24.05.1918
Neðri deild: 30. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1015 í C-deild Alþingistíðinda. (2285)

48. mál, úthlutun kola

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg ætla ekki að blanda mjer mikið í þessa fyrirspurn eða umræðurnar yfirleitt. Það var að eins eitt atriði í ræðu hv. þm. Dala. (B. J.), sem olli því, að jeg stóð upp, og þetta atriði var, að mjer heyrðist ekki betur en hann hafi vítt aðgerðir bæjarstjórnarinnar í Reykjavík í þessu máli. (B. J.: Jeg nefndi ekki neina sjerstaka bæjarstjórn, en ef hv. þm. Reykv. sýnist svo, þá mega orð mín gjarnan eiga við bæjarstjórnina hjer). Það, sem olli mismun kolaverðsins hjer í Reykjavík, var það, að efnaðir menn voru líka látnir fá nokkuð af kolunum. Og þetta var gert til þess, að hægt væri að selja kolin með lægsta verðinu, sem var 75 kr., og fengu þeir einir kolin með því verði, sem fátækastir voru. það má deila um það, hvort rjettlátt hafi verið að láta alltekjumikla menn fá nokkuð af kolunum. En jeg vil að eins benda mönnum á, að það er ekki með öllu ranglátt, því þess ber að gæta, að efnamennirnir hafa borið og koma til að bera þyngstar byrðarnar af dýrtíðarráðstöfunum bæjarfjelagsins, og eiga auðvitað að gera það. Hjá öðrum þjóðum hefir venjan líka verið sú, að þegar líkt stendur á, eins og hjer stóð á, þá hefir hjálpin verið látin ganga jafnt yfir alla, en svo hefir verið tekið af þeim efnameiri með sköttum. Úti um land hefir kolaúthlutununni verið hagað líkt þessu, og þó ver gætt hagsmuna hinna efnaminni heldur en hjer var gert í Reykjavík. Jeg vil geta þessa, til þess að sýna það, að bæjarstjórnin hjer hefir ekki ein haft þessa tilhögun. Vel má vera, og það efast jeg reyndar ekki um, að unt hefði verið að úthluta þessum kolum rjettlátlegar víðar en gert var. En t. d. hjer í Reykjavík vann sjerstök nefnd að undirbúningi úthlutunarinnar og lagði talsverða vinnu í það, og þóttist hún ekki hafa getað fundið heppilegri leið heldur en hún lagði til, og á hennar tillögur fjelst bæjarstjórnin.

Jeg vil taka undir það með hv. þm. Stranda. (M. P.), að það sje ekki rjett að reikna landssjóði svona mikinn halla af dýrtíðarkolunum, þar sem þau kostuðu 200 kr. hjer á höfninni, eftir því sem jeg hefi sannspurt, og þegar þingið samþykti þessa dýrtíðarráðstöfun í fyrra, þá var það gert með hliðsjón af því, að von var á þessum ódýra kolafarmi.