30.05.1918
Neðri deild: 35. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 717 í C-deild Alþingistíðinda. (2088)

76. mál, sala á prestsmötu

Flm. (Bjarni Jónsson):

Jeg vildi leyfa mjer að biðja hv. deild að lofa málinu að fara til 2. umr., og vísa því til allsherjarnefndar. Það er sá besti verustaður, sem hægt er að fá fyrir þesskonar mál. Enda er mjer sagt, að alt, sem lýtur að lögum, eigi þangað að fara. Annað ætla jeg ekki að segja að þessu sinni.