28.06.1918
Neðri deild: 58. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í C-deild Alþingistíðinda. (2140)

105. mál, bráðabirgðalaunaviðbót til embættismanna o. fl.

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg ætla ekki að tala margt um þetta launamál að svo stöddu. Mjer sýnist hálf óþarft frá sjónarmiði stjórnarinnar að gera annað en þakka fjárveitinganefnd fyrir yfirferð hennar á þessu máli.

Mjer virðist augljóst, að nefndin hafi reynt að skýra málið mjög vel fyrjr sjer, á ekki lengri tíma, og komist að þeirri niðurstöðu, eins og hv.-frsm. (M. Ó.) tók fram í gær, að taka á annan bóginn tillit til sanngjarnra krafa embættismanna og á hinn bóginn að fara eigi lengra en von væri um að till. hennar næðu fram að ganga.

Jeg skal ekki fara út í það, hvort launakjör embættismanna eru orðin verri en annara starfsmanna, sem vinna í þágu annara. Jeg treysti hv. fjárveitinganefnd til að standa fyrir málinu að því leyti, er til hennar kemur. Till. hennar eru þannig vaxnar, að mjög auðvelt er að verja þær. Þess vegna hygg jeg, að allar brtt. sem fram hafa komið við frv. nefndarinnar, sjeu óþarfar og jafnvel verri en óþarfar. Því að þær breyta því jafnvægi, sem hv. nefnd áleit að yrði að vera í þessu máli. Nefndin hefir reynt að gera ljósa grein fyrir, hvað rjett væri í þessu máli, en brtt. yfirleitt grípa, inn í til þess að spilla og rugla grundvelli nefndarinnar.

Jeg vona þess vegna, að þær brtt. nái ekki fram að ganga, sem raska þessu jafnvægi hv. nefndar. Og sjerstaklega vona jeg, að aðalbrtt. brtt. hv. þm. S.-M. (Sv. Ó.), sem fara fram á að reikna ekki þessa uppbót alveg fyrir sig, verði ekki samþyktar, því að þær breyta gersamlega tilgangi nefndarinnar.

Jeg býst líka við, að hv. nefnd muni sýna fram á, að það sje gersamlega rangt að segja, að þeir sjeu margir, sem út undan verði, ef þetta frv. verði samþykt, því þeir eru víst mjög fáir starfsmenn landsins, sem ekki hafa, eða munu fá, beinlínis uppbót á launum sínum, utan dýrtíðaruppbótarinnar. þeir, sem aðallega koma til mála og ekki eru nefndir hjer, eru símamenn, póstmenn og starfsmenn stjórnarráðsins. Hjer í hv. deild liggja nú frammi till. um endurbætur á launum símamanna, og býst jeg við því, að þær verði samþyktar. Póstmenn fengu nokkra leiðrjetting mála sinna í fyrra, og laun starfsmanna stjórnarráðsins voru ekki fastákveðin. Því var lýst yfir af fjárveitinganefnd í fyrra, að launa þyrfti þeim eftir þörfum, og hafa laun þeirra því nú þegar verið bætt. Jeg hefi því ekki komið auga á, að margar stjettir manna hafi orðið út undan, aðrir en sýslumenn, en jeg geri ráð fyrir, að athugað verði í hv. Ed. um uppbót til sýslumanna.

Þá hefði jeg síður kosið, að hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) skyldi fara að færa fram sem meðmæli með brtt. sinni, að laun lækna myndu hækka, því jeg þykist þess viss, að læknum mun engin þægð vera gerð með því að fá 75 kr. upp á kostnað annara. þetta verð jeg því að álíta ,mjög svo vandræðalega vörn hjá hv. þm. (Sv. Ó.).

Þá skal jeg láta þess getið, án þess að fara mikið út í það mál, að jeg hefi oft heyrt því haldið fram, að opinberir starfsmenn þessarar þjóðar væru svo margir, að tiltölulega væru þeir ekki eins margir hjá nokkurri annari þjóð. Í þessu efni held jeg að hv. þm. (Sv. Ó.) fari villur vegar. (Sv. Ó.: Ónei). Mig minnir ekki betur, en að jeg hafi lesið ritgerð eftir lærðan mann í þessum efnum, mann, sem ekki er álitinn að vera sjerstaklega eyðslusamur á fje landsins, þar sem hann var að ræða um þessa gömlu sögu, og í þessari ritgerð minnir mig, að hann hafi sýnt fram á, að tiltölulega væru fleiri opinb. starfsmenn t. d. í Danmörku heldur en hjer, þó ekki væru reiknaðir með embættismenn hers og flota. Þó mig ef til vill rangminni þetta, þá er það að minsta kosti áreiðanlegt, að ef teknir eru allir embættismenn annara þjóða, þá er þessi staðhæfing hv. þm. (Sv. Ó.) ekki rjett. Jeg skal svo ekki fara frekar út í þetta atriði, því jeg hefi ekki ábyggiilegar tölur að styðjast við að svo stöddu. Annars þykist jeg ekki þurfa að verja gerðir nefndarinnar, því þær gera það best sjálfar. Jeg hefði kosið að hún hefði getað verið nokkuð ríflegri, en jeg skil, að hún hefir sjeð, að ekki mundi þýða að fara lengra, ef hún vildi gera sjer vonir um, að frv. næði fram að ganga.

Jeg hefi borið fram brtt. á þingskj. 400, og taldi jeg það skyldu mína að koma fram með hana. Þessi brtt. fer fram á það, að dagkaup þingmanna verði hækkað, eins og laun annara starfsmanna landsins hafa verið hækkuð. Jeg tel það sem sje óþarfa feimni, og finst það næstum bera vott um lítilsvirðingu fyrir starfinu, ef þm. álíta, að þeir ættu að hafa minna kaup en óbrotnir verkamenn. Um það skal jeg ekki deila, heldur láta hv. þm. um það, hvort þeim finst sú hækkun, sem farið er fram á í brtt., vera of há. Jeg vissi, að sumum hv. þm. fanst uppbótin vera helst til of mikil, en það verð jeg að segja, að jeg bjóst ekki við, að farið yrði svo langt frá minni tillögu, eins og raun ber vitni um á þingskj. 413, heldur bjóst jeg við, að farinn yrði meðalvegurinn milli mín og þessarar tillögu, og uppbótin yrði ákveðin 40%. Annars legg jeg enga áherslu á %-hæðina, en það vil jeg þó segja, að þar sem á þessum tímum er varla hægt að fá mann til þess að standa fyrir lítils háttar vinnufyrirtæki fyrir minna en 15 kr. á dag, þá skil jeg ekki, að þm. eigi að vera borgað minna fyrir starfsemina en jeg fer fram á, enda hefi jeg oft heyrt greinda bændur tala um það, að þeir hefðu altaf skaða af þingsetunni. Jeg held ekki, að þm. sjeu ofhaldnir af þessari borgun, þó engin dýrtíð sje, og yfirleitt ættu dagpeningar þm. aldrei að vera minni en 15 kr. Hvort mönnum sýnist, að borga eigi þm., sem búsettir eru í Reykjavík, minna heldur en þm. utan af landi, skal jeg láta ósagt. Jeg hefi heyrt marga þm. utan Reykjavíkur tala um, að þeim sýndist engin ástæða til þess að gera upp á milli þingmanna búsettra hjer eða utan bæjarins. Mjer fyrir mitt leyti finst þó dálítil sanngirni mæla með því, að svo sje gert, og að minsta kosti er ekki eins brýn þörf á að bæta laun þeirra þm., er eiga hjer heimili, og hinna, sem búa utan bæjar, En þó þessi sje nú skoðun mín, þá vildi jeg þó ekki koma með tillögu um annað en að hækkunin gengi jafnt yfir, því jeg hafði heyrt utanbæjarþingmenn segja það, að þeir kynnu ekki vel við, að munur yrði gerður. Jeg mun því ekki mæla neitt á móti brtt. hv. þm. N.-Ísf. (S. St), enda legg jeg aðaláhersluna á það, að kaup þeirra þingmanna verði hækkað, sem heima eiga utan Reykjavíkur, því þeir hljóta að verða harðast úti. Jeg vildi gjarnan skjóta því til flutningsmanna brtt. við mína tillögu, hvort þeir gætu ekki sætt sig við að hækka um 40% í stað 30%, því að það mundi jeg fyrir mitt leyti gera mig ánægðan með. Jeg held ekki, að 14 kr. sje of hátt kaup fyrir menn utan af landi, og jeg sje ekki verulega ástæðu til þess að hafa það minna.

Að svo stöddu finn jeg ekki ástæðu til að lengja umr., því þetta mál hefir verið rætt mjög mikið, og munu þingmenn eflaust hafa áttað sig á því, hvernig þeir greiða atkvæði sitt.