18.05.1918
Neðri deild: 26. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1008 í C-deild Alþingistíðinda. (2269)
39. mál, framkvæmdir fossanefndarinnar
Fyrirspyrjandi (Gísli Sveinsson):
Það var ekki hægt að bera mál þetta fram öðruvísi en í fyrirspurn, því að niðurstaða nefndarinnar er enn ókunn þinginu. Þingið varð því að spyrja stjórnina, aðra getur það ekki spurt með þessum hætti, hvað niðurstöðu nefndarinnar líði, og fyr en þingið hefir hana er ekki hægt að taka ályktun um málið sjálft. (Fjármálaráðh.: Eru miljónirnar að kalla). Jeg held, að hæstv. fjármálaráðh. mætti verða feginn, ef miljónirnar vildu kalla í hann, en þess verður víst langt að bíða. Og ef hann með þessu vill gefa í skyn, að hann eða hans nótar sjeu einu „þjóðlegu“ mennirnir, þar sem þeir vilji ekki veita erlendu fje inn í landið, þá er þar til að svara, að jeg býst við, að það komi síðar í ljós, hverjir sjeu þjóðlegustu mennirnir, og að hann verði ekki einn um þá hitu, þótt hann berist allmjög á í þeim efnum. Öllum er kunnugt, að framkvæmda hans gætir minna.