01.07.1918
Neðri deild: 60. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 864 í C-deild Alþingistíðinda. (2170)

105. mál, bráðabirgðalaunaviðbót til embættismanna o. fl.

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg hefi ekki tekið til máls um þetta mál hjer í deildinni og ætla mjer ekki að blanda mjer inn í málið sjálft. Enda heyrir það undir hæstv. forsætisráðherra, og hann mun halda svörum uppi fyrir stjórnarinnar hönd í þessu máli. En það var aðallega vegna þess, sem sagt hefir verið um sýslumennina, sem jeg vildi leyfa mjer að gera svolitla athugasemd. Jeg vil geta þess nú þegar, að það er jeg, sem sjerstaklega er hvatamaður að því, að stjórnin kemur með brtt. um launauppbót handa sýslumönnunum. Jeg álít það með öllu ranglátt að setja þessa stjett hjá, þegar flestum öðrum embættismönnum er veitt launauppbót. Það er sjerstaklega ranglátt, þegar litið er á það, að ekki er útlit fyrir, að sýslumennirnir hafi neinar aukatekjur, sem nokkru nemi, af landsversluninni. Þeir mundu því verða verulega illa staddir. Og þeir, sem best voru settir fyrir stríðið, verða nú hvað verst úti, því útgjöldin við embætti þeirra hafa aukist, þó tekjurnar hafi minkað. Sumir sýslumenn hafa jafnvel tilkynt stjórninni, að þeir hafi engar tekjur af embættum sínum, heldur jafnvel halla, ef þeir fái ekki neina uppbót. Þess vegna hafði jeg ákveðið að koma fram með brtt. í hv. Ed. um þetta atriði. Jeg bjóst satt að segja ekki við að geta verið á þessum fundi; annars hefði jeg reynt að koma brtt. hjer að.

Hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) notar þetta tækifæri, eins og öll önnur tækifæri, sem honum bjóðast, til þess að hefja árás á stjórnina. Jeg ætla nú ekki að blanda mjer inn í það mál. Þar er hæstv. forsætisráðh. til svara, svo jeg get leitt það hjá mjer. En eitt af því, sem hv. þm. (S. St.) tók fram, var þó þannig vaxið, að jeg get ekki gengið fram hjá því. Jeg skildi hv. þm. (S. St.) svo, að hann teldi núverandi stjórn frábrugðna öðrum stjórnum í því, að hún kæmi ekki með teknafrv. En þetta getur alls ekki átt við. Frá þessu þingi hafa þegar verið afgreidd þrjú tekjuaukafrv., sem öll komu frá stjórninni. Og jeg man ekki betur en að hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) væri með þeim öllum og gerði enga brtt. við neitt þeirra, til að breyta þeim eða bæta. Jeg get því ekki annað en álitið, að hv. þm. (S. St.) hafi með afstöðu sinni til þessara frv. viðurkent það, án þess að hann hafi viljað, að hann hefir sýnt stjórninni ekki svo lítið traust.

Jeg skal svo ekki fara frekari orðum um þetta mál. Hæstv. forsætisráðherra, sem málið heyrir undir, er fyllilega maður til að halda uppi svörum fyrir stjórnarinnar hönd. Þetta frv. er ekki heldur komið frá stjórninni, eins og það er nú, heldur frá hv. fjárveitinganefnd. Það frv., sem stjórnin kom með í fyrstu, var miklu takmarkaðra, náði að eins yfir nokkra menn.

Þá var hv. þm. (S. St.) að fárast um, að stjórnin væri að leggja fyrir þingið ýms mál, sem eingöngu heyrðu framkvæmdarvaldinu til. Mjer er óhætt að fullyrða það, að hver einasta stjórn í heimi ber á þessum tímum undir þing sitt þau vandamál, sem fyrir koma. Og það, að hv. þm. (S. St.) fer að kvarta um þetta, er blátt áfram broslegt, það er blátt áfram hlægilegt. Ef stjórnin bæri ekki vandamál sín undir þingið, þá er jeg viss um, að þingmenn mundu taka það illa upp. Hjer er því sýnilega verið að búa til þennan hvalablástur beinlínis út í loftið, og það af þessum hv. þm. (S. St.), sem jeg veit ekki til að hafi komið fram með nokkra till. til bóta á þessu þingi. Stjórnin lagði þó fram dýrtíðarfrv., auk tekjuaukafrv., sem jeg hefi áður minst á. En það er skoðun mín, að það sje ekki fyrsta krafan, sem gera á til stjórnar, að hún ungi út svo og svo mörgum frv. það er heldur ekki fyrsta krafan, sem gera á til þingsins, að það búi til mikið af lagafrv. Jeg lít svo á, að ekki eigi að búa til fleiri lög en nauðsynin knýr fram.

Jeg vildi að eins gera þessar almennu athugasemdir, út af ræðu hv. þm. N.-Ísf. (S. St.). Jeg fæ ekki annað sjeð en að árás hans á stjórnina hafi nú, eins og endrarnær, við engin rök að styðjast.