22.05.1918
Neðri deild: 28. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 475 í C-deild Alþingistíðinda. (1898)

51. mál, námurekstur landssjóðs á Tjörnesi

Bjarni Jónsson:

Jeg ætla að leyfa mjer að færa nokkur rök fyrir því, að ábyrgðin á þeim skaða, sem orðið hefir við reksturinn á kolanámunni á Tjörnesi hvíli að minsta kosti eins mikið á þinginu eins og stjórn landsins. Það er yfir höfuð um þetta kolanám að segja, og það ætti að vera kunnugt flestum mönnum, sem til vits og ára eru komnir, að hjer er engin kolanáma, sem borgar sig að vinna undir venjulegum kringumstæðum, og að surtarbrandstekja eða kolanám, hvort sem menn nú heldur vilja kalla það, getur varla verið svo gott, að það borgi sig að reka það, þegar góðar samgöngur eru og siglingar, en undir eins og fer að kreppa að verslun og kol taka að stíga, er eðlilegt, að menn fari að hugsa um það, hvort ekki borgi sig að vinna fram surtarbrand til eldsneytis. Þess vegna var það, að jeg bar fram á þinginu 1916 tillögu um það, að fengnir væru menn til að rannsaka surtarbrandsnámur hjer og skilyrði fyrir slíku starfi. Þessi tillaga var samþykt hjer í deildinni, en Ed. saltaði hana, eða vildi ekki láta hana ganga fram, og af þessu leiddi, að stjórnin gat ekki talið sjer heimilt að útvega mann, annaðhvort frá Svíþjóð eða Þýskalandi, til þeirra rannsókna. Stjórnin taldi sjer ekki heimilt að leggja í þann kostnað, vegna þess að þingið sama sem drap þessa till. Það er því eðlilegt, og getur ekki verið vítavert í þingsins augum, þótt hún legðist það undir höfuð, því að óðara en hún hefði tekið til framkvæmda hefðu margir menn á þingi risið upp og sagt það óleyfilegt, því að þótt till. væri samþ. í annari deildinni, þá væri eftir að samþ. hana í hinni, því að allir vita, að heimild til útgjalda skal ganga í gegnum báðar deildir og tvær umr.íhvorri deild; þetta er því ekkert annað en sem um lög væri að ræða, er samþ. væri í annari deildinni, en feld í hinni. Stjórnin er því með öllu ámælislaus fyrir það, að rannsókn hefir ekki farið fram, en það er hv. Ed. ekki. Jeg hygg nú, að allir muni skilja, að það var hin mesta heimska að láta stjórnina ekki framkvæma þessa tillögu, því að með því hefði verið auðið að komast hjá miklu af þessum skaða, sem orðið hefir.

Þetta var fyrsti liðurinn í röksemdunum fyrir því, að ábyrgðin væri eins mikil á þinginu eins og stjórninni. Nú kemur annar, þingið í fyrra. Kolin stigu í verði, og menn sáu, að nauðsynlegt var að knýja stjórnina til þess að afla eldiviðar innanlands, og var þess vegna lagt til í bjargráðanefnd hjer, og borin fram tillaga um, að heimila stjórninni fje til framkvæmda í þessu efni. Var enginn staður tilnefndur, heldur var að eins nefnd kolataka; var mikil áhersla á það lögð, að til framkvæmda væri tekið, svo að menn stæðu ekki eldiviðarlausir uppi, þegar fram á veturinn kæmi. Endurtek jeg, að það var sorglegt, að rannsókn fór ekki fram, svo að kolataka gæti byrjað með viti, því að hjer var byrjað of seint, svo að ekki var tiltækilegt að vinna nóg kol áður vetur kom. En það var þingsins sök, að stjórnin ekki byrjaði fyr, henni var ekki heimilað það, og eru það afleiðingar af þingsins eigin verkum, sem koma hjer fram. Það er meðal annars afleiðing af því, að menn tóku það ráð að láta vinna að vetrarlagi, því að hvort sem það borgar sig eða ekki, þá er miklu betra að hafa eldivið en að þurfa að standa allslaus, þegar ekki var næg fyrirhyggja frá þingsins hendi til að sjá um, að eldiviður væri til, áður en vetur skall á. En þar sem síðasta þing vildi, að stjórnin ljeti starf að kolanámi, ber það líka ábyrgð á öðrum halla, sem orðinn er, og frá öðru sjónarmiði, og það er höfuðorsökin. Það er það, að þingið vill láta hana byrja á námurekstri, þó að enginn maður kunni hjer neitt að slíkum hlutum, og þó vill þingið ekki taka það ráð, sem jeg hafði stungið upp á árið 1916, að fá hingað hæfan námuverkfræðing til að standa fyrir verkinu, — en einmitt af þessu er aðalhallinn kominn, að menn, sem ekkert kunna að verkinu, taka það að sjer, þrátt fyrir alla samviskusemi hafa menn ekki geta unnið það svo, að vel væri, t. d. að ætla sjer að fara að vinna mókolanámu með sprengiefni, í staðinn fyrir að hafa venjuleg graftól í höndum. Menn kunna nú að vilja spyrja, hvað það mun minni. Kann ske 30.000 krónum, án þess þó að meira vinnist fyrir þeim en mönnum með þau algengu tæki í höndum sem þeir kunna með að fara. En þetta er stjórninni alls ósjálfrátt, því að það var ekki hennar skuld, að þingið sá ekki á rjettum tíma, hvað átti að gera, og varð of seint fyrir, og verður svo að sitja yfir skörðum hlut, af því að menn eru neyddir til að gera eitthvað þegar kemur í vandræði.

Annars veit jeg ekkert frekar um þetta, og er ekki kunnugur þeim mönnum, er ráðnir voru, en jeg heyri sagt, að þessi maður, sem forstöðu veitti í námunni, hafi haft meðmæli fyrverandi vegamálastjóra, og fyrir því var það eðlilegt, að stjórnin rjeði þann mann, er góð hafði meðmæli, og jeg hygg líka, að þeir í stjórninni, er kunnugastir voru hjer í Reykjavík, hafi unnið að ráðningu hans. Um kaupið skal jeg ekkert segja, en mjer er þó nær að hyggja, að fá hefði mátt mann fyrir lægra kaup, þó að mjer vaxi ekki í augum slíkt forstöðumannskaup, ef hann er hæfur, en um þetta vil jeg hvorki afsaka nje ásaka stjórnina, því að það er ekki nema lítill hluti af kostnaðinum, sem í því er fólginn, og altaf verður að borga mönnum eitthvert kaup, og því ekki nema lítill hluti kaupið, sem ofgreitt er. Mjer er ekki kunnugt um, hvernig til hagar í námum, en um skýrslu þessa er það að segja, að hún er ófullkomin og ekkert á henni byggjandi auk þess hefi jeg heyrt greinagóða menn, sem vel þekkja til, segja ýmislegt þar öðruvísi, svo að ekki er á henni að byggja.

Að eins vil jeg geta þess, að hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) taldi hv. þm. S.-Þ. (P. J.) ekki vel bæran til að dæma í þessu máli, og er þá ekki nema rjett, að hv. þm. S.-Þ. (P. J.) fái endurgjald fyrir lítt vinsamleg ummæli sín um Helga bróður minn, og verður það þá á þann hátt, að jeg og bróðir háttv. þm. (P. J.) vorum bekkjarbræður í skóla og nákunnugir. Get jeg því sem vel kunnugur vottað það, að hann var maður greinagóður, og hefi jeg aldrei um hann vitað nje heyrt, að hann hafi nokkru sinni gert annað en það, er rjett var og heiðarlegt í alla staði. — En þó að einkabrjef frá Einari Gunnarssyni, cand. phil., hafi flækst með í þeim plöggum, er nefndin hefir fengið, þá hefði hún átt að skila því, miklu fremur en að birta kafla úr því slitna úr rjettu samhengi, sem vel getur sett alt annan svip á þau ummæli, sem til eru færð.

Það er sjálfsagt rjett, sem hæstv. forsætisráðherra tók fram, að taka verður tillit til kolaverðsins, og eins hitt, að stofnkostnaðinn verður að draga frá, en ekki telja hann til skaða.

Þá kem jeg að tillögu nefndarinnar. Nú stendur svo á, að stjórnin hefir reynt að bæta úr því, sem áfátt var um kolavinsluna. Hún hefir fengið mann frá Svíþjóð, vanan þess háttar vinnu, til þess að hafa umsjón með verkinu. Hann hefir gert ráðstafanir til þess að fá sænsk verkfæri, sem nú eru að eins ókomin, eftir því sem landsverkfræðingurinn tjáði mjer í gær. Stjórnin er því auðsæilega einráðin í að reka námuvinsluna framvegis, svo framarlega sem reksturinn svarar kostnaði.

En hvað er það þá, sem tillagan fer fram á. Ekki annað en það, sem stjórnin hefir nú þegar gert, að eins að því við bættu, að verkinu skuli eigi haldið áfram, nema það geti borið sig. Jeg er ekki í neinum vandræðum með, hvernig skilja beri orðin „hverfandi lítill“. Það er auðvelt að geta sjer til um það. Í þeim felst auðvitað þetta, að stjórnin reki ekki kolavinsluna með verulegu tapi hjer eftir. Tillagan er því algerlega óþörf, þar sem í henni felst ekki annað en það, sem er á allra manna vitorði að gert verður. Hjer er verið að skora á stjórnina að gera það, sem hún er að gera og ætlar að gera. Þetta er að eins tilraun til að sprengja púðurkerlingar hjer í deildinni. En það er ekki bjargráðastefna að skipa stjórninni að leggja árar í bát, og get jeg búist við, að bjargráðanefnd leggist í móti slíku. Jeg veit, að hún hefir verið meðmælt surtarbrandsvinslu í Steingrímsfirði og lagt til, að gerður verði vegarspotti frá námunni til sjávar og að keypt skyldu áhöld til námuvinslunnar fyrir 2.000 kr fjárframlag úr landssjóði. Því tel jeg og sjálfsagt, að gerðar verði frekari tilraunir með Tjörnesnámuna, úr því að allur nauðsynlegur undirbúningur er þegar gerður. Hitt, að hætta þar kolavinslu nú þegar, væri sama sem að leggja eld í húsin.

En um fjárhagshallann, sem kolanámið á Tjörnesi hefir haft í för með sjer, má geta þess til, að hann stafi að nokkru leyti af því, að eigi hafi verið haft nægilega glögt eftirlit með námunni, til þess að hægt hefði verið að ákveða hæfilegt verð á kolunum. En þrátt fyrir það virðist mjer engin tiltök að samþykkja slíka tillögu, er hjer liggur fyrir, sem er að eins marklaus áreitni gagnvart stjórninni, hvort sem háttv. þingdeild vill samþykkja rökstudda dagskrá eða vísa málinu til stjórnarinnar. En nær er þó að vísa þingsályktunartill. til stjórnarinnar heldur en fyrirspurn, sem gerð er til hennar sjálfrar, eins og átti sjer stað hjer á dögunum.

Jeg hygg, að þó ýmislegt kunni að vera ábótavant um rekstur námunnar, þá sje það fremur að kenna ósjálfráðum atvikum heldur en vanrækslu stjórnarinnar, og sjerstaklega að bróðurparturinn hvíli á þinginu fyrir vanrækslu á ráðstöfunum, sem þurfti að gera og samþyktar voru hjer, en svæfðar í hinni deildinni.

En hvort sem þessi ábyrgð er nú mikil eða lítil, ætti hún ekki að valda því, að hætt verði við kolanámið þegar í stað, heldur ætti deildin að herða á vinnunni, en leggja jafnframt ríkt á við stjórnina, að þær vansmíðar, sem verið hafa á námurekstrinum, komi ekki fyrir aftur. Jeg hefði ekki haft neitt á móti, að fundið hefði verið að gerðum stjórnarinnar í þessu máli, ef þeim aðfinslum hefði verið stilt í hóf.

En hjer læt jeg nú staðar numið, því að nú er fremur sókn en vörn af stjórnarinnar hálfu.