22.05.1918
Neðri deild: 28. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í C-deild Alþingistíðinda. (1895)

51. mál, námurekstur landssjóðs á Tjörnesi

Frsm. (Gísli Sveinsson):

Það er leiðinlegt, að þegar verið er að læða um þetta mál, þá skuli sá maður úr hæstv. stjórn, sem hjer á til að svara, ekki sjá sjer annað fært en að hlaupast af fundi, þar sem hann ætti einmitt að vera til staðar og svara fyrir sig, ef hann ætlar ekki að leggja árar í bát. En þó kemur það ekki á óvart, því að framganga stjórnarinnar í þessu máli frá byrjun hefir helst verið sú, að hlaupast í burtu og vera ekki þar, sem hún átti að vera. Svo hefir verið um málið búið frá upphafi, að stjórnin hefir aldrei haft hugmynd um, hvar sakir stóðu. Hún hefir verið alveg áhugalaus fyrir því, hvernig færi um þetta annað stærsta fyrirtæki landsins, og hefir sennilega skákað í því skjóli, að einhver hv. þingmanna myndi verða til þess að draga fjöður yfir og gera þetta að sameiginlegu hneyksli þings og stjórnar. Jeg þykist áður hafa fært rök fyrir því, að Alþingi á hjer enga sök, nema ef hv. þm. vilja kannast við, að þeim hafi frá öndverðu vitað, að atvinnumálastjórnin væri allsendis óhæf til að fara með málið, og því falið henni það vísvitandi, af eintómu hirðuleysi.

Hv. þm. S.-Þ. (P. J.) tók sig til að bera skjöld fyrir stjórnina í þessu máli. Jeg bjóst nú ekki við, að hann myndi gera það fyrst, því jeg hefi áður haldið, að ekki væri nema einn „autoriseraður“ skjaldsveinn stjórnarinnar í þessari hv. deild. En nú sje jeg, að hv. þm. Dala. (B. J.) kveður sjer hljóðs, og hefir honum sjálfsagt runnið blóðið til skyldunnar, og ætla þeir þá að vera tveir, kolapiltar stjórnarinnar í Tjörnesnámunni.

Þessi hv. þm. (P. J.) fer nú að blanda sjer í málið og ætla sjer að kveða upp úrslitadóm. Jeg þarf ekki að færa rök fyrir því, að hans dómur sje ekki óvilhallur. Honum var málið of skylt til þess að ætla sjer að hafa þar úrslitaorðið. Það er kunnugt, að hann er allhandgenginn stjórninni, sem nú situr. Hann hefir ekki heldur haft tækifæri til að rannsaka málið til hlítar, því að annars hefði hann ekki látið afstöðu sína til stjórnarinnar trufla sig, eða koma í veg fyrir hinn rjetta dóm í málinu, sem ekki gat orðið nema einn. En svo er hjer um annað að vjela. Þetta gerist sem sje á þeim stað, sem er að verða „heilagur“ staður á landi hjer og þar sem allir „hlutaðeigendur“ mynda eina samábyrgð. Þetta er þingeyskan, og hún á að lifa. (P. J.: Og lifir!). Þar við bætist svo, að við þetta mál er sá nokkuð riðinn, sem er hv. þm. (P. J.) alt of skyldur. Jeg hefi ekki í minni ræðu verið að lasta þennan mann eða hans verk, en gat þess, að það hefði komið fram, að skýrslusendingar og ýms önnur afgreiðsla hefði gengið alt of stirðlega. Jeg hjelt ekki, að hv. þm. (P. J.) hafi haft ástæðu til að standa upp og mótmæla þessu. Hvað svo sem annars má um þennan mann segja, þá var hann ekkert meiðyrtur, þótt þetta væri tekið fram. En til þess að sýna, að jeg hafi rök fyrir þessari staðhæfingu, þá skal þess getið, að trúnaðarmaður stjórnarinnar, hr. E. G., sem stundum er ekki trúnaðarmaður hennar, hefir einmitt látið frá sjer fara skýr rök fyrir þessu, sem jeg sagði í gær. Hann hefir orðið oftar en einu sinni, og einu sinni jafnvel þrisvar, með dags millibili, að krefja eftirlitsmanninn, embættismann Þingeyjarsýslu, um lítilfjörlega afhendingarskýrslu. Þetta er nú ekki mikil sök, en jeg tek það fram af því, að hv. þm. S.-Þ. (P. J.) fór um þetta atriði ræðu minnar svo hörðum orðum, og hefði alls ekki tekið það fram, ef hann hefði ekki gefið tilefni til þess. Hins vegar sje jeg ekki, að þetta komi aðalefni málsins við, og var því óþarfi að leiða það inn á þá braut.

Hv. sami þm. (P.J.) taldi, að sá dómur, sem kveðinn hefði verið upp yfir atvinnumálastjórninni, væri of þungur, miðað við það, sem upplýst væri. Satt að segja hefi jeg ekki felt neinn dóm nema um það, sem fram er komið í málinu. En sá dómur, sem feldur er og feldur verður, er eingöngu bygður á því, sem upplýst er, og það er nægilegt til að sýna og sanna, að landsstjórnin hefir, gagnvart þessu máli, engan veginn staðið í stöðu sinni og annaðhvort vísvitandi eða óafvitandi vanrækt að hafa stjórn þessa fyrirtækis svo, að sæmileg megi kallast, og miðað við eina landsstjórn er óvíst, hvort þetta sje fyrirgefanlegra. Þessi er dómurinn.

En nú getur það verið ýmislegt, sem geti afsakað stjórnina, meðan fyrirtækið var að komast á laggirnar, en er á liður, verða skakkaföllin í rekstrinum alveg óafsakanleg. Jeg vil minna á það, að hæstv. atvinnumálaráðh. gerði ekkert til þess að afsaka, hvers vegna hann gerði sjer ekkert far um að hafa fyrirtækið og stjórn þess í sæmilegu lagi, og hvers vegna hann gerði sjer ekki reglulegt far um, að fyrirtækið bæri sig. Þetta er því upplýst, og viðurkent. Hvernig á að dæma um slíkt ? Ef ekki á að dæma hjer þannig, en draga úr öllu, sýnir það, að dómgreindin er spilt og farin út um þúfur.

Jeg hefi tekið þetta fram með tilliti til þeirrar ályktunar, er Alþingi gerði í fyrra. Sú ályktun gefur ekkert tilefni til, eins og jeg áður hefi tekið fram, að blanda Alþingi inn í rekstur þessarar námu. það mátti segja, að þar til í fyrra sumar væri þetta þingsins sök. Þó ber þess og að geta, að landsstjórnin gaf þinginu engar skýrslur um þetta þá. Jeg fyrir mitt leyti hjelt, að landsstjórnin vissi eitthvað fótum sínum forráð. Þetta var svo ósköp einfalt mál. Hvorki var það utanríkismál nje flókið verslunarmál, heldur einungis að grafa til kola norður á Tjörnesi. Stjórninni átti þó, hversu ljeleg sem hún annars kynni að vera, að vera treystandi til að reka það með forsjá og viti.

Jeg skal ekki fara nákvæmlega út í það, sem hv. þm. (P. J.) færði sem rök fyrir því, hve lítilfjörlegur þessi tekjuhalli væri, að nokkuð hefði tapast í kolaverðsafslætti, sumt væri tíðarfarsins sök o. s. frv. Hann taldi að vísu fleira fram, en jeg dreg það saman. Jeg tel þann mann, sem getur afsakað þetta með öðru eins, nokkuð langt leiddan í fylgi sínu við þá stjórn og það mál, sem um er að ræða. Hv. þm. Stranda. (M. P.) svaraði annars þessum atriðum hjá hinum hv. þm. (P. J.), og þótt hann væri þá ekki viðstaddur, get jeg vísað til þess.

Hann komst svo að orði, hv. þm. S.-Þ. (P. J.), að þótt atvinnumálastjórnin hefði nú tekið þá stefnu í fyrra, að velja hæfa menn til að starfa að og standa fyrir verkinu, þá hefðu engin tök verið á því að „skikka“ vegamálastjóra til að taka málið að sjer. Jeg veit ekki, á hverju hinn hv. þm. (P. J.) byggir þetta, en eftir því, sem jeg veit best, byggir hann það ekki á neinu. Jeg held, að afstaða vegamálastjóra gagnvart þessu máli hafi ekki verið önnur í fyrra heldur en hún var síðastliðinn vetur. Jeg býst við, að hann hafi jafnan hugsað sem svo, að hann væri skyldur til að hlaupa undir baggann er þjóðarnauðsyn krefðist. En jeg hygg, að stjórnin hafi álitið í lengstu lög, að þetta mál væri best komið hjá stjórninni. Þar ætti öllu saman að hrúga, og þar þyrfti ekki sjerfræðinga, þar sem stjórnarráðinu væri skift í þrjár deildir, og einn „sjerfræðingur“ væri í hverri, einn í atvinnumálum, einn í dómsmálum og einn í fjármálum. Þar norður frá væri nóg að hafa verkstjóra, að ógleymdum ráðsmanni og eftirlitsmönnum.

Það hefir sýnt sig í þessu máli, eins og í öðru stórmáli þjóðarinnar, að stjórnin heldur því hjá sjer þar til í óefni er komið og sleppir því ekki úr klóm sínum fyr en það er í þann veginn að fara í hundana. Og þetta er því einkennilegra, sem maður skyldi halda, að stjórn, sem hefir í jafnmiklu að vasast og þessi stjórn, ætti að vera fegin að fá hæfa menn til að stjórna hverju einu, ef tök væru á. En sú er ekki raunin á.

Þá skal jeg að eins geta eins atriðis, sem líka hefir komið fram hjá öðrum hv. þm., en fyrst hjá hæstv. atvinnumálaráðh., að hjer væri ekki að tala um tap fyrir þjóðfjelagið, þótt það væri tap á pappírnum. Við þetta er nú það fyrst að athuga, að svo geta þeir menn einkum ályktað, sem enga sjerstaka ábyrgð hafa. En það er líka varasamt að álykta þannig og skella öllum tekjuhalla yfir á þessa hlið og segja: „Það gerir ekkert til, þótt landssjóður tapi, því að peningarnir fara altaf eitthvað og oft til landsmanna.“ Þetta er nú svo, en ef ráðsmenn þjóðarbúsins hafa þann hugsunarhátt og miða búskap sinn við þessa reglu, þá veit jeg ekki, hvert ræki á endanum. Það er svo um öll fyrirtæki, að fyrst verður að sjá um, að þau beri sig, og síðan má fara að taka tillit til annars. Það hefir nú verið tekið fram, að til þess að reka fyrirtækið vísvitandi með halla, skorti stjórnina algerlega heimild. þess vegna er það ekki afsakanlegt, frá því sjónarmiði.

En þá er annað atriði, sem menn vilja telja að geri það að verkum, að þessi halli verði ekki halli fyrir þjóðfjelagið, það sem sje, að þetta væri fyrirtæki til að veita ýmsum mönnum góða atvinnu.

Satt er það að vísu, að námugröftur þessi hefir veitt mörgum manni atvinnu. En vansjeð er, að þessir menn hafi ekki getað fengið atvinnu annarsstaðar, sje það rjett, sem sagt er, að gengið hafi tregt að fá verkamenn til námunnar, og að stjórnin hafi jafnvel orðið að bjóða mönnum hærra kaup en þeir unnu fyrir áður. Þá er það og athugavert við þetta brask landsstjórnarinnar og uppboð á kaupgjaldi, að atvinnuvegir vorir á sjó og landi standa hallara fæti, þegar fordæmi stjórnarinnar neyðir menn um land alt til þess að bjóða hærra verkkaup sjer til skaða. Það er því varasamt að tala um þjóðarhagsmuni, ef slík uppboð hafa ill áhrif á rjetta kaupgreiðslu í atvinnuvegum vorum.

Áður en jeg vík að hinni rökstuddu dagskrá hv. þm. S.-Þ. (P. J.) vil jeg svara einni spurningu, er hv. þm. Stranda. (M. P.) lagði fyrir nefndina. Hann vildi sem sje fá skýringu á því, við hvað nefndin ætti með orðunum: hverfandi lítill halli.

Í raun og veru var nefndin þeirrar skoðunar, að fyrirtækið skyldi ekki rekið nema það geti borið sig, þó með þeirri athugasemd, er þessi ummæli gefa í skyn. Nefndin vildi ekki sporna við því, að tími ynnist til hinnar síðustu og ítarlegustu tilraunar, sem vegamálastjóri og hinn sænski námuverkstjóri hafa nú með höndum. Forstjórar verksins gera ráð fyrir því, að þessi tími verði harla stuttur og eigi verði haldið áfram rekstri námunnar nema hann geti nokkurn veginn borið sig. Með orðunum „hverfandi lítill halli“, hygg jeg að öll nefndin hafi átt við nokkur þúsund; hún vildi gefa það svigrúm, til þess að hægt væri að gera úrslitatilraunina undir hæfri og ábyggilegri stjórn.

Rökstudda dagskráin frá hv. þm. S.-Þ. (P. J.) gefur eigi tilefni til langrar umræðu. Hún er út í hött og fer alveg fram hjá vitund og vilja þingsins. Þingið hlýtur að líta svo á, að hjer sje einhverju ábótavant; það verður því að setja takmörk fyrir því, hve lengi alt eigi að sitja í gamla horfinu. Dagskráin gerir ráð fyrir því, að alt sje í ágætisröð og reglu. Verði hún samþykt, getur landsstjórnin haft alt í sukki í alt sumar, þrátt fyrir tillögur vegamálastjóra. Þá spornar þingið ekki við óreglunni, en gefur henni þvert á móti undir fótinn.

Í dagskránni stendur: „Má því búast við, að sæmileg reynsla fáist á þessu sumri um það, hversu námurekstur á þessum stað getur borið sig …“ Landsstjórnin hefir því alt liðlangt sumarið til þessarar reynslu. Enn fremur segir svo í dagskránni: „Í því trausti, að landsstjórnin, að fengnum þessum upplýsingum, haldi eigi námurekstrinum áfram með verulegum halla ....“. Þó að alt gangi niður á við, má landsstjórnin samt halda rekstri námunnar áfram með halla, sem að hennar áliti er ekki verulegur, líklega þegar hann er borinn saman við þann halla, sem verið hefir. Það er hið mesta óráð að samþykkja þetta, og frá sjónarmiði þingsins stór hætta, þegar litið er á þá reynslu, sem nú er fengin.

Jeg mun ekki ræða frekar um till. fjárhagsnefndar. Hún er eðlileg og bein afleiðing af þeim gögnum, er fyrirliggja, og hin allra vægasta.