01.06.1918
Efri deild: 33. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 961 í C-deild Alþingistíðinda. (2242)
77. mál, dýrtíðaruppbót handa Sigurgeiri Gíslasyni
Kristinn Daníelsson:
Mjer kom sannast að segja þessi rökstudda dagskrá fjárveitinganefndar á óvart, því hv. nefnd sýndi mjer þann sóma, að kveðja mig til viðtals, og heyrðist mjer hún þá ekki vera því mótfallin, að dýrtíðaruppbót væri greidd þessum manni, að minsta kosti að hálfu, úr landssjóði. — Eins og hv. deild mun vera kunnugt, liggja alveg sjerstök atvik að því, að þessi maður hefir ekki unnið fyrir landssjóðinn, eins og aðrir vegagerðarmenn. Og það mun vera eini verkstjórinn á landinu, sem þannig stendur á með. Hjer er því ekki að óttast neitt fordæmi, þó að þessi till. nái fram að ganga. — Annars hefi jeg ástæðu til að halda, að hv. nefnd mundi ekki vera á móti því, að dýrtíðaruppbótin væri greidd að hálfu leyti úr landssjóði og að hálfu leyti frá sýslunni, og hefi hugsað mjer að koma með brtt., sem gengi í þá átt. Jeg ætlaði þess vegna að ná í oddvita Gullbringusýslu og bera mig saman við hann, en hefi ekki enn getað náð í hann, þar sem hann er nú í þingaferðum. Jeg vildi því biðja hv. forseta að taka málið út af dagskrá.