08.05.1918
Neðri deild: 18. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 696 í C-deild Alþingistíðinda. (2063)
38. mál, bæjarstjórn í Reykjavík
Flm. (Jörundur Brynjólfsson):
Þessi breyting á lögum þeim, sem tiltaka, hverjir hafi kosningarrjett í Reykjavík, er að nokkru leyti sniðin eftir því, sem nú tíðkast annarsstaðar, að gjaldskylda til bæjarsjóðs sje ekki skilyrði fyrir kosningarrjetti.
Fyrir þessu þingi liggur frv. til laga um bæjargjöld hjer í bænum, og af því frv. getur leitt, að þeir, sem hafa lágar tekjur og þungt heimili fram að færa, verða ekki útsvarsskyldir, og missa þá kosningarrjett sinn í málefnum bæjarins, sje ákvæðum gildandi laga um það efni ekki breytt.
Þess vegna er svo ákveðið í þessu frv., að allir skuli hafa kosningarrjett, sem náð hafa lögaldri og yfirleitt uppfylla þau skilyrði, sem sett eru þessu viðvíkjandi, þótt ekki greiði þeir útsvar til bæjarsjóðs.
Um hitt atriðið, að strika skuli þann út af kjörskrá, sem ekki hefir greitt það útsvar, sem honum er gert að greiða, er það að segja, að það er sett hjer til þess að reyna að tryggja það, að þeim, sem er gert að greiða útsvar og geta það, greiði það á nokkurn veginn rjettum tíma til bæjarsjóðs. Sje einhverjum gert að greiða útsvar, en hann vegna erfiðra kringumstæðna getur ekki greitt það, þarf hann engin rjettindi að missa fyrir þetta ákvæði, því hann þarf ekki annað en fá það eftirgefið hjá bæjarstjórn. Það eru að vísu til lagafyrirmæli um að ná gjaldinu á annan hátt, en þau hafa ekki reynst einhlít til þess að fá fjeð á rjettum tíma, enda er enginn misrjetti beittur, þó lagt sje að honum að greiða lögboðin gjöld á rjettum tíma. Þetta ákvæði verður því að eins til þess, að menn láti sjer frekar ant um að greiða gjöld sín í bæjarsjóð.
Þá er eitt atriði í þessum lögum, að þeir menn, sem staðið hafa í skuld við sveitarsjóð, fái að kjósa, ef þeir hafa greitt skuld sína eigi síðar en tveim dögum fyrir kjördag. Það virðist svo, sem öll sanngirni mæli með þessu, enda eru svona ákvæði fyrir í lögum hjer á landi, t. d. í Hafnarfirði.
Þá er og það ákvæði með öllu rjettlátt, að leyfa konum, sem giftar eru, að neyta kosningarrjettar síns, jafnvel þó að menn þeirra hafi ekki staðið í skilum um lögmæt gjöld sín og þess vegna verið strikaðir út af kjörskrá. Það má teljast órjettmætt að láta sök mannsins bitna á konunni, sem getur ef til vill engu um það ráðið.
Önnur atriði er ekki þörf að minnast á. Frv. er borið fram samkvæmt vilja bæjarstjórnar.
Að lokum geri jeg það að till. minni, að málinu verði vísað til allsherjarnefndar, að umr. lokinni.