24.05.1918
Neðri deild: 30. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1014 í C-deild Alþingistíðinda. (2283)
48. mál, úthlutun kola
Magnús Pjetursson:
Mig langar til, úr því farið var að spyrja um kolaúthlutunina, að leggja dálitla fyrirspurn fyrir hæstv. fjármálaráðherra, sem að vísu ekki kemur við úthlutuninni, en er þó um dýrtíðarkolin eða þeirra verð. Þess er sem sje getið í nefndaráliti hv. meiri hluta bjargráðanefndar í dýrtíðarmálinu, að landssjóður hefði varið 490 þús. kr. í afslátt á þessum dýrtíðarkolum. En eftir því, sem fram kom á þinginu í fyrra, var gert ráð fyrir, að úthlutað yrði 2.800 smál., og var þar gert ráð fyrir, að hallinn á hverri smálest mundi nema 100 kr. Menn bjuggust sem sje við því, að koma mundu kol hingað til landsstjórnarinnar, er mundu kosta 200 kr. smál. hjer á höfninni. Nú er það kunnugt, að kolin hafa komið, og verðið var eins og við var búist. Vildi jeg því gjarnan komast á snoðir um, hvernig á því stendur, að hallinn hefir verið bókaður 490 þús. kr., þar sem mjer reiknast svo til, að hann nemi ekki nema tæp 300 þús kr., ef innkaupsverðið er rjett hjá mjer. Jeg spyr að þessu af því, að vjer þm. úti um land stöndum illa að vígi gagnvart fólkinu, því það krefst þess að vita, hvernig getur staðið á því, að hallinn á þessu nemur undir ½ miljón. Vjer höfum auðvitað reynt að þagga þetta niður og höfum slegið á þetta eins og hverja aðra kviksögu, vegna þess, að það kom aldrei fram í þinginu í fyrra, að hallinn mundi verða svona mikill. Enda hefir hann ekki orðið svo mikill fyrir landssjóðinn.