28.05.1918
Neðri deild: 33. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í C-deild Alþingistíðinda. (2077)
69. mál, skipun læknishéraða o. fl.
Matthías Ólafsson:
Jeg hefi ekki gerst meðflutningsmaður að þessu frv. af því, að jeg hafi álitið það betra heldur en frv. það um hækkun á taxta lækna, sem deildin var svo skammsýn að fella fyrir nokkru, heldur af hinu, að jeg hefi talið sjálfsagt að ráða einhverja bót á kjörum þeirra. Sömuleiðis heyrðist mjer það á sumum hv. þm., er frv. um taxtahækkunina var til umr., að þeir í raun og veru væru ekki á móti því að bæta kjör lækna, heldur væru þeir á móti þeirri meginreglu, sem það frv. gerði ráð fyrir.
Því getur auðvitað enginn neitað, að frá sjónarmiði landssjóðs er þetta frv. miklu verra en hitt, og yfirleitt væri það best að bíða með alt launamálið þar til ófriðurinn er úti, en þó er nú svo ástatt um einstaka menn, að óhjákvæmilegt er að bæta laun þeirra eitthvað, og á þetta sjerstaklega við um læknastjettina. Jeg hefi því, með jafnvel samviskunnar mótmælum, sjeð mjer skylt að styðja þetta frv., af því að deildin var svo óvitur, að víkja af þeirri braut, er málið var komið inn á, er það kom frá læknafjelaginu. Ef ekki verða að einhverju leyti bætt kjör lækna hjer á þinginu nú, og þeir hefjast ekki handa, þá er það að eins sönnun þess, að landssjóður hefir kvalið þá svo mikið, að þeir geti ekki hætt. Væri jeg t. d. læknir, mundi jeg óðara beiðast lausnar, og ef mín yrði vitjað eftir það, þá mundi jeg auðvitað fara, en hvað jeg tæki fyrir, það kæmi mjer einum við.
Mjer er algerlega sama um, í hvaða nefnd málinu er vísað, aðra en fjárveitinganefnd, því henni er ekki láandi, þó hún vilji ekki hafa þetta mál til meðferðar, þar eð hitt frv. sætti annari eins meðferð og raun ber vitni um. Og jeg veit, að ekki er öllu meiri skapstillingamaður til hjer á þingi heldur en formaður þeirrar nefndar, hv. þm. S.-Þ. (P. J.), og þar sem hann hefir lýst því yfir, að sjer væri illa við að eiga nokkuð við þetta frv., þá vil jeg ekki gera honum það á móti skapi að vera því meðmæltur, að málinu verði vísað til þeirrar nefndar.