04.06.1918
Neðri deild: 39. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 920 í C-deild Alþingistíðinda. (2213)
82. mál, landsverslunin
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg held satt að segja, að það hafi verið hreinn óþarfi að láta þessa þingsályktunartill. koma fram hjer í hv. deild. Jeg hygg, eins og líka er viðurkent af hv. frsm. (P. J.), að það sje tilætlun landsverslunarinnar að fylgja þeirri reglu yfirleitt, að vörur þær, sem landsverslunin keypti sem heildsali, yrðu seldar aftur aðallega kaupmönnum og kaupfjelögum, og af landsstjórnarinnar hálfu er gert ráð fyrir því, að ekki komi til þess, að sveitarfjelögin sjeu útilokuð. En á hinn bóginn þegar svo er ástatt, að verslunin er komin í hendur þeirra manna, sem allir þykjast treysta, þá virðist best við eiga að lofa þeim að haga framkvæmdum hennar eftir því, sem þeim þykir þurfa og rjett vera. Reyndar held jeg, að jeg þurfi ekki að fara frekar út í þetta, því að það hefir hæstv. atvinnumálaráðherrann gert.
Sömuleiðis hefir hann tekið það fram, að sýslumenn hafi ekki fengið hundraðsgjald af öðru en því, sem gengið hefir í gegnum þeirra hendur að einhverju leyti. Það er auðvitað ekki með öllu ómögulegt, að út af þessu hafi verið brugðið í einstökum tilfellum, en það er þá hrein undantekning. Jeg veit það um einn sýslumann, sem er í sýslu, er verslar mjög mikið við landsverslunina, að hann hefir sama sem engin innheimtulaun. Það sýnir, að það hefir ekki verið reiknað honum til gróða, sem sveitarfjelögin hafa tekið út hjer. Hafí því þetta komið fyrir, sem hv. þm. Borgf. (P. O.) talaði um, þá er það svo óveruleg undantekning, að ekki tekur tali. Hefði þá verið rjettara að koma með þetta í sjerstakri fyrirspurn eða þingsályktun, (P. O.: Fyrirspurnum er ekki svarað.), heldur en í máli, sem þetta atriði í rauninni varðar ekki.
Þá var það síðari liður till. á þgskj. 275, um lánin. Það er auðvitað æskilegt að fá hagkvæm lán, og má vel vera, að það hefði verið betra að fá meira af lánunum til lengri tíma en gert var, en þar er að eins sá hængur á, að þetta reyndist ekki framkvæmanlegt að sinni. Mörg þeirra lána, sem tekin hafa verið, eru tekin til alllangs tíma, 10 ára. Hin flest svo, að engin hætta er á, að þeim verði sagt upp. Þess vegna er það ekki rjett hjá hv. frsm. (P. J.), að lán hafi verið tekin, sem geti orðið sagt upp. Aðallánið, 7½ milj. kr., er að vísu fallið í gjalddaga eftir rúmt 1½ ár, svo að þar er engin bráð hætta á ferðum. Annars hefði landsstjórnin tekið lánin til lengri tíma, ef mögulegt hefði verið, en jeg verð að segja hv. deild, að það er mjög vafasamt, hvort nú sje rjett að taka mjög löng lán. Þau er ekki hægt að fá nema mjög dýr, og að taka þau lán, er verslunin stendur á, með dýrum kjörum, tel jeg ekki hyggilegt. Hitt gæti ef til vill verið heppilegt, að fá innlend lán. Landsstjórnin hefir hugsað um það og borið sig saman við bankana. Þeir hafa tekið vel í mál hennar, en hvað upp úr því fæst er ómögulegt að segja. Þetta mál er því athugað af þeim, er helst geta eitthvað í því gert, en það eru bankarnir.
Þótt þessi till. hv. bjargráðanefndar sje að þessu leyti óþörf, þá er hún meinlaus og ekkert með henni sagt, því að hún er svo óákveðin. Til næsta reglulegs þings er ekki mikil hætta á því, að verulegir örðugleikar verði á því, sakir peningaskorts, að láta landsverslunina starfa nokkurn veginn. En þá verður sennilega ástæða til að gera eitthvað frekar. Annars er þessi liður gersamlega þýðingarlaus, sjerstaklega ef hv. frsm. (P. J.) á við, að hann skuli tekinn sem heimild til að taka lán. Jeg er hræddur um, að peningamennirnir myndu brosa, er stjórnin sýndi þeim till. þessa og segði: „Hjer er heimildin til að taka fje að láni hjá ykkur.“ Til þess þarf lög.
Annars skal jeg taka í sama streng og hæstv. atvinnumálaráðh., að það er ekki einungis óþarft að koma með svona till., ef menn treysta forstöðumönnum landsverslunarinnar, heldur og skaðlegt, því að þeir verða þó að hafa dálítið frjálsar hendur, eins og nú stendur á.
Það er hv. þm. Borgf. (P. O.), sem vill með öllu banna forstjórum landsverslunarinnar að fá sýslumenn til að innheimta eitthvað fyrir sig. Jeg skil eigi, hví þeir mega ekki biðja mann, þótt sýslumaður sje, að gera þetta. (P. J.: Jeg vil með öllu vera laus við þá till. af nefndarinnar hálfu). Þessi till. liggur líka fyrir. Að minsta kosti hefir hv. nefnd leitt asnann inn í herbúðirnar. Jeg álít með öllu ótækt að banna, að sýslumenn hafi slíkt með höndum.
Held jeg því, að öllu athuguðu, mjög heppilegt að samþykja dagskrá hv. 2. þm. Eyf. (E. Árna.), og treysta því nú, eins og yfirleitt, að forstjórar landsverslunarinnar geri þetta verk sem þeir geta best og þannig, að það verði sem ódýrast fyrir landið.