15.07.1918
Sameinað þing: 7. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í C-deild Alþingistíðinda. (1991)

115. mál, heildsala

Bjarni Jónsson:

Jeg mótmæli því, að slík till. sem þessi, um að reyna að hefta málfrelsi þm. á Alþingi, verði borin undir atkvæði. Slík till. er ósæmileg, og jeg skora á hæstv. forseta að bera hana ekki undir atkvæði, og hv. þm. að fella till., ef hún verður borin undir atkvæði.