18.04.1918
Neðri deild: 4. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í C-deild Alþingistíðinda. (2033)

6. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Forsætisráðherra (J. M.):

Það er sama um þetta mál að segja og hið fyrra, að jeg tel alveg nægilegt að vísa til ástæðnanna fyrir frv., og um leið vil jeg geta þess, að það er í raun og veru eftir áskorun hv. deildar sjálfrar, að þetta mál kemur hjer fram. Jeg get auðvitað ekki fullyrt það, að hv. deild hafi beint ætlast til þess, að tillögur um bætur á launum kennara kæmu fram í frumvarpsformi. En með því að mjög ákveðnar kröfur um hækkun á launum kennara hafa komið fram í þessari hv. deild, þykir mjer eigi þörf á að mæla neitt með þessu frv. Það voru mjög margir hv. þm. í fyrra, er samþyktu þingsályktunartillögu um þetta mál, og vona jeg því, að frv. þessu verði vel tekið; enda hygg jeg, að hver og einn viðurkenni,að það sje hreint og beint minkun, hvernig farið er með barnakennara þessa lands, að því er laun þeirra snertir. Jeg ætla svo ekki að tala lengra um þetta að sinni, en legg til, að frv. verði vísað til hv. mentamálanefndar.