23.05.1918
Neðri deild: 29. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í C-deild Alþingistíðinda. (1906)

51. mál, námurekstur landssjóðs á Tjörnesi

Einar Arnórsson:

Jeg hefði aldrei trúað því, að svona mikið eldsneyti væri í Tjörneskolunum. Þetta er 3. dagurinn, sem logar í þeim hjer í deildinni og ekki sjeð fyrir endann á þeim loga enn. það mun mega segja, að það sje þýðingarlaust að ræða um þetta mál lengur. Eftir því, sem komið hefir fram við umr., verður ekki annað sjeð en að skýrsla hv. frsm. (G. Sv.) sje í alla staði rjett. Jeg hefi ekki heyrt að tölur hennar hafi verið vjefengdar og tekjuhallinn er viðurkendur rjettur af hæstv. atvinnumálaráðherra. Hæstv. forsætisráðherra er sá eini, sem reynt hefir að setja dæmið upp öðru vísi. Hæstv. atvinnumálaráðherra gat þess að eins, að ekki væri búið að endurskoða reikningana og við endurskoðunina gætu komið fram einhverjar skekkjur, annaðhvort of eða van. En þetta er svo óveruleg athugasemd, og það getur aldrei orðið um mikinn mun að ræða.

Hæstv. forsætisráðherra virtist byggja helst á því, að kolin væru í raun og veru meira virði en þau hafa verið virt. Jeg þori ekki vel að dæma um þetta. En væri svo, að Tjörneskolin ættu að kosta 100 kr. smálestin við námuna, þá er það áreiðanlega of hátt í samanburði við verð á breskum kolum í fyrra. Hf. „Kol og Salt“ seldi þá sín ágætu „steam“kol á 300 kr. smálestina. Ef Tjörneskolin kosta 100 kr. norður við námuna, þá mundu þau kosta 160—170 kr. hjer. Byggi jeg það á bæjarstjórnarkolunum úr Tjörnesnámunni í fyrra, sem seld voru hjer á 100 kr. smálestin, en keypt þar á 35 kr. Jeg geng út frá að bæjarstjórnin hafi ekki sjeð sjer fært að selja þau hjer undir 100 kr. og hefir því lagt á þau 65 kr. á smálest fyrir flutningskostnaði og rýrnun. Hefði nú verið rjett að selja þessi kol á 100 kr. smálestina, norður við námu, þá hefðu þau áreiðanlega orðið að vera betri en þau voru. Eftir minni reynslu af þeim Tjörneskolum, sem jeg fjekk, þá vildi jeg miklu heldur kaupa bresk kol fyrir 200% hærra verð. Jeg segi ekki, ef kolin væru vel aðgreind, að hlutfallið yrði þá annað; en eins og þau voru, vil jeg miklu heldur þau bresku. En aðgreiningunni var mjög ábótavant. Hæstv. atvinnumálaráðherra má ekki skilja það svo, að jeg kenni honum það persónulega, þó að aðrir ætlist til þess, að þingmenn eða stjórnin sjeu sendir á berjamó; þó ætlast jeg ekki til þess að stjórnin fari norður á Tjörnes að vinsa kol. (B. J.: Jeg er ánægður, ef háttv. 2. þingm. Árn. er sendur á berjamó). Háttv. þm. Dala (B. J.) verður að vera með, ef hann þá má vera að því, vegna fossanefndarstarfsins.

Viðvíkjandi reikningsuppgerðinni, um hús og áhöld á staðnum, þá mun vera erfitt að gera það upp, og líklega kleift að gera það, svo rjett sje. Nefndin hefir ekki talið húsin og verkfærin með til reksturskostnaðarins. Getur þó verið álitamál, hvort svo hefði ekki átt að vera að einhverju leyti. Það er ekki líklegt að kolalögin sjeu svo mikil, að þau endist eins lengi og húsin standa. Eins og kunnugt er, geta hús staðið lengi á Norðurlandi. Að því hlýtur þá að reka, að ekki þurfi lengur að nota húsin og þau verði að rífa niður. Mikið af verði þeirra hlýtur þá að ganga í sjálft sig. Húsið er bygt úr torfi, og fyrir torfverkið fæst auðvitað ekkert, svo það sem verðgildi er í, er ekki annað en timbrið og járnið og glerið, því glerrúður eru líklega í húsunum. Hallinn hlýtur því að verða meiri en hann er talinn, en verð húsanna ekki eins mikið og í þau var lagt. En þetta er atriði, sem ekki er allskostar hægt að kenna neinum um. Fyrst talið var sjálfsagt að byggja, þá hlaut það að hafa kostnað í för með sjer. Og hjá því varð ekki komist, þar sem hugsað var til að hafa þar vetrarvinnu. Hallinn er því líklega meiri en hann er talinn í skýrslunni, eftir því sem komið hefir fram í umræðunum.

Jeg hefi ekki heyrt það tekið fram af stjórninni eða forsvarsmönnum hennar, að hún hafi haft nein reikningsskil í höndum, þegar byrjað var að selja kolin. Því þó eitthvað af þeim kostnaði, sem þá var á fallinn, hafi átt að koma á óupptekin kol, þá hefði þó verið betra að hafa eitthvað fyrir sjer, þegar verðið var lagt á kolin. Þetta er það, sem kaupmenn gera yfirleitt, — og meðal þeirra landsverslunin, — þegar þeir ákveða verð á vöru sinni. Landsverslunin t. d. hefir fyrir sjer reikninga, sumpart alveg uppgerða og sumpart áætlaðan kostnað, sem stafar af því, að hafa keypt vöruna og flutt hana o. fl. Jeg get ekki sjeð annað en að það hefði verið gott og alveg sjálfsagt fyrir stjórnina, að hafa slíka reikninga eða áætlanir fyrir sjer, þegar verðið á kolunum var ákveðið. Jeg efast ekki um, að aðrir, sem tóku upp kol þarna til að selja, bæði Þorsteinn Jónsson og Verkamannafjelag Akureyrar, hafi reynt að gera sjer grein fyrir, hve mikið fje þeir höfðu lagt fram og hafi bygt á því, hve hátt verð þeir skyldu setja á vöruna.

Svo virðist mjer sem stjórnin hafi verið of umburðarlynd og helst til róleg, þegar hún fjekk brjefið frá trúnaðarmanni sínum um ástandið við námuna, hvort sem það nú var einkabrjef, eða ætlast var til að það væri „journaliserað“, það skiftir engu máli. Þegar stjórnin fær lýsingu hans á ástandinu, þá hefði átt að hefjast handa samstundis. Stjórnin gat ekki fyrirfram gengið út frá að skýrslan væri röng, því maðurinn er greinargóður og ekki líklegur til að skýra rangt frá því, sem hann er sendur til að eftirlita. Jeg get ekki sjeð annað en að stjórnin hafi látið málið vera alt of lengi óaðgert. Það er 17. nóv., sem þetta brjef er skrifað, og ekki fyr en 3½ mánuði síðar er vegamálastjóra fengin yfirstjórn alls verksins. Það hefir óneitanlega staðið nokkuð lengi á framkvæmdum í þessu máli, og hefði vafalaust ekki þurft að taka svona langan tíma.

Mikið hefir verið um það talað, að þetta fyrirtæki hafi verið tilraun. Og það er vafalaust rjett, að nokkuð af því, sem miður hefir farið, mætti skrifa á dálk óhepninnar. Stjórnin hefir verið óheppin í vali sínu á mönnum og mennirnir hafa verið óhepnir í starfi sínu. En það er ekki svo auðvelt að greiða alt í sundur. Þegar dæma skal um rekstur námunnar, verður að leita til þeirra, er reksturinn önnuðust, og þá til hinna, sem fyrir verkinu stóðu. Það er að vísu satt, sem sagt hefir verið, að rekstur af hálfu hins opinbera er dýrari en rekstur einstakra manna. En hjer virðist sá munur þó vera mikill. Og hæpið mun vera að segja, að allur sá mismunur stafi af óheppni eða vankunnáttu verkamanna. Hitt mun rjettara, að óhepni valdi að nokkru leyti, en að öðru leyti ráðleysi. Því að ekki virðist það vera sennilegt, að maðurinn, sem fyrir verkinu stóð, hafi verið svo fávitur, að hann veldi ljelegustu mennina til vinnunnar. En ef svo væri, sýnir það, að stjórnin hefir verið í meira lagi óheppin að lenda á slíkum manni.

Þá má nefna fæðupeningana. Þorsteinn kaupmaður Jónsson varði 2 kr. á mann á dag í fæðu. En landsstjórnin ver í það 3.20 kr. á dag, eða 1.20 kr. meira. Ósennilegt virðist, að verkamenn landssjóðs hafi etið því meira en verkamenn Þorsteins, heldur mun hitt sanni nær, að ver hafi verið haldið á fæðu landssjóðs. (H. K.: Þeir hafa unnið meira!). En að hverju? Minni voru kolin miklu, er þeir tóku, að tiltölu. Þó má vera, að landssjóðsfæðan hafi verið að einhverju leyti betri, en fremur mun þessi mikli munur stafa af ráðleysi.

Mjer dettur í hug saga, sem jeg hefi heyrt að norðan og mun vera sönn, að 8 verkamenn frá Akureyri hafi á sama tíma tekið upp jafnmikið kolamagn og 40 landssjóðsmenn.

Þó að saga þessi kunni að vera ýkt, og jeg viti ekki um sönnur á henni, mun hún þó ekki vera gripin úr lausu lofti. Verkin sýna líka merkin. Einstakir menn, sem rekið hafa kolanám, hafa komist klaklaust frá því, en landssjóður hefir beðið stóra-halla. Vinnuskilyrðin hafa verið jöfn; hv. þm. S.-Þing. (P. J.), sem segist vera sanngjarn maður og sífelt leita sannleikans, mundi hafa getið þess í ræðu sinni, ef svo hefði ekki verið; því að auðvitað vill hann líka láta aðra njóta sannleikans.

Jeg skal ekki fjölyrða um till. og dagskrárnar. Jeg hefði getað sætt mig við till. nefndarinnar. Dagskrárnar fara að vísu að efni til í svipaða átt. Dagskrá hv. þm. S.-Þing. (P. J.) sýnist einna óákveðnust. Frá mínu sjónarmiði er engin hætta á að samþykkja till. nefndarinnar, af því að hún taki fyrir kverkar námurekstrinum þegar í stað. par segir, að stjórnin reki ekki námuna nema með hverfandi litlum halla. Í þessu felst, að landsstjórnin eigi að leita fyrir sjer með þeirri stjórn, sem nú er ráðin við námuna. En þegar leitinni er lokið, eigi að afráða, hvort hyggilegt sje, að reka kolanámið áfram. Hjer er að eins ekki sett neitt tímatakmark, eins og í dagskrá hv. þm. A.-Sk. (Þorl. J.) og brtt. En jeg býst við, að í sama stað komi, hvort sem ofan á verður. Jeg hygg, að eftir þá reynslu, sem fengin verður í sumar, verði hægt að ganga úr skugga um, hvort kolanám þetta svari kostnaði.