28.06.1918
Neðri deild: 58. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 824 í C-deild Alþingistíðinda. (2156)
105. mál, bráðabirgðalaunaviðbót til embættismanna o. fl.
Magnús Pjetursson:
Það er að eins örstutt athugasemd, áður en gengið er til atkvæða, sem jeg gleymdi að taka fram þegar jeg talaði síðast. Þó brtt. hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) komi sjerstaklega að notum okkur læknum, með þessari 75 kr. bót, þá verð jeg að lýsa því yfir, að jeg mun greiða atkv. á móti frv. ef hans brtt. verða samþyktar. Jeg lít svo á, að frv. sje þá orðið það kák, sem við getum ekki verið þektir fyrir að láta frá okkur fara.