15.07.1918
Sameinað þing: 7. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 587 í C-deild Alþingistíðinda. (1984)
115. mál, heildsala
Sigurður Stefánsson:
Jeg verð í fám orðum að gera grein fyrir, hvers vegna jeg skrifaði undir tillöguna. Jeg skal játa það, að jeg leit fljótlega á hana, en jeg hjelt hana geta orðið til þess, að stjórnin gæti fremur „regulerað“ vöruverðið í landinu, því jeg er alveg samdóma hv. aðalflm. (M. T.) um það, að alt of mikið sje gert að því, hjá einstökum heildsölum, að setja verðið fram úr hófi. Svo var líka önnur ástæða, sem fyrir mjer vakti. Jeg hefi heyrt, að hjer í Reykjavík væri byrjuð sú verslunaraðferð, sem á dönsku er kölluð „Kædehandel“, og er þannig, að varan gengur frá einum kaupmanni til annars, og altaf er lagt á hana við hver skifti, svo að hjá smásalanum er álagningin orðin 100% eða meira. Í Danmörku eru afarháar sektir við þesskonar verslunaraðferð, ef upp kemst. Jeg áleit, að það gæti verið gott, ef stjórnin fengi einhverjar bendingar um þetta, og að till. gæti orðið þörf þeim heildsölum, sem hafa notað sjer dýrtíðina til þess að leggja óhæfilega hátt verð á vörur sínar. En ef þingið samþykti nú till. og skoraði á stjórnina að taka heildsöluna í sínar hendur, þá þarf þingið líka að vita, að landsstjórnin þarf miklu meira fje en nú er í hennar höndum. Þingið veit, að það hefir reynst landsstjórninni fullerfitt að fá það fje, sem þarf til þess að versla með þá vöru, sem hún þegar hefir í sínum höndum. Þess vegna þarf að heimila henni meira fje. Vona jeg, að þetta atriði verði dregið nægilega skýrt fram í umræðunum.
Hv. aðalflm. till. (M. T.), benti á það í ræðu sinni, að samkv. lögum nr. 5, 1. febr. 1917, hefði stjórnin heimildina til þess að taka verslun landsins í sínar hendur. Þetta er rjett hjá hv. þm. (M. T.), og við nánari athugun virðist mjer því ekki ástæða fyrir þingið til þess að grípa fram í með áskorun, því það er ætíð vandasamt fyrir þingið og stjórnina að grípa fram í frjálsa verslun landsins. Til þess þurfa að vera mjög knýjandi ástæður. Jeg álít því, að ekki þurfi þessarar áskorunar með nú, því auk laganna frá 1. febr. 1917 eru nú nýlega samþykt af þinginu lög um, að landsstjórnin hafi vald til að leggja lag á útlendar vörur.
Jeg verð að segja það með hv. þm. Ísaf. (M. T.), að jeg hjelt, að tillagan ætti ekki að geta orðið kaupmönnum úti um land til miska. Því þeir ættu eins fúslega að sæta því, að fá vöruna frá landsversluninni, eins og frá heildsölum, sem leggja fram úr hófi á vörumar. En landsverslunin er ekki alveg saklaus af að hafa gefið kaupm.stjettinni undir fótinn með að leggja heldur freklega á vörur sínar. Það gerði hún einkum fyrst framan af, en nú, síðan nýir menn með meiri verslunarþekkingu tóku við forstjórn hennar, hefir þetta mikið batnað. Og þótt menn beri ef til vill ekki mikið traust til stjórnarinnar í þessu efni, þá má maður þó treysta því, að hún stígi ekki mikilvæg spor í þessu máli nema í samráði við stjórn landsversluninnar. Við nánari athugun hefi jeg því sannfærst um, að það sje nokkuð fljótfærnislegt að bera till. þessa hjer upp, í sameinuðu þingi; það hefði, þegar betur er að gáð, ekki veitt af tveim umr. Í hvorri deild, sjerstaklega þar sem hjer getur verið að ræða um talsvert aukin útgjöld fyrir landssjóðinn.
Það er rjett hjá hv. aðalflm. (M. T.), að Reykjavík hafi hingað til, svo að segja, gleypt vörurnar, svo hart hafi komið niður á mönnum úti um land. En nú hefir heyrst, að tekin verði upp önnur aðferð en áður, vörunum verði dreift á aðrar hafnir, án þess að flytja þær fyrst til Reykjavíkur. Þetta má telja til stórbóta.
Að þessu athuguðu ber mjer ekki annað á milli við hv. aðalflm. (M. T.) en það, að jeg vil láta gefa stjórninni skýra bendingu um það, hvernig hún á að fylgja þeirri heimild, sem veitt er í lögum nr. 5, 1. febr. 1917, og hinum nýsamþyktu lögum frá þinginu, í stað skilyrðislausrar áskorunar, eins og tillagan fer fram á. Jeg skal ekki lá kaupmönnum það, þótt þeir hafi í fyrstu haft beig af landsversluninni. Það er svo eðlilegt, þar sem landsverslunin gat bakað þeim töluverðan atvinnuhnekki, og jeg lít svo á, að stjórnin hafi stundum ekki tekið nægilegt tillit til hags kaupmanna, meðan hún var einráð um verslunina. Hitt hygg jeg komið á daginn, að óvild kaupmanna til landsverslunarinnar sje að miklu leyti horfin síðan núverandi verslunarstjórar tóku við stjórn hennar, og það tel jeg ofmælt hjá þm. Ísaf. (M. T.), að kaupmenn hati landsverslunina. Menn verða að gæta þess að gera ekkert til þess að spilla hinni góðu samvinnu, sem nauðsynleg er milli kaupmanna og landsverslunarinnar á þessum vandræðatímum. Þess vegna eiga menn ekki að gera þar nokkuð að fyrra bragði, sem geti orsakað óvild þessarar stjettar landsins. Jeg álít að vísu kaupmannastjettina hafa gert of mikið veður út af till., en hvað um það, við verðum að reyna að halda við samvinnunni. Jeg hygg ekki verða sagt um kaupmannastjettina, að hún ætli sjer að kúga þing og stjórn, og dettur ekki heldur í hug, að þing og stjórn láti kúgast í neinu. En tillagan er þegar orðin til þess, að kaupmenn sjá nú miklu fleiri drauga í dagsbirtunni en nokkur minsta ástæða er til. Að öllu athuguðu held jeg því, að hinu sama mætti ná, að því tilskildu, að stjórnin hafi fje, án þess að fara áskorunarleiðina. En fjeð verður hún að hafa til þess, því það er ekki sanngjarnt af þinginu að fara þess á leit við stjórnina, sem hún sjer ekki neina leið til að framkvæma, sökum fjárskorts þó að hún hafi alla þá heimild, sem hún þarf, bæði í gildandi lögum og þeim, sem bráðlega verða staðfest. Af þessum ástæðum hefir okkur, nokkrum þingmönnum, komið saman um að leggja fram svo felda rökstudda dagskrá:
„Alþingi væntir þess, að landsstjórnin taki í sínar hendur heildsölu á þurftarvörum, ef nauðsyn krefur og fje er fyrir hendi, svo sem heimild er fyrir í lögum nr. 5, 1. febr. 1917, 2. gr. 4. staflið, og hlutist hins vegar til um, að innflutningsnefnd hafi nú eftirlit með dreifingu þeirra um landið og útsöluverði kaupmanna á þeim, en leyfi eigi ótilhlýðilega mikinn innflutning á öðrum vörum, og tekur svo fyrir næsta mál á dagskrá.“
Undir dagskrána hafa skrifað: Sigurður Stefánsson, Sveinn Ólafsson, Stefán Stefánsson, Einar Árnason, Guðjón Guðlaugsson og Sigurjón Friðjónsson. Vil jeg svo leyfa mjer að afhenda hana hæstv. forseta, með ósk um, að hún verði borin upp til atkvæða.