21.05.1918
Neðri deild: 27. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í B-deild Alþingistíðinda. (229)
63. mál, dýrtíðar- og gróðaskattur
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg veit, að það er meira en nógur tími til þess að koma þessu frv. gegnum þingið, ef háttv. Alþingi vill taka því vel og leyfa því að ganga fram.
Sjálfur er jeg ekki í minsta vafa um það, að þessi tekjustofn er sá langrjettlátasti, sem hjer er völ á. Hjer er ekki heldur um það að ræða að hækka skattinn fyr en tekjurnar eru orðnar 30 þús. kr. Þeir, sem hafa slíkar tekjur og meiri, eru manna færastir um að bera skatta, og fæ jeg ekki annað sjeð en að þeir geti vel staðið sig við að leggja fram að auki nokkurt fje til bæjar- og sveitarfjelaga, svo að sú grýla, að þess vegna megi ekki leggja þennan skatt á, er lítilsvirði. Held jeg því, að bæði háttv. þm. Stranda. (M. P.) og aðrir, sem eru á líkri skoðun, geti verið alveg rólegir og þurfi ekki að taka það nærri sjer, þótt skattar sjeu lagðir á slíkan gróða. Skattálagið á upphæð, sem nemur 30 þús. kr., getur ekki talist mjög hátt, og er jeg þess vegna sannfærður um, að það sje fyllilega rjettmætt að leggja þennan skatt á. Hjá öðrum þjóðum, og þar á meðal þeirri þjóð, sem talin er að hafa farið viturlegast að í skattamálum, sem sje Dönum, eru lagðir afarmiklir skattar á stórgróða. Jeg skil alls ekki, að kenna þurfi neitt sjerstaklega í brjósti um þá, sem hafa 30 þús. kr. og þar yfir í tekjur, þótt þeir þurfi að gjalda nokkuð mikið fje til almenningsþarfa. Maður, sem hefir 50 þús. kr. tekjur, greiðir fyrst venjulegan tekjuskatt af 30 þús., en svo kemur fyrst stígandinn eftir 30 þús. og þar til komið er upp í 50 þús.
Sami háttv. þm. (M. P.) talaði um það, að mikið mundi verða lagt á stórgróðamenn til sveitarþarfa. Það getur vel verið, en það eru líka þessir menn, stórgróðamennirnir, eins og jeg tók fram hjer á undan, sem færastir eru um að leggja fram fje, bæði í landssjóðinn og til sveitar- og bæjarsjóðs.