18.05.1918
Neðri deild: 26. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 995 í C-deild Alþingistíðinda. (2262)

39. mál, framkvæmdir fossanefndarinnar

Fyrirspyrjandi (G. Sv.):

Jeg skal víkja nokkrum orðum að ræðu hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), sem, eins og kunnugt er, er einn af fossanefndarmönnunum. Hv. þm. (Sv. Ó.) virðist mjög gramur út af því, sem fram hefir farið hjer, og það eru víst fleiri en hann, sem líkaði það mjög illa, að nokkur skyldi dirfast að grenslast eftir því, hvað hún hefði gert, þessi nefnd, hvort hún væri búin að afreka nokkuð á þann veg, sem till. er nefnd þessi er skipuð eftir, mælir fyrir um. Það er nú altaf svo, að mönnum er illa við, ef eitthvað er farið að athuga við þau störf, sem þeir þykjast ekki tilbúnir að tala mikið um. Jeg verð nú að lýsa yfir því, að ef þetta þing hefði liðið án þess, að slík fyrirspurn hefði komið fram, þá hefði það vanrækt skyldu sína gagnvart þjóðinni, því að þjóðin á vissulega heimtingu á að vita, hvernig þessu máli líður, og hún á heimtingu á að ganga eftir því, að framkvæmdir verði á einhverjum störfum nefndarinnar.

Hv. þm. (Sv. Ó.) kom að því, sem jeg hefi áður talað um, — eins og hæstv. fjármálaráðherra og hv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.) —,að ekki hefði þurft og ekki átt við, að tómir verkfræðingar sætu í nefndinni. Jeg veit ekki, eftir hverjum þeir hafa það, að svo ætti að vera, en hitt sagði jeg, og leyfi mjer að standa við, að í slíkri nefnd sem þessari, sem á að fjalla um sjerstakt og sjerfræðilegt mál, þar sem ekki er hægt að greina hvaða atriði geta komið til meðferðar, eigi að sitja og starfa þeir menn, sem til þess hafi sjerstök skilyrði. Nú má skifta efni þessa nefndarmáls í þrent. Í fyrsta lagi er hið verkfræðilega starfssvið hennar; til þess hefði átt, og til þess ætlast jeg að sjálfsögðu, að verkfræðingur skipi eitt sætið í nefndinni; þá á þar að vera lögfræðingur, og það, góður og fróður lagamaður, því það er alveg ótvírætt, að hún hefir einnig meðlögfræðileg störf að gera, og í þriðja lagi ætti í svona nefnd að vera maður með sjerstakri þekkingu á fjármálum. Þetta er það þrent, sem til þess þarf, að ábyggilegur árangur geti komið af starfi þeirra manna, sem við slík mál fást, en þessi nefnd getur að mínu áliti ekki unnið neitt að þessu máli af eigin ramleik, nema hvað verkfræðihliðina snertir. Þetta mál er þaulrakið annarsstaðar, og það eru þær upplýsingar, sem slík nefnd gæti aflað sjer, en til þess að fá nokkuð örugga vitneskju úr þeim þarf líka sjerfróða menn, en jeg hefi nú áður lýst yfir því, að af þessum nefndarmönnum teldi jeg ekki nema einn hafa til brunns að bera nauðsynlega þekkingu á þessu hlutverki, sem sje verkfræðinginn; hinir geta verið góðir og nýtir menn á vissum sviðum, en það er vitanlegt, að þeir hafa ekki sjerþekkingu á þessum efnum.

Sami hv. þm. (Sv. Ó.) gat um það, að það væri ekki við því að búast, að nefndin hefði lokið starfi sínu enn þá. Það getur verið rjett, og það sagði hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) líka, að hann ætlaðist ekki til þess, að nefndin væri búin með starf sitt alt, en við ætlumst til að fá að vita um þau atriði, sem nefndin átti að vera komin niður á. Það er 1. og 4. atriði þingsályktunarinnar, og jeg skil ekki, að það hefði verið henni ofvaxið, en nú hefir gengið svo fyrir henni, eins og vant er að ganga fyrir mönnum, sem ekki hafa sjerþekkingu, þeir velta öllu saman og vinna svo úr öllu í einum graut. Nú segja hinir hv. nefndarmenn sjálfir, að það sje ekki hægt að svara nokkru um þá niðurstöðu, sem spurt er um, en mjer finst, sannast að segja, að hv. nefndarmenn hefðu getað verið fróðari um það atriði málsins. En hvaðan kemur hæstv. fjármálaráðherra sú viska, að nefndin hefði ekki getað búist við því, að þingið kæmi fyr saman en í júlí, og því ætlað sjer lengri starfstíma? En nú fullyrði jeg, að við hefðum getað búist við næsta þingi á hvaða tíma af árinu 1918 sem vera skyldi.

Háttvirtur þingm. S.-M. (Sv. Ó.) sagði, að slíkar .nefndir sem þessi hefðu annarsstaðar setið og erfiðað árum saman; það getur vel verið, en jeg býst ekki við, að þessi nefnd geti komið með neitt betra en þær hafa leitt í ljós um þessi mál, og það kemur víst til að sýna sig síðar, — og sjest að nokkru þegar nú, — hvort þessir hv. nefndarmenn geta fundið púðrið; en það sýnir sig vafalaust betur á sínum tíma. Það hefir nú enginn sagt, að nefndin hafi ekkert gert, en hitt hefir verið fullyrt, að hún hafi ekki komið fram með neitt, og nú neitað að koma fram með nokkuð, sjálfsagt af því, að hún er ekki búin að gera neitt heilt. Sumir hafa sagt um þetta þing, að það hafi ekkert gert; þó hefir það verið starfandi, en úrslit eru engin veruleg komin enn þá, og enginn árangur því kominn af starfi þess, en sjálfsagt má vona, að hann verði einhver af starfi þess og yæntanlega einnig af starfi þessarar nefndar.

Jeg skal ekkert tala, frekar en jeg hefi þegar gert, um kostnaðinn, að þessu sinni, þótt jeg verði að leggja áherslu á það, að ef nefndin heldur áfram og reynir ekki að hafa hraðann á, þá verður þetta gífurlegur kostnaður. Sumir mæla, að nokkuð af þessu hafi gengið í bækur og áhöld; að það sje rjett efa jeg ekki, en það má nokkuð geta sjer til um, hve mikið það muni vera, — nokkur hundruð krónur í mesta lagi.

Jeg veit ekki, hverju jeg á að svara hæstv. fjármálaráðherra, því að það, sem hann sagði, kom málinu ekkert við. Það kom t. d. málinu ekkert við að fara að lýsa yfir því, með miklum bæxlagangi, að fyrir hv. Ed. hefði frv. legið í fyrra, sem hefði verið þjóðþrifaverk að stemma stigu fyrir; — það hefir enginn minst á það hjer; — þess vegna hafi það verið happaráð að skipa nefnd í málið; um þetta hefir ekki verið deilt nú. Menn hafa spurt um, hvað nefndin hafi gert og hvers vegna hún kæmi ekki fram með sitt verk, það er hún átti að hafa lokið við. Þetta er vitanlega ekki svo að skilja, að jeg sje á móti því, að málið hafi verið eða verði rannsakað, því það var líka mín till., en það eru skiftar skoðanir um það, hvort ekki sje hægt að ráða einstökum atriðum til lykta án þess, að öll afrek nefndar þurfi að liggja fyrir. Jeg býst við, að enn þá sjeu einhverjir svo nýtir menn hjer á þingi, að kleift væri, ef menn vildu það, að ganga frá einhverjum atriðum málsins, fyr en því öllu saman í einu.

Sami hæstv. ráðherra (S. E.) gat þess, að hann hefði orðið hissa á því, að það kom flatt upp á menn, að skipaðir voru í nefndina menn úr þingflokkunum. Það var nú ekki sjerstaklega af því, að það kæmi flatt upp á menn, að þetta hefir verið athugað, vegna þess að þegar till. um skipun nefndarinnar var samþykt, var það alkunnugt, hvaða mönnum flokkarnir hefðu augastað á; jafnvel í samræðum var því haldið fram, að þessa menn ætti að skipa í nefndina. Og svo lítur út, sem endilega hafi þurft að taka þm. sinn úr hverjum flokki, af þremur flokksbrotum í þinginu, og að þeir hafi þurft að vera í nefndinni til þess að halda fram stefnu hvers flokks. En það eru ekki stefnur, sem eru neitt öðruvísi en annarsstaðar um lönd, enda veit jeg ekki til, að hjer hafi verið fundnar upp neinar frumlegar stefnur í þessu máli.

Jeg hefi nú skýrt frá afstöðu minni og fleiri manna til málsins, og sömuleiðis ósk og eftirvæntingu um það, að hlýtt verði þeirri „skikkan“, sem nefndin var skipuð eftir. Ef það eru árásir, ja, þá verð jeg að segja, að jeg mun ekki hverfa frá þeim, en það eru nú heldur ekki nema einstöku menn, sem leyfa sjer að vera á móti slíkum kröfum, og þá venjulega ekki þeir menn, sem finna mikið til ábyrgðar sinnar. Fleiru hirði jeg eigi að svara til orða hæstv. fjármálaráðh., og jeg skal ekki tala neitt um orðbragð hans; hann var, eins og honum er gjarnt, helst til mikið æstur. En þar sem hann ljet sjer sæma að hreyta einhverju úr sjer um „naglaskapinn úr Vigur“, er hann svo nefndi, þá finst mjer það satt að segja vera að skáka í skjóli umburðarlyndis og frjálslyndis okkar ágæta hæstv. forseta.

Jeg hefi gert mína till. í málinu, sem þá einu till., er kleift er að gera samkvæmt þingsköpum, því að jeg þykist enn vita, að ekki megi gera ályktun um þau mál, sem fyrirspurn er um. En um leið og jeg vísa till. til stjórnarinnar minni jeg á þau orð, sem jeg hefi látið fylgja henni.