25.06.1918
Neðri deild: 55. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í C-deild Alþingistíðinda. (2134)

105. mál, bráðabirgðalaunaviðbót til embættismanna o. fl.

Frsm. (Matthías Ólafsson):

Það er sama að segja um frv. þetta og hið næsta á undan, að jeg hefi ekki að sinni miklu við greinargerðina að bæta. Það er margt, sem um málið má segja, en jeg geymi mjer það, af sömu ástæðum og í hinu málinu, og óska því, að frv. verði nú vísað til 2. umr.