01.07.1918
Neðri deild: 60. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 838 í C-deild Alþingistíðinda. (2164)
105. mál, bráðabirgðalaunaviðbót til embættismanna o. fl.
Sigurður Stefánsson:
Jeg hefi ekki eytt tíma þingsins til þess að tala um þetta mál, en hitt kemur mjer ekki á óvart, þó að gangur málsins verði eins og raun er á orðin. Þegar í byrjun þingsins ljet jeg þá skoðun í ljós, að heppilegasta leiðin í þessu máli væri að hækka dýrtíðaruppbótina frá því, sem nú er í gildandi lögum; þessu hreyfði jeg líka á fyrstu fundum fjárveitinganefndarinnar. En henni leist nú að fara aðra leið, eins og frv. ber með sjer. En sú leið er í mínum augum lítt fær, þótt jeg hafi ekki beint viljað skiljast við nefndina á þessari launauppbótarbraut hennar, sem jeg tel vanta traustan grundvöll, eða öllu heldur allan grundvöll. Þess vegna er það komið á daginn, að fjárveitinganefndin hefir sloppið nokkuð oft í, á þessum vonda vegi. Það getur ekki talist ábyggilegur grundvöllur, þegar teknir eru af handahófi hinir og þessir embættismenn og starfsmenn landsins, án þess að tekið sje fult tillit til mismunandi launa þeirra. Nefndin hefir neyðst til að sletta 500 kr. í þá allflesta, hvort sem þeir eru í hærri eða lægri launaflokki. Í rauninni hefði þetta þing, sem er aukaþing, ekkert annað átt að gera en athuga launafrumvarp það, sem frá stjórninni kom, því að það er ekki skylda þingsins að eiga frumkvæði að máli sem þessu, úr því að stjórnin fann það ekki skyldu sína.
Stjórnin fann ekki ástæðu til að eiga neitt við þetta launamál, annað en að koma með eitt einasta frv., sama frv. sem þingið feldi í fyrra. En af því að nefndin fór inn á þessa handahófsuppbótarbraut, varð aðstaða hennar afarerfið; í hana var kastað erindum, bæði frá stjórninni og einstökum mönnum, og átti hún að kara alla þessa kálfa, sem í hana var fleygt. Jeg skal þó ekki lasta nefndina fyrir það, þótt hún hafi lagt út á þá braut, sem enginn endir ætlar á að verða, því að sífelt drífa að brtt. hvaðanæfa, um uppbætur fyrir þessa eða hina embættismenn og starfsmenn, sem nefndin hefir slept. Jeg hefði því heldur viljað taka dýrtíðarlögin til endurskoðunar og reyna að bæta hlutfallslega laun, ekki sumra, heldur allra starfsmanna landsins, og án tillits til þess, hvort þeir eru hátt eða lágt í embættis- eða starfsmannastiganum. Hvort mennirnir hafa einhver aukastörf með höndum, sjer til lífsbjargar, á hjer ekki að koma til greina, standi þeir forsvaranlega í stöðu sinni fyrir landið.
Jeg held, að jeg hafi oft tekið það fram í nefndinni, að úr því að við göngum út á þessa braut, gætum við búist við, að allir embættismenn landsins kæmu til sögunnar með rjettmætar kröfur til einhverrar uppbótar, og það er í raun og veru sjálfsagt, því að þeim, sem slept er, er sýnt hróplegt ranglæti, úr því að nokkrir eru teknir.
Jeg verð að segja það, að jeg ber hag landssjóðs fyrir brjósti eins mikið og hver annar hjer á þingi, en þrátt fyrir það vil jeg vera sanngjarn við starfsmenn landsins. Við verðum að viðurkenna, að þeir eiga allir rjettmætar kröfur á miklu hærra kaupi á þessum tímum en þeir hafa haft að undanförnu. Mjer dettur ekki í hug, að þrátt fyrir allar þessar bætur fáum við ekki sömu söguna á næsta þingi, ef alt er undirbúningslaust eins og áður frá stjórnarinnar hálfu, og þingið á að fara að leita uppi hvern og einn starfsmann, eða bíða eftir því, að þessi og þessi maður komi með launauppbótarkröfu.
Það var feld hjer um daginn rökstudd dagskrá frá mjer, um að skora á stjórnina að undirbúa alt launamálið fyrir næsta þing og leggja frv. til almennra launalaga fyrir það. Jeg veit nú ekki, hvað hv. þm. vilja; hvort þeir vilja lenda í sama foraðinu á næsta þingi í þessu máli eins og nú; en það tel jeg alls ekki forsvaranlegt.
Það hefir verið talað um, að bætur þær, sem frv. fer fram á í launum læknanna, væru ekki „fullnægjandi“. En jeg vil segja, að það er enginn einasti embættismaður, sem fær fullnægjandi bætur með þessu frv. Við stöndum hjer á kviksyndi káksins og ójafnaðarins, og vildi jeg gjarnan reyna að komast út úr því, ef hægt væri. Um póstmennina er það að segja, að jeg bjóst einlægt við, að þeir kæmu eins og hinir, því að það vita allir, að þessir embættismenn höfðu við hrein og bein sultarkjör að búa áður en dýrtíðin byrjaði, og jafnvel þrátt fyrir þær bætur, sem þingið „voteraði“ þeim í fyrra; að þeir hafi eitthvað aukreitis, hvað varðar þingið um það, úr því að þeir hafa helgað sig þessu starfi og inna það forsvaranlega af hendi? Það getur vel verið, að þeir vinni einhver aukastörf, og þá líklega á nóttunni, því að á daginn hafa þeir ekki tíma til þeirra. Það er álíka merkileg viðbára og með prestana, sem eiga að fara á mis við launauppbætur meðan þeir fá einhvern mjólkurdropa úr kúnum sínum og ánum, hve dýru verði sem hann í raun og veru er keyptur. Jeg verð því að fylgja hv. 1. þm. Reykv. (J. B.) í því áliti, að það væri hróplegt ranglæti, ef við færum að skilja póstmennina eftir. Jeg vil alls ekki, að við vísum þessum mönnum frá okkur og förum að leggja þá á vald hv. Ed., því að við hjer erum þó aðal fjárveitingavaldið og ættum ekki að sýna það einurðarleysi að vilja ekki nota það, er öll sanngirni mælir með því, eins og hjer á sjer stað, enda hugsa jeg, að hv. Ed. muni þykjast hafa nóg að gera með að lagfæra þetta frv., þó að hún þurfi ekki að vera að taka þessa menn á móðurarma sína. Jeg veit t. d., að hv. Ed. fær .sýslumennina, og það jafnvel þótt fjárveitinganefndin hafi nú um ekki svo skamman tíma verið að leita sjer upplýsinga um þá hjá stjórninni, til þess að geta tekið þá með í frumvarpinu. En stjórnin hefir hingað til daufheyrst við þeim málaleitunum. Það getur verið, að stjórnin hafi ekki haft tíma til að sinna málinu fyrir öðrum nauðsynlegri hlutum, en jeg verð þó að álíta, að það hefði hreint og beint verið skylda að gefa nefndinni upplýsingar um launakjör þessara embættismanna, sem hún svo gæti bygt á till. sínar.
Jeg býst nú við, að þetta launamál sje nú komið svo langt, að það geti orðið helsta þrekvirki þessa þriggja mánaða þings. Jeg öfunda það ekkert af þessu þrekvirki, en úr því að þetta mál er nú einu sinni tekið fyrir, hefði átt að gera það rækilega og með meiri hjálp frá stjórnarinnar hendi en tök voru á að þessu sinni, og það verð jeg að taka upp aftur, að jeg álít, að langrjettast hefði verið að gera það með endurskoðun á dýrtíðarlögunum. Jeg mun nú samt í þetta sinn fylgja nefndinni í tillögum hennar, en vona, að hv. Ed. komi betri skipun á þetta mál með rækilegri endurskoðun á dýrtíðaruppbótarlögunum.