04.06.1918
Neðri deild: 39. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 913 í C-deild Alþingistíðinda. (2210)
82. mál, landsverslunin
Pjetur Ottesen:
Jeg vildi að eins mæla nokkur orð til stuðnings brtt. minum á þingskj. 281.
Jeg get byrjað á því að þakka hæstv. atvinnumálaráðherra fyrir undirtektir hans undir fyrri lið brtt. Það kom berlega fram, að hann var á sama máli sem jeg um það, að lítt hlítandi væri að varna sveitarfjelögunum að skifta við landsverslunina.
Jeg skildi hv. frsm. (P. J.) svo, að hann og meiri hluti nefndarinnar vildu ekki gera neitt til þess að hlynna að því, að sveitarfjelögin versluðu beint við landsverslunina, enda er ekki annar (sýnilegur tilgangur till. en að gera tilraun í þá átt. Eins og hæstv. atvinnumálaráðherra tók fram, er sú regla komin á, að sveitarfjelög versla beint við landsverslunina, og hefir viða farið vel á því. Jeg vil ekki gera neitt til að koma í veg fyrir, að þessu verði haldið áfram. Þar sem kaupfjelög eru fyrir, kemur þetta ekki til. En þar sem kaupmenn eru einir um hituna, getur það komið sjer illa fyrir sveitarfjelögin að hafa engin önnur úrræði en að leita á náðir þeirra. Að vísu er hægt að setja takmörk fyrir því, hve kaupmenn megi leggja mikið á vöruna. En vilji kaupmenn svo ekki hlíta þeim verslunarhagnaði, sem þeim yrði ákveðinn, og alls ekki versla með vörurnar upp á þau býti, þá væri lítið vit í því að varna sveitarfjelögum að taka verslunina í sínar hendur. Enda er það gagnstætt allri sanngirni, eins og vöruverð er nú orðið geypihátt, að vilja bægja mönnum frá því að versla á þann hátt, sem þeim gæti verið hagkvæmast og ódýrast. Það er líka alveg gagnstætt öllu tali og viðleitni þings og stjórnar til dýrtíðarráðstafana að vera að skapa mönnum óþarfa kostnað með því að hafa þar verslunarmilliliði, sem menn geta án þess verið.
Í þingsályktunartill. kemur fram, að þeirri meginreglu skuli fylgja, að kaupmenn og kaupfjelög skuli hafa forgangsrjett til vörukaupa. Verði till. samþykt, þyrftu forstjórar landsverslunar innar að leita fyrir sjer um það, hvort sveitarfjelag, er vildi kaupa vörur, ætti nú virkilega einkis annars úrkostar. Ef sveitarfjelögin ættu að færa forstjórum landsverslunarinnar heim sanninn um þetta í hvert skifti, gæti það kostað dæmalausa vafninga og rekistefnu. En meiningin er náttúrlega að útiloka sveitarfjelögin alveg sem verslunaraðila, þó ekki sje gengið hreinna til verks en þetta.
Jeg get eiginlega ekki skilið, við hvað er átt með síðari lið aðaltill. Jeg veit ekki betur en að landsstjórnin hafi heimild til að taka lán eftir þörfum. Jeg get ekki skilið síðari liðinn á annan hátt en þann, að bjargráðanefnd finnist stjórninni ekki hafa farist hyggilega í lántökum sínum undanfarið, og að hún hafi tekið lán til of skamms tíma. Ef svo á að skilja þetta, er jeg nefndinni sammála og mun því greiða liðnum atkvæði.
Þá kem jeg að 2. lið brtt. minnar, er fer fram á að afnema öll afskifti sýslumanna af afhendingu á vörum landsverslunarinnar og innheimtu.
Eins og kunnugt er, eru sýslumenn landsins nýir og áður óþektir milliliðir í versluninni. Landsverslunin hefir komið þessum nýja millilið á, og virðist það koma í bág við þá stefnu í verslunarmálum, sem nú á síðari árum hefir æ meir og meir verið að ryðja sjer til rúms hjer á landi, sem meðal annars hefir það markmið, að hafa sem fæsta milliliði og viðskiftin sem hagfeldust og óbrotnust á allan hátt. Það var bent á það hjer í fyrra, að það hefði þó kann ske verið sök sjer, þó að stjórnin hefði sýslumenn í ráðum með sjer, meðan stjórnarráðið vasaðist beinlínis í þessum verslunarmálum og rak verslunina upp á eigin spýtur. En á síðasta þingi var, svo sem kunnugt er, gerð gangskör að því, að meitla verslunina út úr stjórnarráðinu, og það, sem á vantaði þá að það tækist, fullkomnaði stjórnin síðar með því að setja óháða stjórn fyrir landsverslunina. Það var eins og stjórnin hafi ekki áttað sig á nauðsyn þessarar ráðstöfunar á síðasta þingi, en síðan hafi hún sjeð, að við svo búið mátti ekki standa, og því kipt þessu í lag, og mun víst flestum þykja miklu betur farið.
Sú skoðun kom skýrt fram á síðasta þingi, að afskifti sýslumanna af versluninni væru, eins og þá var komið, alls ónauðsynleg, en væru aftur á móti í mörgum tilfellum til stórtrafala fyrir viðskiftin, og auðvitað hefðu þau afskifti allmikinn kostnað í för með sjer. Í sambandi við þetta var stjórnin spurð að því á síðasta þingi, hve há ómakslaun sýslumennirnir fengju. En stjórnin varðist allra frjetta um það og gaf engin svör. Nú hefi jeg aflað mjer upplýsinga um þetta atriði, og hefir mjer verið skýrt þannig frá, að af fyrstu 100 þús. kr. fái þeir 2%, af næstu 100 þús. kr. fái þeir 1%, en ½% af því, sem þar er fram yfir. Heyrt hefi jeg, að þeir hafí fengið þessa þóknun, eða hvað nú á að kalla það, af öllum vörum, sem seldar voru inn í hverja sýslu, þótt þær gengju ekki í gegnum hendurnar á þeim og þeir þyrftu ekkert fyrir þeim að hafa.
En þrátt fyrir þá breytingu á landsversluninni, að hún verslar nú sem heildsali, hefi jeg fyrir satt, að þessu fyrirkomulagi sje haldið. Þetta hlýtur að auka kostnaðinn og gera vöruna dýrari en hún þyrfti að vera ella.
Taki nú landsverslunin að sjer sölu á öllum nauðsynjavörum, eins og ensku samningarnir sennilega gera nauðsynlegt, og eigi sýslumenn að hafa ákveðið hundraðsgjald af allri sölunni, þótt þeir komi þar hvergi nærri, gæti þetta numið stórfje.
Mig furðar á því, að jafnmikill samvinnufjelagsmaður sem hv. þm. S.-Þ. (P. J.) er skuli vera hlyntur þessum óþarfa millilið í versluninni. Það liggur í augum uppi, þar sem þetta fyrirkomulag er komið á verslunina, að henni er ekki vandara um en öðrum heildsölum að selja beint til verslunaraðilja, láta hönd selja hendi og lána þar, sem trygt er. Að sýslumönnum er því í þessu falli engin trygging. Sveitarfjelögin eru nógu örugg, og sýslumenn bæta þar ekki úr. Ekki hafa heildsalar tekið slíka milliliði, heldur versla þeir beint við aðilja.
Hjer verður að fara sem allra varlegast, koma í veg fyrir allan óþarfa kostnað, en gera viðskiftin sem greiðust.
Jeg vænti þess, að brtt. mín verði samþykt. Ef svo verður, þá fyrst er einhver heilbrigð meining í þingsályktunartill. á þgskj. 275, því að þá yrði komið í veg fyrir afskifti sýslumanna af versluninni, og sveitarfjelögunum gert jafnhátt undir höfði og kaupmönnum og kaupfjelögum. Mun jeg þá greiða henni atkv.
Jeg leyfi mjer að æskja þess, að brtt. mín verði borin upp í tvennu lagi.