02.07.1918
Neðri deild: 61. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í C-deild Alþingistíðinda. (2178)
105. mál, bráðabirgðalaunaviðbót til embættismanna o. fl.
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg var búinn að biðja um orðið í gær, en satt að segja hefði jeg vel getað slept að segja nokkuð. Það var að eins örlítil athugasemd, út af ræðu hv. þm. N.-Ísf. (S. St.), sem jeg vildi gera, en hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) hefir nú svarað því, svo að jeg gæti slept því. En jeg vil þá að eins geta þess, að jeg dreg það mjög í efa, að svo sje, sem hv. þm. (S. St.) sagði, að hann hafi aldrei setið á þingi, þar sem minni samvinna hafi verið milli þings og stjórnar en nú. Jeg hygg nú reyndar, að hann þurfi ekki að leita langt aftur í tímann til þess að minnast þings, sem hann hefir setið á, þar sem samvinnan var langtum minni, — jafnvel frá hans sjónarhóli sjeð.
Annars varð jeg ekki var við, að hv. þm. (S. St.) segði nokkuð málinu til upplýsingar, en mjer virtist hann að eins nota tækifærið til þess að taka stjórnina til meðferðar, eða öllu heldur til bænar. Jeg býst við, að það sje rjettara að segja, að hv. þm. (S. St.) hafi viljað taka stjórnina til bænar; hann er stöðugt að taka stjórnina til bænar, eins og prestum er títt, og einatt er gert, til þess að hjálpa þeim til að skilja við, sem örðugt er um það.