24.05.1918
Neðri deild: 30. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1018 í C-deild Alþingistíðinda. (2288)

48. mál, úthlutun kola

Pjetur Þórðarson:

Mönnum hefði ekki átt að koma það á óvart, að svona fór um úthlutun dýrtíðarkolanna. Því var spáð strax í fyrra, að svona mundi fara. Jeg veit til þess, að í mínu kjördæmi var mikil óánægja yfir því, að nokkuð af þessari ívilnun hlutu stórríkir menn. Þessi óánægja og umkvörtun komst alla leið til stjórnarráðsins í ákveðnu formi, en stjórnin hefir víst ekki sjeð sjer fært að gera neitt við það, fram yfir það, sem í tillögunni stóð. En jeg vona, að þessi fyrirspurn verði til þess, að menn læri af reynslunni fyrir framtíðina. Það kemur stundum fram hjer í deildinni, að menn vilja vera að leika stærri þjóðir, sem geta gefið ívilnanir í dýrtíðinni alment; hjer jafnvel þeim, sem hafa stórgrætt á henni, og ýmsum, sem ekki hafa viljað þiggja. Það eina, sem við kunnum að geta gert, er þá það, að þingið leggi meiri áherslu á það í næsta skifti, að ekki sje nein ívilnun frá landssjóði látin lenda hjá þeim, sem ekki þurfa hennar með. Jeg stóð að eins upp til að leggja áherslu á þetta.