12.06.1918
Neðri deild: 47. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 955 í C-deild Alþingistíðinda. (2234)
95. mál, dýrtíðarvinna
Flm. (Sigurður Sigurðsson):
Jeg skal ekki eyða löngum tíma í að svara hv. 1. þm. Húnv. (Þór. J.). Jeg get verið hæstv.forsætisráðh.þakklátur fyrir undirtektir hans í málinu, og vænti jeg, að háttv. deild taki orð hans til greina.
Jeg bjóst ekki við, að hv. 1. þm. Húnv. (Þór. J.) mundi styðja mál þetta. En geta vildi jeg þess í samabndi við athugasemdir hans um vinnuskortinn, að vel getur svo farið, að síðari hluta þessa sumars verði einmitt skortur á vinnu, bæði hjer í Reykjavík og víðar. Má minna á það, ,að líkur eru til, að síldarrekstur verði lítill í sumar, og að vel getur Svo farið, að hætt verði við hann í miðju kafi, þó að einhver verði. Skilst mjer því að fjöldi fólksverði þá að meira eða minna leyti atvinnulaus. En hins vegar má vinna að skurðgrefti langt fram á vetur, jafnvel þó að jörð sje töluvert frosin. Er mjer kunnugt um það, frá síðasta hausti, að skurðgröftur gekk þá vel og að menn unnu þar, ákvæðisverk. Til þess að höggva gaddaða skorpu ofan af, jafnvel um 30 cm. þykka, þarf ekki fleiri handtök en að stinga jafnmikið rúmmál með skóflu í þýðri jörð. Með því að höggva upp klakaskorpuna næst stórt stykki eða klakaskán í einu, og tefur það lítið fyrir, nema klakhöggið sje því meira. Þetta get jeg borið um af eiginni sjón og reynslu. Vil jeg og geta þess, að sá hluti verksins, sem þarf til þess að gera áveitutilraunina, er mestmegnis unninn á þurlendi, og er það mikill munur.
Búast mætti við, að verkfærin yrðu dýr. En þess er þó að gæta, að ef hjer yrði að eins um tilraun að ræða, þá mundu mestpart verða notuð algeng handverkfæri. Og að vinnunni lokinni mætti svo selja verkfærin, ef vildi, og það með litlum eða engum afföllum, því að nú er tilfinnanlegur verkfæraskortur í landinu.
Í till. eru ekki ákveðin hlutföllin milli fjárframlags landssjóðs og Flóaáveitufjélagsins. Það verður að vera samkomulagsatriði milli stjórnarinnar og fjelagsins. Jeg þykist mega fullyrða, að þeir, sem að tilraunum þessum stæðu, yrðu samvinnufúsir og myndu taka einhvern þátt í þeim halla, sem verða kynni á verkinu, og ljetta þannig undir með landssjóði. Hins vegar álít jeg það mikilsvert, að stjórnin hafi þarna á boðstólum dýrtíðarvinnu.
Jeg vonast þess vegna til, að till. fái að ganga til síðari umr. og að henni verði vísað til bjargráðanefndar.