23.05.1918
Neðri deild: 29. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 531 í C-deild Alþingistíðinda. (1921)
58. mál, harðærisuppbót handa orðabókarhöfundunum
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg vildi lýsa yfir því, að jeg neitaði að veita uppbót þessa, því að jeg áleit það ekki heimilt samkvæmt núgildandi dýrtíðarlögum. Ef till. verður ekki samþykt, geta menn þessir ekki fengið neina dýrtíðaruppbót.