28.05.1918
Neðri deild: 33. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 708 í C-deild Alþingistíðinda. (2076)

69. mál, skipun læknishéraða o. fl.

Einar Jónsson:

það getur verið, að jeg hafi skaðað sjálfan mig á að hlusta ekki á það, sem hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) sagði, en jeg skrapp fram á ganginn, og þar var því hvíslað að mjer, að hann væri eitthvað að glepsa í mig, og nú mun jeg svara því, sem jeg heyrði. Hann sagði, að jeg væri einn af þeim, sem komist hefðu í klipu, er jeg greiddi atkv. móti hækkum á taxta lækna, en jeg viðurkenni ekki, að jeg sje það. Það var með eigin sannfæringu gert að fella taxtahækkunina, og þessu fylgdi jeg af eigin sannfæringu. Það er ekki hægt að segja, að rjett sje að hækka taxta lækna um helming, af því að í hóp þeirra, sem sjúkir geta orðið og sækja þurfa lækni, sjeu ríkir menn, því það sannar ekkert. En hinu er ekki hægt að mótmæla, að þeir, sem búa fjær, verða með því að borga miklu meira en þeir, sem búa nær. Jeg álít þau orð, sem jeg heyrði í ræðu hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), ekki sanngjörn, og jeg held minni skoðun, hvort sem hann er nær mjer eða fjær. Hann vildi halda því fram sem sjálfsögðu, að launakröfur annara embættismanna hlytu að fara á eftir þessari launabót, en þetta fær mín skynsemi ekki gripið, því það er mín sannfæring, að læknar sjeu ver launaðir heldur en allir aðrir embættismenn landsins, þegar tekið er tillit til þess, hversu staða þeirra er bindandi og vandasöm, svo að þeir mega jafnvel aldrei um frjálst höfuð strjúka og eiga von á því á hverri nóttu, og hvernig sem viðrar, að vera rifnir upp úr rúmunum. Það er t. d. nokkuð vandasamara fyrir lækninn að gera erfiðan uppskurð heldur en fyrir lögfræðinginn að skrifa eitthvert „öfugt pródukt“. Auk þessa er þess að gæta, að dýrtíðaruppbót lækna kemur alls ekki fram á öllum launum þeirra, heldur að eins á föstu laununum, og það eitt gerir það sanngjarnt að veita þeim hærri laun heldur en öðrum. Jeg mótmæli því enn þá einu sinni, að jeg sje í nokkurri klípu út af fyrri afstöðu minni til frv. um taxtahækkunina, því það, sem jeg hefi gert, hefi jeg gert með eigin skynsemi, og hana þarf jeg ekki að kaupa af hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.).