15.07.1918
Neðri deild: 71. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í C-deild Alþingistíðinda. (1976)

114. mál, laun tveggja kennara Flensborgarskólans

Frsm. (Magnús Pjetursson):

Jeg hefi í raun og veru ekki neinu við það að bæta, sem stendur í nál., á þgskj. 475. Enn síður kann jeg við að endurtaka hjer neitt af því, sem nefndin hefir á móti því, að þessi till. verði samþ., þar sem hv. flm. (B. J.) og sá maður úr fjárveitinganefndinni, sem eitthvað hefir að segja til meðmæla till., er ekki viðstaddur. Jeg vil því leyfa mjer að stinga upp á því, að hæstv. forseti færi þetta mál aftur fyrir hin málin, sem á dagskránni eru, eða fresti umr. þar til hv. flm. (B. J.) getur verið viðstaddur.