03.06.1918
Neðri deild: 38. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 663 í C-deild Alþingistíðinda. (2049)
12. mál, tekjuskattur og lóðargjöld í Reykjavík
Frsm. (Einar Arnórsson):
Jeg býst við því, að jeg geti verið stuttorður að sinni, þótt málið sje umfangsmikið og vandasamt.
Nefndin hallast að aðalstefnu frv., að niðurjöfnun eftir efnum og ástæðum hverfi úr sögunni, en skattur verði í stað þess lagður á tekjur af atvinnu og eignum, eftir ákveðnum gjaldstiga. Þetta er aðalatriðið. Um hitt getur verið álitamál, bæði um skattstigann sjálfan, og ýms önnur ákvæði í frv.
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir látið 3 manna nefnd undirbúa þetta mál, og síðan hefir stjórnin borið fram þetta frv., er náð hefir samþykki bæjarstjórnar.
Aðalbreytingar allsherjarnefndar eru við 1. gr. frv. Bæjarstjórn Reykjavíkur og landsstjórnin leggja til, að skatturinn byrji á 500 kr. tekjum, og sje þá einn af hundraði, en hækki svo upp í 10 af hundraði, þegar tekjurnar nema meiru en 50.000 kr. Nefndinni fanst þessi skattstigi alls ekki rjettlátur. Þeir, sem hefðu lágar og miðlungstekjur, yrðu að greiða mestan skatt samkvæmt honum, en hinir, sem hærri tekjur hefðu, slyppu óþarflega ljett. Nefndin hefir því lagt til, að gjaldstiganum yrði breytt á þann veg, sem greinir í 2. brtt. á þingskj. 188. Óþarfi mun að skýra þá brtt. nánar; menn geta lesið hana sjálfir, og einnig vil jeg benda mönnum á töflu þá yfir skattinn, eins og hann yrði eftir stjórnarfrv. og eftir brtt. nefndarinnar, sem prentuð er í nál. á þingskj. 187. Á henni geta menn nákvæmlega sjeð muninn.
Jeg játa það fúslega, að till. nefndarinnar um skattstigann geta orkað tvímælis, enda er vandaverk að finna alls kostar rjettláta leið í þeim efnum. Aðalbreytingin yrði sú, að þeir mennirnir, sem hæstar tekjur hafa, greiddu hærri skattt en frv. fer fram á, en hinir tekjuminni lægri skatt.
Aðrar breytingar nefndarinnar eru fæstar jafnmikilvægar sem þessi, og er gerð grein fyrir hverri þeirra um sig í nál. Flestar eru þær breytingar á orðfæri, en færri efnisbreytingar. Refsiákvæðum og málsmeðferðar er safnað saman í eina heild, svo yfirlitið verður gleggra.
Enn hefir nefndin bætt úr einu smáatriði í frv. í 23. gr. frv. er ekkert ákvæði um, hve nær yfirskattanefnd skuli hafa kveðið upp úrskurði sína um kæruatriði, er henni berast. Nefndin hefir sett tímatakmörk fyrir því, í samráði við nefndina í bæjarstjórn Reykjavíkur.
Háttv. þm. S.-P. (P. J.) hefir borið fram brtt. við frv., á þgskj. 277. Lúta þær aðallega að einu atriði í frv. Mun jeg ekki víkja að þeim fyr en hv. þm. hefir skýrt það nánar, hvað í þeim felst.