15.07.1918
Sameinað þing: 7. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 624 í C-deild Alþingistíðinda. (1996)

115. mál, heildsala

Gísli Sveinsson:

Jeg vil að eins bera af mjer það, sem hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) sagði um mig, sýnilega í því trausti, að jeg fengi ekki orðið til andsvara; það eru þau ummæli, að jeg hafi með fyrri ræðu minni ætlað mjer og verið að „leggja inn“ hjá kaupmönnum, og muni síðar fá eitthvað út á þau orð. Jeg skal geta þess, að jeg hefi hvorki fyr nje síðar, eftir að þessi till. kom fram, talað um þetta mál við nokkurn kaupmann.

Sami hv. þm. (Sv. Ó.) kvartaði undan „köpuryrðum“, sem hann taldi að jeg hefði látið falla í hans garð, og vil jeg því enn fremur láta þess getið, að slík orð viðhafði jeg ekki, þótt jeg væri þungorður um till.; jeg beindi ræðu minni nær eingöngu til hv. aðalflm. till. (M. T.), sem augsýnilega hefir fengið hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) til að skrifa undir með sjer að óhugsuðu máli, enda hann og fleiri horfið frá till. síðar.