01.06.1918
Efri deild: 33. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í C-deild Alþingistíðinda. (2244)
77. mál, dýrtíðaruppbót handa Sigurgeiri Gíslasyni
Karl Einarsson:
Jeg skal geta þess, að fyrir nefndinni vakti það ekki að láta greiða helming dýrtíðaruppbótarinnar beint úr landssjóði, heldur væri sú upphæð tekin af kostnaðinum við vegagerðina, sem svo í reyndinni yrði það sama, þar sem landssjóður borgar helming kostnaðar við vegagerð þá, er þessi verkstjóri vinnur við.