14.05.1918
Neðri deild: 22. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í B-deild Alþingistíðinda. (21)

4. mál, almenn dýrtíðarhjálp

Sigurðar Stefánsson:

Það er nú kann ske synd að lengja hjer umr. mikið, framar en orðið er, en þó vildi jeg gera grein fyrir skoðun minni, sem vitanlega kemur fram í nál. meiri hl. og till., sem jeg hefi þó nokkuð unnið að.

Jeg hjó eftir því hjá hinum hæstv, fjármálaráðh , að till vor meiri hl. lægi í öðru „plani“ en stjórnarfrv. Þetta er hárrjett athugað hjá hinum hæstv. fjármálaráðh. Það, sem fram hefir farið í málinu, er þetta, að meiri hl. gengur út frá alt öðru ástandi en stjórnin. Þótt svo sje um mælt í stjórnarfrv. og stjórnin segi, að þetta eigi þá fyrst að gera, er um verulega neyð sje að ræða, þá hefir það þó heyrst í þessum umr., bæði frá hæstv. stjórn og einstökum þm., að þeir vilji sumir veita styrk, þótt þessi „verulega neyð“ sje í raun og veru engin veruleg neyð. Þeirra stefna er að hjálpa áður en veruleg neyð er komin eða vofir yfir. En meiri hl. vill ekki gera, og telur sig ekki geta gert, ráðstafanir til hallærishjálpar, fyr en um veruleg neyð, eða (á góðri íslensku) verulega hungursneyð er að ræða. Tilgangur meiri hl. er að koma í veg fyrir, að nokkur deyi úr hungri á Íslandi.

Þetta ætti öllum að vera ljóst. Og það ætti líka að vera ljóst fyrir mönnum, að um það er ekki að deila, að meiri hl. er á rjettri leið, er litið er til fjármálaástands vors. Tjáir ekkert að vitna í nágrannaþjóð vora, Dani. Þar eru bankar fullir fjár og auðmenn á hverri þúfu. Hvorugu er hjer til að dreifa. (E. A.: Hvorutveggja). Nei, hjer eru ekki fullir bankar, og á Íslandi eru engir auðmenn í samanburði við það, sem er í Danmörku.

Tilgangur hæstv. stjórnar, að hjálpa, þótt ekki sje um verulega neyð að ræða, væri nú samt góðra gjalda verður, ef vjer hefðum nóg fje. En eftir efnahagnum verður vjer að sníða stakk vorn í bjargráðaráðstöfunum, eins og öðrum ráðstöfunum á þessu þingi.

Nei, svo er guði fyrir þakkandi, að enn hefir ekki borið á verulegu hungri á Íslandi. Jeg las það í frjettaskeyti í dag, að svo væri nú ástandið í einni af stórborgum heimsins, St. Pjetursborg, að þar væru etnar rottur, mýs og hundar. Hugsum oss, að í slíkt óefni kæmi á Íslandi. Þá er jeg hræddur um, að gryntist á landssjóðnum, ef hann hefði byrjað með stórum fjárframlögum, áður en um nokkra verulega neyð er að ræða.

Það er athugandi í þessu máli, góðir menn, að hungruðum manni stendur alveg á sama, hvort hann fær 10 krónur að láni eða gjöf. í því augnabliki er honum um það eitt að gera að bjarga lífi sínu, en það er ekki sama fyrir þjóðfjelagið, því að þessi sami maður, sem þann dag lá við að deyja úr hungri, hann getur innan skamms tíma orðið vel fær um að borga þær aftur, og jeg er viss um, að margur maðurinn er svo skapi farinn, að honum er kærara að borga aftur, þegar bann getur, en að hafa fengið þessa peninga sem nokkurskonar óafturkræfan sveitarstyrk.

Þetta ber að athuga, þegar verið er að ræða um lán eða styrk. Og fyrir þjóðfjelagið skiftir það ákaflega miklu, að við getum vel verið svo settir, hvað atvinnuveginn snertir, þegar hallærinu linnir, að alt verði borgað og borgað með glöðu geði, og er þá nær fyrir landssjóðinn að fara heldur þá leiðina að lána, eins og meiri hlutinn vill. En það virðist nú helst vaka fyrir stjórn vorri, að það eigi að gefa hálfa miljón áður en nokkur neyð er fyrir hendi. Því hefir verið varpað fram, að meiri hlutinn vildi setja „sultarstimpil“ á þjóðina. Þetta er á engum rökum bygt. Það er hvorki meiri hlutinn nje Alþingi, sem setur þann stimpil á þjóðina, heldur hinir erfiðu tímar, eða ranglæti tímanna, sem nú drotnar í heiminum. En jeg vil þó segja, að sá stimpill sje fremur settur á þjóðina með því að ausa út hundruðum þúsunda króna í styrkveitingár, áður en nokkur veruleg neyð er fyrir hendi, með því að veita bráðabirgðalán, sem fullar líkur eru til, að landsmenn geti borgað, er í ári batnar. Af þessum ástæðum verð jeg að halda fast við þá leið, sem meiri hluti nefndarinnar vill fara.

Hæstv. fjármálaráðherra endurtók þá staðhæfing í ræðu sinni, að skilyrði meiri hlutans fyrir hjálpinni væru svo hörð, að hún mundi alls ekki koma að tilætluðum notum, en í hinu orðinu sagði hann, að verið væri að teyma almenning út á lánabrautina með tillögum meiri hlutans. Ef þetta er ekki mótsögn, og hún afskapleg, hjá hæstv. fjármálaráðherra, þá veit jeg ekki, hvað mótsögn er.

Hæstv. forsætisráðherra (J. M) tók það rjettilega fram, að þessi lánaleið gæti verið hættuleg, en hjer er, eins og háttv. 1. þm. G. K. (B. K) tók fram, ekki að ræða um nema bráðabirgðalán. Ef veita þarf lán á lán ofan, þá getur auðvitað farið svo, að örðugt verði um þær fjárreiður, en ef landið verður ekki fært um að veita mönnum lán, þá verður það ekki færara um að veita mönnum fjárstyrki, kann ske svo að milljónum skifti, og jeg veit ekki heldur, hvernig Alþingi getur „forsvarað“ slíkar fjárveitingar áður en veruleg neyð er fyrir hendi. Hitt getur það miklu fremur „forsvarað“, að láta tímann sýna það, hvort landsmenn geta ekki endurborgað það síðar, sem þeir urðu að fá að láni meðan verst gekk. Jeg undirstrika það, að nú er engin veruleg neyð á Íslandi í samanburði við það, sem er í öðrum löndum, eða jeg hefi það að minsta kosti á tilfinningunni.

Þá hefir líka verið mikið talað um það, hve það væri óviðurkvæmilegt og óþarft að setja þetta eftirlit, sem háttv. meiri hluti nefndarinnar fer fram á. Það er nú svo. Meiri hlutinn telur þinginu skylt að láta rannsaka, svo gaumgæfilega sem kostur er á, þörf bæjar- og sveitarfjelaganna á þessum lánum, áður en þau eru veitt, og þegar ekki er um meiri kostnað að ræða af þessu eftirliti, þá virðist mjer, að ekki sje gerandi svo mikið veður út úr því, eins og hjer er gert.

Háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) hjelt, að þessir eftirlitsmenn myndu ekki geta gert annað en að fara til bæjar- eða sveitarstjórnanna og leita upplýsinga hjá þeim, en þótt ekki væri um meira eftirlit að ræða, þá væri það ekki einkisvirði; það eitt, að bæjar- og sveitarstjórnir eru háðar eftirliti óviðkomandi manna, sem hafa vald til að rannsaka alt ásigkomulag bæjar- og sveitarfjelaganna, getur haft töluverð áhrif á kröfur þeirra til dýrtíðarhjálpar frá landssjóði, enda er jeg viss um, að það er rjett, sem hv. framsm. meiri hlutans (P. J.) tók fram, að þessir eftirlitsmenn geta gert mikið gagn, — jeg tala nú ekki um lítil hreppsfjelög úti um land; þar er það ljett verk að kynna sjer hvert einasta heimili. (E. A.: Það eru ekki allir hreppar litlir). Nei, en ef það verður nú, sem jeg geri ráð fyrir, að allir hreppar taki ekki þessi lán, þá bera hinir hrepparnir í sýslufjelaginu sinn hluta af eftirlitskostnaðinum. En þetta er sem sagt gert til þess, að hið opinbera geri alt til þess, að þessari litlu hjálp verði ekki dreift um of og hún komi ekki niður á óverðuga staði. Í sambandi við þetta skal jeg geta þess, að einn skilorður maður sagði mjer, að það hefði verið gengið á eftir mönnum hjer í Reykjavik með að taka dýrtíðarkolin með hinu niðursetta verði, mönnum, sem hefðu haft 5—6 þús. króna tekjur á ári. Þetta er ekki sagt stjórninni til lasts, heldur til að benda á, að slík dæmi mætti kann ske finna víðar, ef eftirlitið væri ekki meira en verið hefir; þess vegna er það nauðsynlegt og gott að hamla upp í móti svona lagaðri misbrúkun, en það verður best gert með því að tryggja sem öruggast eftirlit Jeg er líka viss um, að flestar sveitarstjórnir munu ekki telja virðingu sinni misboðið með þessu eftirliti, heldur jafnvel taka því fegins hendi, þótt Reykjavík sje má ske á öðru máli.

Jeg skal svo ekki lengja umr. meira að sinni; þær eru nú líka orðnar svo langar. Jeg skal þó taka það fram, að hefði landssjóður nóg fje, svo að hann gæti hjálpað mönnum frá að komast í ítrustu neyð, með styrk í þarfir atvinnuveganna, þá væri það mjög æskilegt, en jeg vona, að allir sjái, að það er landssjóði með öllu ómögulegt, eins og fjárhagur hans er nú.