06.07.1918
Neðri deild: 64. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í C-deild Alþingistíðinda. (1963)
112. mál, gistihússauki í Borgarnesi
Einar Jónsson:
Það kemur ekki síst í ljós nú á þessum síðustu og verstu dögum, að sumum þm. er ant um að bera fram hinn og annan óþarfa, af því að þingtíminn er orðinn svo langur, að ekkert nytsamt er lengur til þess að vinna. Ef þessi till. hefði komið fyr fram, mundi jeg hafa verið harðlega á móti henni. En úr því að hún kemur nú fram, er jeg henni siður andmæltur, þó að hún sje alveg hin sama í eðli sínu. Því að jeg álít, að þm. verði eitthvað að gera.
En þrátt fyrir það, álít jeg till. þessa óþarfa og svo ósanngjarna, að hún nái hreint og beint ekki nokkurri átt. Ef landssjóður lánaði fje til gistihúsgerðar í Borgarnesi, gætu fleiri heimtað lán með sama rjetti. En jeg verð að segja það, að þar sem kaupstaðarbúar ferðast út um sveitir, og fá þar gistingu á hverjum bæ, að jeg tel ekki eftir þeim að hýsa þá hina sömu menn, þegar þá ber að garði. Þau eru nú orðin svo mörg þessi smálán og hinar og aðrar styrkbeiðnir, að landssjóður getur ekki staðið sig við að sinna slíku lengur, því að safnast þegar saman kemur. Jeg álít hægt umfangs um þessa till., að setjast niður, tala ekki fleira um hana og greiða atkvæði á móti henni.