04.06.1918
Neðri deild: 39. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í C-deild Alþingistíðinda. (2221)

82. mál, landsverslunin

Einar Arnórsson:

Mjer finst megnið af þessu rifrildi vera deila um keisarans skegg. Jeg lít svo á, að bæði aðaltill. og brtt. sjeu algerlega óþarfar, en að nokkru leyti skaðlausar. Í aðaltill. er svo ákveðið, að kaupmenn og kaupfjelög skuli annast vöruúthlutunina, og brtt. bætir við sveitarfjelögum. En þetta virðist vera óþarft, því að þetta fyrirkomulag mun vera sú meginregla, sem tíðast hefir verið fylgt. Jeg veit ekki til, að einstakir menn hafi keypt, svo að nokkru nemi, vörur af landsversluninni, heldur kaupmenn og kaupfjelög.

Till. nefndarinnar mætti skilja svo, að sveitarfjelögum sje verslunin fyrirmunuð. (P. J.: Ekki ef till. er skýrð). Það er kynlegt, að till. skuli að þessu leyti vera svo óskýr, að það skuli þurfa að skýra hana til þess, að það skiljist. Hví er þetta atriði þá ekki tekið skýrt fram í till.?

Sannleikurinn mun vera sá, að heppilegt sje að láta kaupmenn og kaupfjelög annast sölu og afhendingu á vörunum, eða getur að minsta kosti oft verið heppilegra en að fela það sveitarstjórnum. En þess eru þó jafnframt dæmi, að til eru sveitarfjelög hjer í nágrenninu, sem enginn hængur hefir reynst á að skifta við, t. d. ýms sveitarfjel. í Árness. (Fjármálaráðh.: Og suður með sjó). Já, bæði þar og í Árness- og Borgarfjarðarsýslum. Úr því að fengnir hafa verið forstjórar fyrir landsverslunina menn, sem vænta má að ræki starf sitt vel og hafa meiri verslunarþekkingu til brunns að bera en þm. yfirleitt, virðist mjer varhugavert af þinginu að setja þeim slíkar reglur.

En þá er hinn liður brtt., frá hv. þm. Borgf. (P. O.). Hann kveður svo á, að sýslumenn skuli engin afskifti af versluninni hafa. Þessa till. hygg jeg líka vanhugsaða. Jeg skal að vísu játa, að ástæðulaust er að láta sýslumenn altaf hafa afskifti af verslun landssjóðs. En fyrir geta komið ýms tilfelli, eins og hv. þm. S.-Þ. (P. J.) tók fram, að eigi sje hagkvæmt að fyrirmuna stjórninni að nota milligöngu sýslumanna.

Jeg þarf ekki að telja sama dæmið og hann nefndi, því það mætti finna svo miklu fleiri. Mjer finst, að stjórnin og stjórn landsverslunarinnar ráði skipun þessara manna, algerlega á sína ábyrgð. og eftir því, sem reynslan sýnir þeim að best sje. (Atvinnumálaráðh.: Og breytt atvik standa til). Það felst í því, sem áður er sagt.

Það getur verið varhugavert að ætla sjer að svínbinda stjórn slíks fyrirtækis við ákveðna reglu; þótti það ekki heppilegt í byrjun, og hefir reynslan sýnt það.

Auk þess kæri jeg mig ekki um að fara að samþykkja einhverja fastbundna reglu, til þess að stjórnin hafi það svo síðar að skálkaskjóli og segi: „Þetta hafið þið skipað mjer, og því berið þið ábyrgðina“. Mjer finst best og heppilegast ráðið, að stjórnin og stjórn landsverslunarinnar ráði fram úr þessu á sitt eindæmi og með fullkominni ábyrgð. Það er ekki heppileg stefna hjá þinginu að ætla sjer að gefa ákveðna reglu um það, hvernig stjórnin skuli haga sjer í hverju einstöku tilfelli, því það er eingöngu til þess að veikja ábyrgðartilfinningu stjórnarinnar.

Þá kem jeg að lánalið till. Jeg get ekki sjeð, að annar liðurinn sje beinlínis til meins, en hann er líka með öllu gagnslaus. (Fjármálaráðh.: Alveg rjett). Það stendur sem sje í lögum frá 1. febr. 1917, að stjórninni sje heimil lántaka eftir þörfum til landsverslunarinnar. Hjer er því sú heimild til, sem till. fer fram á, og jeg sje ekki, að þörf sje neinu við hana að bæta. Það skyldi þá helst vera það, að taka þyrfti fram við stjórnina, að hún tæki lánin „með sem hagkvæmustum vaxtakjörum og nægilegum greiðslufresti“, en mjer finst það liggja svo í augum uppi og vera svo sjálfsagður hlutur, að stjórnin gæti þessa eftir megni, að ekki gerist þörf á að minna hana á það, og býst jeg við, að meiri hl. þingsins treysti henni til þessa. Hitt er annað, að skiftar geta verið skoðanir manna um það hverju sinni, hvort stjórninni hafi farist farsællega um lántökur sínar, hvort hún hafi tekið lánin á rjettum stað eða hvort henni hafi tekist að fá lánin með viðunandi kjörum, og er það alt öðru máli að gegna; en stjórnin tekur auðvitað altaf þar lánin, sem hún hyggur best í það skiftið. Mjer virðist því, í sannleika sagt, að annar liður till. blátt áfram nálgist það að vera barnalegur.

Að þessi till. varði svo mjög fjárhag landsins fæ jeg ekki skilið, en það getur vel verið skilningsleysi mínu að kenna. Jeg hygg, að stjórnin ætli sjer ekki að útiloka samvinnu við kaupmenn, svo að aðstaðan og hjálpin, sem þeir geta veitt með peningum sínum og þekkingu, er jafnmikil og opin hvort sem þessi till. er samþykt eða ekki. Jeg sje þá heldur enga ástæðu til þess að samþykkja neina dagskrá, og til þess að losna við málið á sem þægilegastan hátt og án þess að í nokkru sje tekið fram fyrir hendur stjórnar landsverslunarinnar, þá leyfi jeg mjer að koma með till. um það, að málinu verði vísað til landsstjórnarinnar.