12.06.1918
Neðri deild: 47. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í C-deild Alþingistíðinda. (2236)

95. mál, dýrtíðarvinna

Þórarinn Jónsson:

Jeg skal ekki gera þetta að kappsmáli. Jeg finn, að hæstv. forsætisráðherra er það allmikið kappsmál, að till. komist eitthvað áfram, og ,er því líklegt, eftir venjunni, að deildin verði svo lítilþæg, að lofa henni að komast í nefnd. En jeg hefi ekki skilið ummæli hans að öllu leyti. Hann sagði, að landssjóður mundi litlu þurfa til að kosta. Ekki verður það þó sjeð af till. Ekki skal jeg heldur efast um, að það þurfi að verða fyrirtæki þessu til fyrirstöðu, að eigi verði gott samkomulag milli fjelagsins, sem myndað verður þar eystra, og landsstjórnarinnar, ef hæstv. forsætisráðherra fjallar þar um, hvernig sem landssjóðnum verður þá borgið.

Hæstv. forsætisráðherra gat þess, að á Eyrarbakka og Stokkseyri gæti verið atvinnulaust fólk, sem yrði fegið að hagnýta sjer þessa atvinnu. En jeg býst eigi við, að svo sje margt um atvinnulaust fólk þar eystra, að til þess komi, að með því verði verkið framkvæmt. Og sá er líka agnúinn á þessu, að á þeim tíma árs, sem fólki er mest þörf atvinnu, er ókleift að vinna að þessu verki.

Hv. 1. þm. Árn. (S. S.) gat þess að vísu, að ofurauðvelt væri að kljúfa frostskorpuna. Jeg skal ekki leitast við að hrekja þessa staðhæfingu, en get lofað öðrum að meta hana. Mun jeg svo ekki fjölyrða frekar um þetta, en vænti þess, þó að till. kæmist í nefnd, að þá reki hún ekki upp höfuðið aftur.