01.07.1918
Neðri deild: 60. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í C-deild Alþingistíðinda. (2196)
80. mál, dýrtíðaruppbót af aukatekjum
Gísli Sveinsson:
Mjer finst ekki vera hægt að krefjast minna af meðflm. þessarar till., ef þeir á annað borð standa upp til þess að halda ræðu, en að þeir lýsi yfir, hvort þeir vilji nú greiða atkv. með henni eða móti. Mjer finst eðlilegt, að þm. eins og hv. 1. þm. N.-M. (J. J.) minni á það, hvernig farið hefir verið með þetta mál. Jeg skil heldur ekki, að þeir, sem drápu taxtafrv., skuli vera svo hörundsárir, að þeir þoli ekki að heyra taxta nefndan, en þó finst mjer líklegt, að þeir, sjeu nú farnir að sjá eftir því, hverja útreið taxtahækkunin fjekk; annars væri tal þeirra út í bláinn. Jeg skal svo ekki tala frekar um það atriði eða fara að verja læknana, því að jeg hefi ekki lesið orðin í Læknablaðinu sjálfu, sem mest hneyksla. En sannast að segja finst mjer það ekkert tiltökumál, þótt þeir lýsi skoðun sinni í blaði sínu, og jafnvel þó að þeir lýsi henni með talsvert hörðum orðum og skorinort. — Jeg veit ekki betur en að „kollegar“ hv. 1. þm. Reykv. (J. B.) hafi nýlega skrifað í blað sitt allsnúðuga grein í garð hv. þm. út af kennaramálunum, og hefir enginn þm. hlaupið upp til handa og fóta og farið að barma sjer út af því. Síst af öllu ættu þó hv. þm. að láta slíkt hafa áhrif á atkvgr. sína, eins og jafnvel hefir komið fram.
Annars voru það orðin, sem hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) viðhafði um þessa till., sem jeg vildi tala nánar um. Fyrst var hann meðflm. að till. þessari, en nú er hann sýnilega mótsnúinn henni, og virtist mjer það vera þrent aðallega, sem hann hafði á móti henni.
Fyrst og fremst var það, að honum virtist dýrtíðaruppbótin of lítil hjá sumum læknum til þess, að hann í þessu árferði, sem nú er, vildi verða til þess að veita hana. Í fyrstu kom það til mála, að þessi uppbót ein yrði látin nægja, og þá virtist mjer ekki betur en að hann teldi hana nægilega. (Sv. Ó.: Jeg sagði aldrei, að hún væri nægileg). Jeg get ekki gengið út frá öðru, þar sem hann hóf þá engin andmæli. Nú hafa þó læknar fengið afgreitt frá þessari deild 500 kr. hækkun á föstum launum sínum, og eiga að fá þetta að auki, svo að maður skyldi ætla, að hv. þm. (Sv. Ó.) þætti nú of langt farið, en ekki of skamt. Þau stinga líka dálítið í stúf, þessi ummæli hv. þm. (Sv. Ó.), við það, að ekki er lengra síðan en í fyrradag, að hann vildi veita kr. 2,50 sem uppbót til tiltekinna embættismanna. Annars má benda á það út af orðum sama hv. þm. (Sv. Ó.), að ekki er það vel trúlegt, að þeir sjeu margir læknar, sem hafi ekki meira en 50 kr. í aukatekjur, og þess vegna mun líka óhætt að telja uppbótina meiri en 20 kr.
Í öðru lagi sagði hv. þm. (Sv. Ó.)það, og reyndi að sanna með rökfimi sinni, að þessi uppbót kæmi mest niður þar, sem síst skyldi, eða með öðrum orðum hjá þeim, sem mest hefðu að starfa. Eftir minni skoðun á málinu ætti þetta ekki að vera mótbára gegn till., heldur meðmæli, og þess vil jeg biðja hv. þm. (Sv. Ó.) að gæta, að þessi uppbót kemur ekki fremur misjafnt niður nú heldur en í upphafi göngu sinnar, er hann gerðist meðflm. hennar. En það má vera, að þessi umskifti hv. þm. (Sv. Ó.) standi eitthvað í sambandi við þá skoðun hans, að hann virðist vilja hlynna að því, að embættismenn reyni til þess að fá lífsuppeldi sitt með því að gefa sig við öðrum störfum en þeim, er þeir eiga sjerstaklega að fást við.
Í þriðja lagi taldi hann það ástæðu fyrir því að vera mótsnúinn þessari till., að læknar mundu eins fyrir það hlaupa úr embættum, þótt þeir fengju þessa uppbót. En til þess er engin ástæða að hugsa svo, eða að minsta kosti ekki nú fremur en áður. Læknarnir fóru fram á dálitla taxtahækkun eingöngu, og verða þeir ekki ver settir með þeim till., sem upp á síðkastið hafa komið fram, sumpart til hækkunar fastra launa, sumpart um dýrtíðaruppbót á aukatekjum.
Svo held jeg ekki, að jeg þurfi að mæla frekar með þessari till., því að það hefir einnig verið gert rækilega af öðrum. Frumtill. læknanna um bót á kjörum þeirra var það, að fá læknataxtana hækkaða um helming frá því, sem nú er. Leit þá svo út, eins og drepið hefir verið á, sem þeir teldu það viðunandi bót á kjörum sínum, eða að minsta kosti ætluðu þeir að gera sig ánægða með það, hefði það fengist. Þá lækna, sem lítil læknisstörf hafa í hjeraði sínu, hefði að vísu munað öllu minna um það en þá uppbót, sem þeim er nú fyrirhuguð, en samt verður ekki annað sjeð en að einnig þeir hafi ætlað að gera sig ánægða með þetta.
Jeg held, að hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) þurfi að finna betri rök en þetta, til þess að bera fram því til afsökunar, að hann geti nú verið á móti þessari till. Satt að segja bjóst jeg ekki við, að hann þyrfti á því að halda að leita að slíkum rökum. Að vísu kom mjer það á óvart, að hann færi að verða á móti sinni eigin till. á þessu stigi málsins. En til þess þurftu þó ekki að liggja nema ein rök, sem sje þau, að hann vilji ekki veita læknum meiri uppbót en þá, sem fram á er farið í frv. um launauppbót embættismanna. Þau rök geta að vísu verið fullgild fyrir hann til þess að vera á móti till., en þau eru ekki nægileg til að sannfæra neinn um, að rjett sje að hafa sama vilja í þessu efni og hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.).