24.05.1918
Efri deild: 26. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 419 í B-deild Alþingistíðinda. (220)
37. mál, hækkun á vörutolli
Frsm. (Guðmundur Ólafsson):
Þetta frv. er eitt af tekjuaukafrv. þeim, sem hæstv. stjórn hefir lagt fyrir þingið.
Ástæður stjórnarinnar eru þær, að vörutollur á árinu 1917 hafi orðið alt að helmingi minni en áætlað var, eða 190 þús. kr., og hin aðalástæðan er sú, að nauðsyn beri til að auka tekjur landssjóðs.
Í frv. stjórnarinnar var ekki farið fram á, að allur vörutollur hækkaði um helming, en í Nd. var sú breyting gerð, að svo skyldi vera. Eftir útreikningi háttv. fjárhagsnefndar þar ynnust við það tekjur, sem nema 10—20 þús. kr., og er þá allur tekjuaukinn af þessari breytingu á vörutollslögunum áætlaður 90—100 þús. kr. Breyting háttv. Nd. á frv. er, auk tekjuaukans, er af henni leiðir, mikið til bóta hvað samræmi snertir með toll af einstökum vörutegundum.
Það lakasta við frv. er, að vörutollslögin hafa aldrei þótt alls kostar sanngjörn, og þegar lögin voru sett 1912, var ætlast til, að þau giltu að eins í 2 ár.
Hafa þau altaf þótt hálfgert neyðarúrræði, enda hafa verið gerðar á þeim breytingar á öllum þingum síðan þau voru sett, og nú er stórfeldasta breytingin á ferðinni, þar sem hækka á toll þennan um helming.
En þótt breyting þessi geti engan veginn talist neitt sældarbrauð, þá leggur nefndin samt sem áður til, að hún verði samþykt. Sýnir þetta það tvent, að lög geta stundum staðið lengur en í fyrstu er ætlast til, og að nú verður að afla tekna á hvern hátt sem verður. Þegar svona er komið, verður að athuga vel — jeg vil segja betur en síðasta þing gerði — hvernig þeim tekjum er varið, er þannig eru reyttar af almenningi á þessum erfiðu tímum. Það má líka bæta því við, að um stimpilgjaldið, sem hjer var til umræðu nýlega í háttv. deild, var sagt, að það væri reglulegt neyðarúrræði, og það tók hæstv. fjármálaráðherra fram í framsöguræðu sinni, og mun þingið láta það ná fram að ganga. Skal jeg svo ekki segja meira að sinni, en eins og jeg tók fram sá fjárhagsnefnd sjer ekki annað fært, vegna hags landssjóðs, en leggja til, að frv. yrði samþykt.