram, sem er alls ekki ljóst í skýrslunni, nje heldur í viðbótargreinargerð hv. frsm. (G. Sv.) við hana, að í þessu hafði stjórnin frá byrjun aðstoð og tillögur vegamálastj. En í því efni fór stjórnin í varfærnisáttina, að hún vildi ekki hefja kolavinslu nema á þessum eina stað.

Þetta er nú það, sem jeg vildi sagt hafa alment um málið, áður en jeg sný mjer að skýrslunni sjálfri. Eins og skýrt er fráíupphafi skýrslunnar, kom það fram í ræðu hv. frsm. (G. Sv.), að nokkru nákvæmar var þar farið út í málið.

Ætla jeg nú að taka skýrsluna eins og hún liggur fyrir mjer á borðinu, eins og öðrum hv. þm.

Fyrst skal jeg geta þess, að það ætti að geta verið hv. fjárhagsnefnd ljóst. hvers vegna náman var fyrst tekin á leigu. Get jeg í efni vitnað til hæstv. fyrv. fjármálaráðherra (B. K.), að það var fyrir það, að hreppsnefnd Tjörneshrepps átti frumkvæði í því. Eftir að hreppurinn hafði fengið kauparjett á námunni fyrir um 12.000 kr., gerði hreppsnefndin fyrirspurn í síma um það hvort landsstjórnin vildi ekki leigja námuna, og bauð landsstjórninni að sitja fyrir leigunni. En einstakur maður, Þorsteinn Jónsson, kaupm. frá Seyðisfirði, var þá að falast eftir að fá námuna leigða. Leiga fekst ekki lægri en 2.400 kr. á ári. Þannig stóð þá á því, að landsstjórnin gekk að því að leigja námuna, fyrir kr. 3,50 fyrir hverja burtflutta smálest, sem hv. nefnd og frsm (G. Sv.) virðast telja of hátt. Hjer var ekki kostur á vildari kjörum. Og það held jeg rjett með farið, að maður sá, er falaðist eftir námunni til leigu, hafi ekki átt kost á henni fyrir þetta, en hefði má ske ekki gengið frá, þótt leigan hefði verið hærri. Þessi leigusamningur gilti til hausts, til 1. sept., því að þá var óráðið, hvort námurekstri yrði haldið lengur áfram á kostnað landssjóðs. En svo kemur fram þetta nýja, að Tjörneshreppur býður landsstjórninni námuna til kaups, og þegar svo þingsályktunin frá þinginu í fyrra líka heimilaði kaup, þá varð það að ráði að kaupa námuna fyrir 16.000 kr. Að það sje hálfu meira verð en hreppurinn hafði þá nýlega keypt jörðina fyrir, er því ekki rjett, en hins vegar er það mjög tíðkanlegt á þessum dögum, að eignir hækka fljóttíverði, án þess að kaup eða almenn viðskifti hætti fyrir það. Í raun og veru var það ekki nema eðlilegt, að stjórnin rjeðist í að kaupa. Reikningslega sjeð var það hagkvæmara en að halda áfram að leigja, því að ekki þurfti nema tæpar 4.600 smál. af uppteknum og burtfluttum kolum, til þess að borga kaupverðið, og þegar búið var að taka upp 5.000 smál., var það orðið betra en að leigja. Jeg ætla ekki að þreyta hv. deild á því, að koma fram með þetta sem reikningsdæmi, en hægt er um vik að sannfæra sig um, að þetta sje rjett.

Áður en keypt var hafði fyrir nokkru verið hafin kolavinsla fyrir norðan, og sá verkstjóri ráðinn, sem þegar hefir verið nefndur, bæði í skýrslunni og ræðu hv. frsm. (G. Sv.). Það er Jónas Þorsteinsson. Hafði hann ágætismeðmæli og átti frá háu kauptilboði að hverfa, sem verkstjóri við annað fyrirtæki, sem fór í líka átt, eldneytisöflunina í Reykjavík. Hafði hann áður verið nokkuð við námugröft í Dufansdal, og auk þess verkstjóri undir yfirstjórn Jóns Þorlákssonar. Var hann ráðinn af atvinnumála- og fjármáladeild stjórnarráðsins í sameiningu. Síðar var svo bætt við öðrum manni, Sigurði Jónssyni, af því að vinnan var svo margskift og verkamenn margir. Það virðist nú svo, að það sje álit hv. nefndar og frsm. (G. Sv.), og ef til vill hv. þingdm. og almennings, að þessi maður hafi verið óheppilega valinn, af því að hann hafi ekki reynst standa í stöðu sinni á þann hátt, er þurft hefði, en þar sem sjá má í skýrslunni, að vegamálastjóri hafi traust nefndarinnar að minsta kosti á móts við það traust, er nefndin ber til landsstjórnarinnar, þá víkur því einkennilega við, að vegamálastjóri hefir ráðið þennan mann áfram til að standa fyrir vinslu námunnar. En jeg get nú tekið það fram, að þetta er ekki það eina, sem ekki er vel samrýmanlegt við það, sem nefndin segir og virðist álíta um málið, svo rökfærslan fer stundum út um þúfur.

Kaupgjaldið er að vísu nokkuð hátt, en ekki vil jeg segja, að það sje nákvæmlega eins hátt og segir í skýrslunni, en það munar aldrei svo miklu, að út af því sje hvellur gerandi. En jeg mun síðar, ef .hæstv. forseti leyfir, skýra frá áliti annara manna, sem færa skriflegar ástæður fyrir því, að eðlilegt sje, að kaup sje hærra þarna en við nokkra aðra atvinnugrein hjer á landi.

Sama er að segja um fæðiskostnaðinn, sem jeg er sammála nefndinni um að er hjer mjög hár. Mun það og eðlilegt, að á þessum stað þurfi fæði að vera í kostbesta lagi vegna erfiðrar vinnu.

Er jeg þá kominn að því, hvað selt hefir verið frá námunni á þessu tímabili. Skal jeg hjer ekki gera veður út af því, þótt þar sje ekki nákvæmlega frá skýrt.

Jeg skal taka það fram, að þess er getið á 2. bls. skýrslunnar, að skipaður hafi verið eftirlitsmaður og reikningshaldari við námuna sá maður, er frsm. (G. Sv.) drap á, sem sje sýslum. í Þingeyjarsýslu. Það var þegar jeg fór norður til að athuga námuna, að það kom upp, að nauðsynlegt væri, að til aðstoðar um ýms vandasöm atriði, yrðu skipaðir 3 menn í nefnd. Var það sýslumaðurinn í Þingeyjarsýslu, hreppstjóri Tjörneshrepps, Jón Jónsson á Hjeðinshöfða, og Egill Sigurjónsson, hreppsn.m. á Laxamýri.

Jeg er ekkert smeikur, þótt skrifarar þessarar hv. deildar festi þessi nöfn á pappírinn, því að jeg er þess fullviss, að lífs og liðnum verður þeim ekki borinn annar vitnisburður en sá, að þeir hafi verð vandaðir sæmdar- og merkismenn, og framkvæmdir þeirra hafa sýnt þá hyggna menn og athugula. Hv. frsm. (G. Sv.) var nú svo nettur, að í sambandi við þetta fór hann alls ekki út í það, að Sigurður Jónsson, fyrrum á Ystafelli, hefði ritað upp á greiðsluávísun fyrir ferðakostnaði sínum norður. Það var að eins eitt heiðrað blað, eða eitt blað, skulum vjer heldur segja, sem hafði það fyrir hvítasunnusálm, að jeg hefði farið norður til að ráðstafa búi mínu og flytja suður konu mína og börn upp á landssjóðs kostnað. Það verður eini útúrdúr minn að gera grein fyrir þessu. Jeg fór norður á eigin kostnað. En í samráði við þáverandi hæstv. fjármálaráðherra tókst jeg á hendur að athuga ýmislegt viðvíkjandi námunni. Fyrir það var ekki borgað annað en það, sem gekk í fylgdarmann og hesta frá Ystafelli til námunnar. Að öðru leyti tók jeg ekkert fyrir þá ferð. En þessa skýringu má ekki misskilja þannig, að jeg gefi í skyn, að nefndin hafi hreyft þessu til að villa sjónir.

Það er margt fleira í skýrslunni, sem jeg hefði viljað skýra frekar, en jeg vil sjerstaklega taka það fram viðvíkjandi því, sem skýrslan segir, að „hreinn halli á rekstri þessarar námu hafi orðið frá miðjum maí f. á. til 9. mars þ. á., á annað hundrað þúsund króna“, að þessir reikningar eru ekki enn fyllilega endurskoðaðir. Niðurstaða nefndarinnar er því ekki nákvæm. En þetta er ekki svo að skilja, að hallinn muni áreiðanlega reynast minni. Hann getur eins vel orðið nokkuð meiri.

Það er rjett, að kolaverðið var fyrst 35 kr., og var því haldið nokkuð lengi. Að kolaverðið var ekki hækkað þegar landssjóður tók að vinna námuna, stafaði af því meðal annars, að þegar námavinnan byrjaði, þá var þar fyrir vinnuflokkur, eins og líka hv. frsm. (G. Sv.) drap á. Varð það að samkomulagi, að þessi flokkur rjeði sig til landssjóðs, þannig að báðir flokkarnir lögðu saman. En sá flokkur var búinn að lofa nokkrum kolum fyrir þetta litla verð.

Að setja verðið svo í byrjun, að sýnt væri, að reksturinn bæri sig, var ekki svo auðvelt, þar sem um nýtt fyrirtæki er að ræða, með nýjum áhöldum og öðrum dýrum verkfærum.

Það stendur í nál., að kaupendum og neytendum þessara kola hafi víst þótt nóg fyrir þau gefið. Þetta getur vel verið rjett fullyrðing að einhverju leyti, en þá verður það líka að byggjast á því, að svo mikill sje gæðamunur á þessum kolum og kolunum úr Hringversnámunni, að ekki hafi verið gerlegt að selja þau hærra verði en þetta. Skal jeg láta mjer nægja að taka það fram, að þessi fullyrðing á ekki við sönnunargögn að styðjast.

Þá segir svo, í niðurlagsorðum skýrslunnar, að yfirstjórn þessa fyrirtækis hafi verið í höndum atvinnumálastjórnar landsins. Það er að nokkru leyti rjett, en eins og jeg hefi áður vikið að, hefir og þáverandi forstöðumaður fjármáladeildarinnar, hv. 1. þm. G.-K. (B. K.), látið sjer mjög ant um málið, meðan það var á undirbúningsstigi, og öllum helstu framkvæmdaratriðum í stjórnartíð hans. En þótt hann hefði lítil afskifti af fyrirtækinu, er það var komið í fast horf, þá var hann sá, sem var lífið og sálin í framkvæmdum þessum í byrjun, og mest vann að því að koma því í það horf, er það hafði í síðastliðnum ágústmánuði, og gæti því nefndin eins vel beint aðfinslum sínum þangað að mestu leyti.

Þá kem jeg að þeim stað í skýrslunni, sem styðst við brjef frá cand. Einari Gunnarssyni, og er allhörð ummæli um reikningsskil og annað. Þar er nú að vísu vikið að nokkru leyti að því, að stjórnin hafi ekki vandað til þeirra manna, er þar er veist að, nje haft eftirlit með þeim. Jeg hefi nú áður nefnt þessa menn, og skal jeg ekki fara langt út í þau orð, en að eins taka það fram, að þetta er slitið út úr sambandi, miðað við brot af reikningunum og haft eftir ónákvæmum og ósamhljóða símskeytum, sem oft er ómögulegt að segja um, hvernig stendur á að ósamhljóða eru, og vitanlega stundum eru röng, enda vitnar bæði þessi maður og vegamálastjóri nokkuð annað að lokum.

Eftir þetta víkur skýrslan mest að vegamálastjóra landsins, og að málið hafi verið honum í hendur fengið, „þegar í þetta hirðuleysis-óefni var komið“. Jeg hefi nú áður tekið það fram, að vegamálastjórinn var búinn að hafa áður ýms afskifti af námunni, sjá um kaup á verkfærum og útvegun á fleiru, með aðstoð verkstjórans, sem þá kom suður, hefir einmitt unnið að þessu, sem mig minnir, að hv. frsm. (G. Sv.) bendlaði við fyrirhyggjuleysi. Loks er það sagt, að hann hafi, eftir að hann tók við, fengið plögg námunnar í hendur frá stjórnarráðinu og heimtað til sín að norðan alla reikninga og bækur. Og síðan hafi hann með þau gögn í höndum gert reikningsskil yfir rekstur og hag námunnar frá byrjun. Þótt þetta sje má ske ekki algerlega rangt, er það ekki nægilega skýrt og talsvert villandi.

Enn segir skýrslan, að vegamálastjóri hafi útvegað sænskan verkfræðing, reyndan mann og dugandi. Sannleikurinn er nú sá, að það gerði stjórnarráðið með aðstoð stjórnarskrifstofunnar í Höfn og Kirks verkfræðings. Jeg hefi alls ekki viljað draga af þessum heiðursmanni, vegamálastjóranum, þann tvísýna heiður að hafa útvegað þennan mann. En það er nú fremur stjórnarinnar verk, og býst jeg við, að sumir menn álíti það eitt af „axarsköftum og skakkaföllum“ stjórnarinnar að útvega manninn. Jeg vil með þessu benda á, að hann var ekki einn um það, svo að hann þurfi ekki að vera einn um ábyrgðina, þegar þar að kemur.

Enn er þess getið, í sambandi við vegamálastjóra, að nú sje náman „undir hæfri og ábyggilegri stjórn“. En þess er ekki getið, hve margir þátttakendur eigi að felast undir þessu samnafni „hæfri og ábyggilegri stjórn“. Sennilega er það, að landsstjórninni frátekinni, tilsjónarnefnd námunnar, verkstjórar og dagleg stjórn námunnar. Ef svo er, þá víkur því undarlega við, að í þessa hæfu og ábyggilegu stjórn ræður vegamálastjóri sama aðalverkstjórann og áður. Hann mun ráðinn til hausts. Það ber því alt að sama brunni. Þrátt fyrir góðan vilja kann jeg ekki að hugsa öðruvísi en svo, að hjer kenni, sem víðar hjá nefndinni, dálítils ósamræmis.

Ætla jeg svo ekki að fara fleiri orðum um þessa skýrslu, en tala dálítið meira um málið frá almennu sjónarmiði. Það sem bæði hv. nefnd og allir aðrir, er nokkuð vita rjett í málinu, reka fyrst augun í, er þessi reikningshalli. Hann er mikill — alt of mikill — er mjer óhætt að segja.

Jeg ætla nú ekki að vera svo hlutdrægur og ósanngjarn að segja, að ekkert hafi farið lakar í þessu efni en mátt hefði og átt að fara með bestu fyrirhyggju og aðgerðum. En á þeim tíma og undir þeim sjerstöku aðstæðum, sem nú er um að ræða, hygg jeg að hv. nefnd hefði varla getað það heldur, svo öllum hefði vel líkað. En gætum betur að. Er ekki þetta vanalega reynslan, þegar eitthvað á að kanna, ráðast í eitthvert fyrirtæki á óþektu svæði? Auðvitað er það ekki fullgild afsökun, en þó má taka tillit til þess. En hvað hafa menn svo í aðra hönd? Af skaða verða menn hygnir, en ekki ríkir. Og ef vjer gætum orðið hygnir af skaða í þessu tilfelli, þá hefði þetta orðið til nokkurs góðs. En þess verður og að gæta um þennan reikningshalla, að tapið er ekki eins mikið fyrir þjóðfjelagið í heild og það sýnist á pappírnum. Tel jeg þar þá fyrst til, að margir menn hafa þar fengið góða atvinnu og fengið hátt kaup, þó eigi of hátt miðað við það hins vegar, að þeir hafa orðið að hætta lífi sínu, þótt sem betur fer engin stórslys hafi orðið, þótt hjer sje ekki að ræða um dýrtíðarhjálp í eiginlegum skilningi, þá er þó ekki rjett að segja, að þetta fje sje tapað fje þjóðfjelaginu. Og þótt kolaverðið sje lágt, þá er þar heldur ekki tapað fje þjóðfjelaginu, þótt það standi ekki í landssjóði. Og ef kolaverðið í þessari námu hefði frá upphafi verið 55 kr. fyrir hverja burtflutta smálest, þá væri þegar höggið stórt skarð í reikningshallann, um eða yfir 30 þús. kr. En jeg hefi sagt ástæður til þess áður, að það verð var ekki sett í upphafi. Þetta er ekki svo hátt verð, þegar miðað: er samtímis við verð á útlendum kolum, og ef menn halda því föstu, sem ekki er hægt að mótmæla, að hitagildi Tjörneskolanna er að minsta kosti 2/5 á móti útlendum kolum, þá er það ekki hátt. Til þess að jafna reikninghallann, þó ekki verði með því að leggja peninga inn í reikninginn, má enn taka það fram, að jeg get ekki sjeð það, að án þess, að þessi náma hefði verið rekin, hefði orðið mikið úr öflun kola, eða slík öflun framkvæmd með slíkum áhuga og nú eru líkur til að verði sumarið 1918.

Þess ber að gæta, að þetta er tilraunastöð, og að ekki má gera þær kröfur til þeirra að þær borgi sig alveg reikningslega; það er ekki frá því sjónarmiði svo sjerlega mikið hrygðarefni, auk þess sem þarna má taka til fyrirmyndar í hinu góða, og þó að þar hafi einnig komið fram eitthvað, sem ekki er gott, þá er það að mínu áliti ekki nema eðlilegt, að slíkt komi fyrir. Í útlöndum eru slíkar tilraunastöðvar hafðar á kostnað ríkisins, og í sambandi við þetta vil jeg benda á, að engin reynsla var fyrir því, að Tjörneskólin væru nothæf til að knýja fram gufuskip; nú er þegar búið að panta talsvert mikið af þeim í þessu skyni, og þetta styrkir þá hugsjón, og flýtir má ske fyrir framkvæmd hennar, að landsmenn eigi sjálfir þau skip, sem þeir þurfa og knúð sjeu, má ske að nokkru leyti, má ske að öllu leyti, með innlendu eldsneyti. Jeg tel þetta mjög mikilsvert nú, þar sem lítil vissa er fyrir öflun útlendra kola og verðið afarhátt. Auk þess er ekki nema sanngjarnt að taka tillit til þess, sem alstaðar, ekki má ske undantekningarlaust, en undantekningarlítið, kemur fram, að það, sem hið opinbera lætur starfrækja á almenningskostnað, verður venjulega dýrara en það, sem einstaklingar hafa með höndum. Það reynist venjulega svo, að þeim mönnum verður klaksárt, er klakann brjóta og rennuna ryðja. En á fyrir það að halda höndunum í skauti sjer, og það einmitt á þessum tímum? Jeg segi nei. Mjer finst tímarnir kalla til þjóðarinnar, fremur en nokkru sinni áður, að reyna sem flest bjargráð, og þá fyrst þau, sem blasa við augunum í heimahögunum, eða eru fólgin þar, ef vel er leitað. Það kemur líklega fram á þessu þingi, hvaða stefnu hv. þm. fylgja í þessu efni, en það dugir þó ekki að fylgja í þessu efni gömlu reglunni, að spara eyrinn, en kasta krónunni.

Jeg ætla enn að taka það fram og halda fast við það, að það var rjettur skilningur hjá stjórninni að kosta sem mests kapps um að afla innlends eldsneytis. Í sambandi við það vil jeg benda á till. síðasta þings, að láta rannsaka sem best alla móvinslu, og þó þessi till. væri ekki frá öllu þinginu, og feld með eins atkv. mun í Ed., áleit stjórnin þó sjálfsagt að halda henni fram, og jeg held líka, að það sje í samræmi við skoðun flestra manna, að bera geri sem mest að því að safna innlendu eldsneti. En má ske vill þetta þing heldur verja dýrum tíma sínum til að þrátta um þetta mál, ekki að eins þetta eina, heldur og hvert annað mál, sem hverjum einstökum þm. kann til hugar að koma, en að athuga það í stærri dráttum, athuga málið í höfuðatriðum og í sambandi við þá tíma, sem yfir standa og í vændum eru, og í sambandi við þetta vil jeg halda því fram, að afskifti þings og stjórnar um eldsneytismálefni, þar á meðal Tjörnesnámuna, eru ekki ásökunarverð, heldur sjálfsagt að gera hið ítrasta til að halda því áfram, þó að margt sporið geti verið misstigið við það.

Jeg get ekki látið vera að benda á tvö hliðstæð dæmi. Annað er Vestu-útgerðin; þar kom mikið fje fram sem reikningshalli, en hvernig fór? Menn gáfust ekki upp, og nú er hugmyndin viðurkend sem góð, og verður það áfram, og eftir ósk og samþykki hins háa Alþingis höfum við nú allgóð skip, kostuð á eigin ábyrgð, og ætlum með jafnaðargeði að bera það, þótt einhver halli kunni að verða. „Ekki fellur trje við fyrsta högg,“ og stefnan í því máli sýnist vera rjett.

Hitt dæmið er þessu hliðstætt. Það var víst bæjarstjórn þessa bæjar, sem undirbjó mótak á síðasta ári; jeg skal ekki fara út í mjög miklar skýringar um það atriði; nokkur meginatriði get jeg minst á, og þá fyrst það, að land til að vinna úr móinn þurfti hvorki að kaupa nje leigja dýrum dómum, því að bærinn átti það sjálfur. Það var kostað upp á að fá mann til yfirstjórnar, mann, sem almenningur áleit mjög góðan fjármálamann, mann, sem lengi hafði verið trúnaðarmaður stjórnarinnar o. s. frv. Öldum saman höfðu menn þekt móvinslu, svo að þar var ekki um neina nýja braut að ræða, hvað það snerti; líkindaleg áætlun var gerð um, hvað mórinn myndi kosta, og eftirlit bæjarstjórnarinnar, sem hafði mörgum góðum mönnum á að skipa, gat verið mjög handhægt. Öll þessi skilyrði voru þýðingarmikil og voru fyrir hendi, en hvernig fór? Það er hv. þgdm. kunnugt, að þrátt fyrir þessa góðu aðstöðu varð mórinn miklu dýrari en áætlað var, og mjer er sagt, að mikill skaði hafi orðið á fyrirtækinu, enda svo skifti tugum þúsunda að krónutali. Þetta er ekki sagt til að álasa hinni góðu bæjarstjórn hjer í Reykjavík. Eftir því, sem jeg veit best, ætlar bæjarstjórnin að halda áfram, en gefast ekki upp við reynsluna, og hafi hún þökk fyrir!

Jeg vil þá ekki þreyta hv. deild mjög mikið fram yfir þetta, en jeg get samt ekki annað en drepið á álit þess manns, sem nánar þekkir alla aðstöðu þarna við Tungunámuna heldur en jeg, og nefndur er áður í sambandi við þetta mál; það er hr. Einar Gunnarsson cand. phil., í skýrslu, sem hann hefir gefið um reikningshald námunnar, tekur hann það fram, að reikningshaldarinn, Benedikt Björnsson kennari, ásamt sýslum. á Húsavík, hafi að mestu lokið ársreikningum námunnar áður en þessir reikningar voru sendir til vegamálastjórans.

Jeg býst nú við, að sumir hv. þm. muni þekkja svo sýslumanninn í Þingeyjarsýslu, að þeir trúi því ekki, að hann eigi svo óheppilega hlutdeild í málinu, eins og skýrslan sýnist vilja benda til. Annars gæti jeg drepið á það, að hv. þm. S.-Þ. (P. J.) hefir skoðað námuna, og gæti því, þótt hann vildi ekki blanda sjer inn í þessi sjerstöku atriði, gefið hv. deild einhverjar upplýsingar.

Gagnvart því, sem sagt er um kaup o. fl., vil jeg benda á það, sem vegamálastjóri segir:

„Vinnan. Kaup er nokkuð hátt, saman borið við verkal. við aðra vinnu, en þess ber að gæta, að vinnan í námunni er óvenjulega ströng og erfið; menn verða að standa hálfbognir að vinnunni, andrúmsloftið í námugöngunum þungt og rakt, úr loftunum lekur jafnan meira og minna, og hefir víða kveðið svo mjög að þeirri vætu, að menn hafa ekki getað varið sig með vosklæðum, svo þeir hafa verið gegnvotir innan klæða allan daginn. Má nærri geta, að slíka aðbúð þola einungis vel hraustir menn, nema verða fyrir heilsutjóni. Þá er og eðlilegt, að fæði og þjónusta verkamanna undir slíkum ástæðum verði dýrara en venja er.

Kostnaðurinn. Auk aðalhússins, sem gert var í fyrra sumar, er þar timburskúr allstór, gerður í fyrra vor, til sumardvalar fyrir verkamenn, enn fremur smáskúrar og smiðjuhús. Allar þessar byggingar hafa kostað rúmar 40 þús. kr., en ekki stóra húsið eingöngu, eins og talið er í skýrslunni; það hefir kostað sem næst þá upphæð, sem það er virt (33 þús. kr.). — Óhætt að fullyrða, að kolin hafa ekki verið lakari en íslensk kol yfirleitt, ekki að marka mismunandi skoðanir manna um gæði innlends eldsneytis, fer meðal annars mjög eftir eldstæðum, hvernig það reynist hverjum einstökum. Hefir verið lagt fyrir verkstjórnina, að hreinsa sem best frá kolunum óbrennanleg efni.

Niðurlagsorð. Reikningar, sem að norðan komu eftir áramótin, frá sýslum. og ráðsmanni námunnar, Ben. B., hafa sýnt, að rangar voru ályktanir þær, sem E. G. bygði á nokkrum misfellum í framtali kola í birgðum. Ástæðan til þeirrar ónákvæmni, er hann finnur í skeytum sýslum. og verkstjóra, er sú, að mjög er erfitt að telja fram kolabirgðir eftir teningsmáli þeirra, þar sem þau eru að mestu geymd á víð og dreif í göngum, en vigtun þeirra alt of kostnaðarsöm. Um reikningsskil hlutaðeiganda má fullyrða, að þau sjeu í góðu lagi. Sjóðbækur hafa auðvitað verið haldnar, og skrá um afhending kolanna.“

Já, „lengi býr að fyrstu gerð,“ og jeg vona, að þessi fyrsta gerð hv. frsm. (G. Sv.) og mín sje svo mikils virði, að hv. þgdm. fari nú að geta gert sjer dálítið betri grein fyrir því, hvernig þeir vilja snúast við þessu máli, og þá með sjerstöku tilliti til þingsályktunartill. þeirrar, sem hjer liggur fyrir, bæði gagnvart fyrri og síðari lið hennar, en gagnvart þingsályktunartill. vil jeg enn leyfa mjer að benda á, hvernig vegamálastjóri lítur á málið. Hann segir sem svo gagnvart fyrri lið hennar:

„Sænski verkstjórinn, sem kominn er norður fyrir nokkru, hefir enn ekki getað látið uppi álit sitt um námuna, bíður þess, að sænsku verkfærin komist í hendur hans; þó má ráða af síðustu vikuskýrslu, að eftirtekjan hefir orðið nokkuð betri tiltölulega en undanfarið. Nú sem stendur vinna í námunni að eins 20—25 manns, og er unnið mikið að útskipun til kaupenda. Af þessum mönnum eru að eins 10 ráðnir sumarlangt, með því skilyrði þó, að þeir skuli skyldir að vinna að annari vinnu, t. d. vegagerðum, ef hætt yrði í námunni. Fleiri menn vera að svo stöddu ekki fastráðnir, en ef eftirtekjan eykst svo, þá er farið verður að vinna með sænskum verkfærum, að sjáanlegt er, að rekstrartap mundi fara mjög minkandi, er sjálfsagt að halda vinnu áfram á þessum stað.

Aðstaða að kolanámi hjer á landi hefir alstaðar reynst svo erfið, að tap hefir orðið á því hingað til, en kolin seld miklu hærra verði en Tjörneskol. Má ekki horfa í slíkt í eldsneytisvandræðum þeim, sem nú vofa yfir. Hvergi hefir verið tekið upp líkt því eins mikið af kolum og í Tungunámu, nú um 2 þús. tonn, þar lagt þegar í allan undirbúningskostnað, og ekki sannað enn, að aðstaða sje lakari en á öðrum stöðum, er einstakir menn eða bæjarfjelög hafa látið vinna“.

Mjer finst nú, að þegar menn athuga þetta álit vegamálastjórans, þá sje það ljóst, að hann vill láta halda áfram að vinna þarna til haustsins, og er þegar búinn að ráða menn, nokkra að minsta kosti, og vill láta þessi nýju verkfæri og þennan nýja sænska námamann njóta sín þarna, og hvað síðari liðinn snertir, tekur hann það fram, að það muni verða að hans till. haldið áfram í sömu átt, enda hefir kolanámið í Gunnarsstaðagróf sætt svo góðum undirtektum í þessari hv. deild, sem framast verður kosið. Mjer finst líkindi til þess, að það verði vegamálastjórinn, sem mestu ræður um þetta, og að stjórnin muni fara mest að till. hans um það, enda veit jeg ekki annað en að hann sje nú bráðlega búinn til þess að fara norður sjálfur.

Af því að jeg býst ekki við, að jeg muni þreyta hvorki mig nje hv. þingdeild á því að taka til máls aftur, verð jeg að víkja nokkrum orðum að þeim orðum hv. þingdeildarmanna, sem athugaverð eru að mínum dómi, og nefna það, að náman var keypt, en ekki leigð áfram. Jeg hefi líka gert grein fyrir ferð fulltrúans hingað suður, sem hv. frsm. (G. Sv.) ekki lagði mikið upp úr. — Um afgreiðsluna get jeg ekki dæmt, hvað sem hv. nefnd kann að hafa fyrir sjer í því efni. Um laun verkstjórans skal það sagt, að það er satt, að þau eru nokkuð hærri en þau laun, sem honum buðust hjer í Reykjavík, en að minni hyggju alls ekki hærri en það, sem verk þetta var erfiðara og hættulegra heldur en að vera flokkstjóri hjer við móvinslu í Reykjavík.

Þá er eitt stórt atriði í málinu, sem jeg hefi miklu verri aðstöðu að minnast á en hv. frsm. (G. Sv.), og það er námurekstur Þorsteins kaupmanns Jónssonar, þar sem jeg hefi engar skýrslur þar að lútandi. Jeg verð þess vegna að sleppa því að mestu að minnast á það, — en hann mintist á það, hv. frsm. (G. Sv.), að tveir hefðu verkstjórarnir verið. Það stafaði af því, að oft þurfti að vinna á tveim stöðum í einu. Það þurfti að moka frá lausagrjóti, halda svo áfram mokstrinum, til þess að finna næsta lag, og svo þurfti einnig að mynda námugöng inn í fjallið.

Þá nefndi hv. frsm. (G. Sv.) það einnig, að það hefði verið unnið að kolaleit á kolalausu svæði; þar er hann víst kunnugri en jeg, en sagnir voru um það, og ýmsar menjar báru vott um, að þessi þrjú kolalög væru ekki alt sem þar væri, heldur væru þar fleiri lög, og var varið talsverðum tíma og kostnaði til að komast að raun um, hvort svo væri.

Þá mintist hv. frsm. (G. Sv.) á undirbúninginn til vetrarins. Í þessari umræddu ferð, sem verkstjórinn fór hingað suður, var hann að undirbúa þesskonar Öflun á bæði verkfærum og matvælum, og hafði þar til leiðbeiningar vegamálastjóra, og held jeg, að frávera hans hafi ekki staðið í vegi fyrir starfinu í námunni.

Notagildi kolanna mintist hv. frsm. (G. Sv.) einnig á, en um það hefir verið nægilega rætt. Það er óhugsandi, að þessi kol úr Hringversnámunni hafi verið þeim mun betri, að skjóta þurfi mjög skökku við. Því betur hefir Þorsteinn kaupm. Jónsson ekki skaðast á sínum námurekstri.

Jeg hefi skilið það svo, að það hafi þótt okurverð á eldsneytinu frá Tungunámunni, en það ber alt að sama brunni fyrir mína hugsun, að alt það, sem mælir með rekstri Hringversnámunnar og

sýnir góð afdrif þess rekstrar, það mælir líka með framhaldsrekstri Tungunámunnar, vitanlega undir góðri og ábyggilegri stjórn. Þetta er „logikken“ í þessu máli, og þá nær það ekki nokkurri átt, að það hafi verið ófært að vinna í henni. En setjum svo, að þetta sjö rjett, þá er komið að því, sem hjer stendur í till., að það sje alls ekki óhætt að halda áfram rekstri Tungunámunnar.

Niðurlagsástæður hv. frsm. (G. Sv.) fanst mjer vera þessar:

Þarna hafi ekki átt að vinna. Því hefi jeg þegar svarað. — Eftirlit hafi verið slæmt og verkstjórinn eigi dugað sem skyldi. Jeg skal ekki bera á móti því, og hefi aldrei gert, að ýmsu kunni að hafa verið ábótavant í þessu efni. En vitanlega hafa þeir menn, er standa áttu fyrir námurekstrinum, verið ráðnir eftir bestu vitund og þekkingu, með hliðsjón af því, að þeir áttu heima í grend við námuna.

Þau hafa verið forlög þessarar stjórnar, að henni hefir jafnan verið borið á brýn, að hún velji óheppilega menn sjer til aðstoðar. En gaman væri að reyna þetta nánar, hversu einróma dæmt yrði um mannaval hjer í salnum, ef farið væri að biðja hvern einstakan þm. að velja menn til einhvers verks og skrifa nöfn þeirra á seðla. Ætli tillögurnar yrðu ekki álíka margar og hv. þm.?

Jeg vil láta hv. frsm. (G. Sv.) njóta sannmælis, og segja honum það til lofs, að ræða hans var flutt skörulega, en þó hógvær. Í lok ræðunnar var hann að vísu nokkuð harðorður, en um það vil jeg ekki fást, enda mun honum hafa virst þau orð rjettmæt. Þykir mjer gott að eiga orðastað við menn, ef úr því þarf ekki að verða orðakast, sem jeg vil ekki láta eftir mig liggja.

Loks drap hv. frsm. (G. Sv.) á nokkur smáatriði. Jeg held, að hv. nefnd hafi misskilið það, hvernig varið var um reikning manns eins, er kom að norðan. Hann sendi reikning í tvennu lagi. Hann vildi fá goldið kaup og ferðakostnað til Reykjavíkur, svo sem um hafði verið samið. Í annan stað vildi hann fá kaup fyrir ákveðinn tíma, sökum þess, að honum hefði verið ólöglega sagt upp. Stjórnarráðið sendi fyrirspurn til verkstjóra, og kom þá í ljós, að maðurinn átti rjett á því að fá goldið kaup þar til hann kom hingað til Rvíkur og ferðakostnað að norðan. En honum hafði verið löglega sagt upp vinnunni, og fjekk hann því eigi greiddan þann hluta reikningsins.

Hv. frsm. (G. Sv.) lagði áherslu á það, að síðastliðið Alþingi ætti enga sök á þessum misfellum. En eins og jeg hefi tekið fram, skildi stjórnin vilja þingsins á þá leið, að hún skyldi gera þær framkvæmdir, er best þætti henta, og liggja fyrir slíku nóg gögn í þingtíðindunum.

Jeg býst við því, að margir sjeu orðnir þreyttir á því að hlusta á skýringar stjórnarinnar. Mun jeg því láta hjer staðar numið og tala sem minst um þetta mál framvegis. Jeg hygg, að jeg hafi bent á meginatriði þessa máls nógu skýrt til þess, að hv. þm. geti glöggvað sig á því, áður en þeir afgreiða málið. Mál þetta er stórt mál. Eigi svo mjög vegna tekjuhallans, eins og hins, hvort ástæða sje til, að almenningur — einstakir menn eða fjelög — haldi áfram þeirri stefnu, að afla innlends eldsneytis, sjerstaklega surtarbrands og kola.