24.05.1918
Neðri deild: 30. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1014 í C-deild Alþingistíðinda. (2284)
48. mál, úthlutun kola
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg vildi að eins taka það fram, út af fyrirspurn hv. þm. Dala. (B. J.), að jeg hygg, að sveitarfjelög og bæjarstjórnir hafi haft þetta hærra verð til þess eins, að hægt væri að selja fátæklingunum með lágu verði, og er gert ráð fyrir því í lögunum, að svo verði farið að.
Svo jeg snúi mjer að hv. þm. Stranda. (M. P.), þá skal jeg játa það, að jeg er ekki sjerstaklega búinn undir að að svara fyrirspurn hans. En þess vil jeg láta getið, að þó að gert hafi verið ráð fyrir því á þinginu í fyrra, að kolin mundu kosta 200 kr. hjer á höfninni, þá hefir hlotið að leggjast mikill kostnaður á þau áður en þau voru komin á land, bæði kostnaður við uppskipun o. fl. Auk þess skal jeg geta þess, að sett var jafnaðarverð á kolin, og kostaði hver smálest eftir því 300 kr. Við þetta jafnaðarverð var miðað við úthlutunina. Ef jeg hefði vitað um þessa fyrirspurn, þá mundi jeg hafa verið betur undirbúinn, en mjer mun vera óhætt að fullyrða það, að jafnaðarverðið var 300 kr., og það var lagt til grundvallar.