10.06.1918
Neðri deild: 42. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í C-deild Alþingistíðinda. (2060)
12. mál, tekjuskattur og lóðargjöld í Reykjavík
Hákon Kristófersson:
Mjer er óskiljanlegt, að hv. frsm. (E. A.) skuli leyfa sjer að segja, að sjer þyki það undarlegt, að jeg læt uppi skoðun mína um mál, er liggja fyrir hv. deild. Mál þetta er allmikilvægt, og býst jeg við því, að jeg hafi jafnan tillögurjett um það sem aðrir; þó að tillögur mínar sjeu ef til vill nokkuð veigaminni en tillögur hv. frsm. (E. A.), þá hefir hann alls engan rjett til að furða sig á því, þó jeg láti uppi mína skoðun á þessu sem öðrum málum hjer í hv. deild.