08.07.1918
Neðri deild: 65. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í C-deild Alþingistíðinda. (1970)
114. mál, laun tveggja kennara Flensborgarskólans
Sveinn Ólafsson:
Jeg vildi leyfa mjer að minna á, að það lá fyrir þinginu í sumar líkt mál og þetta. Var þar farið fram á, að biðlaun yrðu greidd skólastjóra nokkrum, sem misti stöðu sína á svipaðari hátt og kennarar þessir. Það var skólastjórinn á Eiðum. Till. sú var feld hjer í deildinni með þeim formála — meðal annars —, að landssjóður bæri enga ábyrgð á þeim atvinnumissi, sem skólastjóri varð fyrir. Samræmis vegna ætti þessi till. að sæta sömu forlögum. Hjer hvílir heldur engin skylda á landssjóði. Flensborgarskóli er eign einstakra manna eða hjeraðs, þótt styrktur hafi verið úr landssjóði, eins og Eiðaskólinn. (B. K.: Skólinn er ekki eign einstakra manna).
Mjer virðist því til nokkuð mikils mælst með till. þessari, og eigin ástæða ;til, að landssjóður taki að sjer alla byrðina. Þó mun jeg ekki taka svo þvert fyrir þetta, að jeg greiði till. ekki atkv. til annarar umr.
Nær væri hófi, ef farið væri fram á einhvern hluta launanna úr landssjóði, en hinn aðilinn tæki þá að sjer launin að öðru leyti. Virðist mjer hv. flm. (B. J.) sigurvænlegra að fara þannig að og breyta till. til síðari umr.