27.05.1918
Neðri deild: 32. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1030 í C-deild Alþingistíðinda. (2295)

53. mál, hækkun á verði á sykri

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Jeg skal taka það fram, að jeg er ekki fyllilega viðbúinn að svara öllu því nú, sem hv. fyrirspyrjandi (E. A.) tók fram í ræðu sinni og liggur utan við fyrirspurnina sjálfa, enda er eigi sanngjarnt að ætlast til þess, að svarað verði þegar um hæl hverju einu á næsta augnabliki, sem slíkt kemur fram.

Fyrirspurn sú, sem hjer liggur fyrir, er í 2 liðum, og skal jeg fyrst taka fyrri liðinn, þar sem spurt er um það, hvers vegna landsstjórnin hækkaði síðastliðið haust útsöluverð á sykri landsverslunarinnar.

Eins og mönnum er kunnugt, var mest af sykri þeim, sem notaður var hjer fyrir stríðið, keyptur frá Þýskalandi og fluttur yfir Danmörku. Í byrjun ófriðarins keypti landsstjórnin og einnig kaupmenn miklar sykurbirgðir frá Þýskalandi, sem fjekst flutt þaðan, meðal annars af því, að landsstjórnin tók einnig þátt í kaupunum. Birgðir þær, sem landsstjórnin keypti þá, voru lagðar til geymslu og hvorki seldar kaupmönnum nje almenningi, enda ekki þörf á því, því að kaupmenn og kaupfjelög höfðu miklar sykurbirgðir. Eftir að þær birgðir fóru mjög að minka og eftirspurnin að aukast eftir birgðum landssjóðs, var farið að selja þær, og þótt þær þá hefðu legið lengi og kostnaður orðið mikill, voru þær þó ódýrari en sykur sá, sem þá fjekst hingað frá Danmörku eða a. m. k. hjelt útsöluverði á þeim sykri niðri. Þegar kom fram á sumarið 1916, er sykurbirgðir landssjóðs og einstakra manna hjer voru komnar að þrotum, fóru að verða erfiðleikar á að fá keyptan sykur frá Danmörku, og þegar kom fram á haustið, tók alveg fyrir sykurflutning frá Danmörku hingað. Þá var farið að leita eftir því fyrir landsverslunina, hvort hægt mundi að fá hingað sykur frá Ameríku og með hvaða kjörum.

Kom það þá strax í ljós, að sykur þaðan mundi verða miklu dýrari hjer en menn hingað til höfðu átt að venjast. Þá var þó þegar fest kaup á töluverðu af sykri frá Ameríku fyrir landsverslunina, og síðast á árinu fjekst loforð dönsku stjórnarinnar fyrir því, að hún á komandi ári myndi, ef nokkur kostur væri á, selja íslensku stjórninni danskan sykur, alt að 1/3 af því, sem telja mætti að þyrfti hingað af sykri yfir árið, með því verði, sem sett væri á sykur í Danmörku, sem reyndist töluvert lægra en hægt var að fá sykur fyrir í Ameríku, og flutningsgjaldið hingað einnig lægra. Þar sem verðið á 1/3 af ársbirgðunum af sykri þannig yrði miklum mun lægra hjá landsversluninni en aðrir gætu fengið sykur fyrir hingað, var þegar auðsjeð, að aðrir myndu ekki geta kept við landsverslunina með sykursölu, þótt hún keypti 2/3 af ársþörfunum í Ameríku og jafnaði svo útsöluverðið. það var þannig ljóst þegar í ársbyrjun 1917, að landsverslunin myndi ein þurfa að sjá landinu fyrir sykurbirgðum. Fyrri hluta þessa árs keypti því landsstjórnin alt að ársbirgðum fyrir landið af sykri, en vegna siglingateppunnar, sem þá varð, og vöntunar á nægilegum skipakosti, varð þó fyrri hluta ársins að takmarka mjög sykursöluna innanlands, og varð það til þess, að nokkrir kaupmenn keyptu þá talsvert af sykri í Ameríku, þar sem þeir bjuggust við því að geta selt það hjer, því mörgum þótti sykurskamturinn of lítill, og myndu því vilja kaupa sykur af kaupmönnum, þó dýrari væri, enda losuðust þá við að eiga í útvegun sykurs gegnum hið opinbera, sem sumir hafa ef til vill talið óþægilega nýbreytni.

Kaupmenn og kaupfjelög munu sumarið 1917 þannig hafa flutt hingað um 700 smál. af sykri og höfðu hann til sölu fram á vetur, enda hafði landsstjórnin ekki hækkað neitt að mun sykurskamtinn, lofaði kaupmönnum að koma út sínum sykri, því gott var fyrir landsverslunina að halda sínum birgðum, þar eð varan geymist vel, og búast mátti við því þá og þegar, að hömlur yrðu lagðar á sykurinnflutning frá Ameríku, eins og einnig kom fram.

Sykurverðið í Ameríku fór fyrri hluta ársins jafnt hækkandi, þann tímann, sem innkaup á sykri til landsverslunarinnar fóru fram, og flutningskostnaður fyrir landsverslunina, sem nær eingöngu varð að nota leiguskip, fór hækkandi, og hækkaði því sykurverðið fyrir landsversluninni hjer að sama skapi, smátt og smátt, en útsöluverðið á sykrinum hjer var þó ekki hækkað, og lágu til þess ýmsar orsakir, meðal annars sú, að sykurverðið hafði verið sett ríflegt í fyrstu, og það, sem fluttist hingað af sykri til landsins fyrri hluta sumarsins frá Ameríku, var tiltölulega ekki mikið hækkað í verði, og fyrri hluta ársins fluttist mikið af hinum lofaða sykri frá Danmörku. Sykurskamturinn, þó naumur væri, var látinn halda sjer, þar sem ganga mátti út frá því, að menn keyptu til viðbótar hjá kaupmönnum, en hins vegar hefði af verðhækkun á sykri hjá landsversluninni að líkindum stafað hærra verð hjá kaupmönnum.

Á sykri þeim, sem kom með eimskipinu „Ísland“ í september, var hækkað svo flutningsverð og innkaupsverð, að óhjákvæmilegt var að hækka útsöluverð sykursins hið fyrsta, ef ekki ætti að víkja stórlega frá þeirri meginreglu um verðlag í landsversluninni, sem fylgt hefir verið að undanförnu.Var því þegar 19. okt. ákveðið að hækka sykurverðið, og skyldi það Hærra verð vera á öllum sykri, sem eftir þann tíma var pantaður utan af landi, en í Reykjavík og nágrenni skyldi verðið hækkað þegar að því kæmi, að þar þyrfti aðallega að taka af birgðum landsverslunarinnar, eða með öðrum orðum þegar kaupmenn hefðu selt upp sykur þann, er þeir höfðu flutt inn, en það varð um 5. nóv.

Bæði kaupmenn og aðrir munu hafa búist við því, að sykurverð landsverslunarinnar mundi hækka um þessar mundir, og það jafnvel fyr, en þegar hækkunin var birt hjer, risu stjórnendur fjelaga þeirra, sem kaupmenn hafa með sjer, bæði innan bæjar og um landið alt, öndverðir gegn þessari hækkun sykurverðsins og kváðu almenningi ofþyngt með henni. En ástæður fjelagsstjórnanna fyrir mótmælum þessum voru í lausu lofti og virtust bygðar á einhverjum smáinnkaupum á sykri, sem einhver kaupmaður hafði gert undir hagstæðum gengismun á amerískum og íslenskum peningum, og enn fremur komið hingað með lægra flutningsgjaldi en landsstjórnin varð að sæta, vegna þess, að hún ljet kaupmönnum eftir ódýrasta skipakostinn, til þess að ýta undir þá að birgja einnig landið upp að vörum. Ekki var heldur tekið tillit til sjerstakra ástæðna landsverslunarinnar í þessu efni, sem lá með mjög miklar birgðir og varð að bera mjög mikinn kostnað og vaxtatap af þeim um langan tíma, þangað til þær seldust og andvirði þeirra fengist inn aftur. Og enn fremur þurfti að hafa lengi peninga fyrirliggjandi í Ameríku með lágum vöxtum. En áður en mótmælin voru hafin leituðu fjelagsstjórnirnar engra upplýsinga hjá landsversluninni, sem nauðsynlegar voru til þess að geta felt rjettan dóm um rjettmæti eða órjettmæti verðhækkunarinnar. Á þessum mótmælum var og er því ekkert að byggja, þótt þær kæmu frá fjelagsstjórnum, sem eiga að hafa sjerstakt vit á slíkum efnum.

Jeg hefi nú leitt rök að því, að nauðsynlegt var, eftir því sem á stóð síðastliðið haust og útlitið var þá fyrir framtíðina, að hækka sykurverð landsverslunarinnar. En nú skal jeg víkja að því, hvort hækkunin hafi verið hæfilega mikil.

Verðlagið á höggna sykrinum var lagt á samkvæmt verðinu á farmi af höggnum sykri, 600 smál., er kom frá Ameríku með e.s. „Ísland“ í september f. á., og var á þessa leið á hverjum 100 kg.:

Verð á höfn í Reykjavík kr. 110,60

Uppskipun, tollur, húsaleiga og brunabótagjald,

rýrnun, afgreiðslukostn. og vextir — 30,10

Flutningsgjald, útskipun, vátrygging og innheimtulaun

til sýslumanna úti um land — 10,80

Samtals kr. 151,50

Verðið var sett kr. 1,60 pr. kg., og hefði þá ágóðinn á kg. orðið 8½ eyrir. Verðið var eins og tíðkast hefir í landsversluninni að undanförnu, þegar breytt hefir verið um verðlag, miðað við verð á því af vörunum, sem síðast kom á undan verðlagningunni. En hagnaður sá, sem að framan getur, hefði hækkað, er tekið er tillit til þess, að um 300 smáí., sem komu með e.s. „Island“ í júlí, voru nokkuð ódýrari en sykurinn, sem kom í sept. Verðlag á þeim sykri var á þessa leið, á hverjum 100 kg.:

Verð á höfn í Reykjavík .. kr. 98,25

Uppskipun, tollur, húsaleiga og brunabótagjald,

rýrnun, afgreiðslukostn. og vextir — 29,30

Flutningsgjald, útskipun, vátrygging og innheimtulaun

til sýslumanna úti um land — 10,20

Samtals kr. 137,75

Á þessum hluta sykurbirgðanna, sem, eins og getið var, voru helmingi minni en hinar, með hærra verðinu, hefði orðið 22% eyris ágóði pr. kg.

Verðlagið á steytta sykrinum var sett eftir verðinu á síðustu sendingu, sem kom með e.s. „Ísland“ í júlí, og var á þessa leið á hver 100 kg.:

Verð á höfn í Reykjavík kr. 97,13

Uppskipun, tollur, húsaleiga og brunabótagjald,

rýrnun, afgreiðslukostn. og vextir — 31,00

Flutningsgjald, útskipun, vátrygging og

innheimtulaun til sýslum. út um land — 11,45

Samtals kr. 139,58

Í verðlaginu var útsöluverðið sett kr. 1,50 pr. kg., og hefði ágóðinn því orðið tæplega 10% eyrir pr. kg.

Af þessu, sem sagt hefir verið, hefði ágóði af sykrinum getað orðið sem svarar 5 aurum á pundi. En þar sem búist var við, að það mundi dragast alt að ári að selja allar sykurbirgðirnar, þótti rjett, að hafa sykurverðið svo ríflegt, að ekki þyrfti að hækka það aftur á því tímabili. Af því engin vissa var þá fyrir sykurflutningi frá Danmörku á yfirstandandi ári, er verðlagið var lagt á, var ekki heldur tekið tillit til sykurs þaðan við ákvörðun verðlagsins.

Á hinn bóginn þótti rjett að láta verða ágóða af sykurversluninni, sjerstaklega þar sem landsverslunin var ein um verslunina og hafði áður haldið niðri verði á honum. Landsverslunin þurfti að hafa hag af sölu þeirra vörutegunda, sem helst gátu borið slíkt, og þar til varð einna helst að telja sykurinn, sem undanfarandi hafði fengist með sæmilegu verði, því landsverslunin hafði í fyrra sumar á undan verðhækkun sykursins orðið að selja aðrar vörur, t. d. steinolíu, undir verði, vegna atvinnuveganna, en það er líka vara, sem er viðlíka alment notuð og sykurinn. Hins vegar er það sjálfsögð verslunarregla að jafna nokkuð vöruverð eftir þörfum og atvikum.

Jeg verð því að halda fast við það, að verðhækkun á sykri hjá landsversluninni hafi síðastliðið haust verið, eins og á stóð þegar hún var gerð, fyllilega rjettmæt og eðlileg, og hækkunin hafi ekki verið ósanngjarnlega mikil, ef nokkur ágóði átti að verða af þeirri vörutegund, sem eftir atvikum var æskilegt.

Þá vík jeg að síðara atriði fyrirspurnarinnar, hvers vegna landsstjórnin hafi lækkað aftur sykurverðið. Eins og jeg hefi áður tekið fram, var sykurverðið aðallega gert með tilliti til ársins 1918, en á því ári mátti ætla, að mest af sykurbirgðunum, sem til voru, seldist, og ekki var hægt að gera ráð fyrir, að ódýrari sykur fengist frá Danmörku, því ekkert loforð var þá fengið fyrir flutningi, eins og áður er sagt. En síðar, í nóvember, fjekk stjórnarráðið símleiðis frá dönsku stjórninni vilyrði fyrir því, að hún mundi selja stjórninni hjer á yfirstandandi ári áþekkar sykurbirgðir og síðasta ár. Þar sem nú víst mátti telja þá, að verðið á þeim sykri yrði líkt og undanfarandi ár, og að hann mundi fást fluttur hingað, eða nokkuð af honum, þegar tímanlega á þessu ári, þótti rjétt að taka tillit til þessa til lækkunar á sykurverðinu.

Í öðru lagi má telja það, að þegar þessar sterku líkur um sykur og sykurflutning frá Danmörku voru fyrir hendi um þær mundir, sem hinar almennu áskoranir um lækkun sykurverðsins komu fram, þótti stjórninni tiltækilegt að lækka verðið aftur.

Í þriðja lagi bættist það við, að um sama leyti ákvað landsstjórnin að breyta fyrirkomulagi á stjórn landsverslunarinnar og gera hana enn óháðari landsstjórninni og sjálfstæðari en þegar var orðið, og þótti þá rjett að binda ekki hendur hinnar fyrirhuguðu stjórnar landsversl. í þessu atriði. Stjórnarbreyting þessi átti að verða þegar um áramótin, og sykurverðið kom aðallega við árinu 1918, eins og áður er drepið á. Það þótti því rjett að láta gamla sykurverðlagið gilda þann litla tíma, sem eftir var af árinu 1917.

Því var í vetur haldið fram í aðfinslum út af sykurhækkuninni, að misrjetti stafaði af henni vegna þess, að sum hjeruð hefðu verið búin að fá sykur, sem dugað geti langt fram á vetur, en önnur hjeruð, sjerstaklega Reykjavík og nærsveitirnar, tækju sykurinn eftir hendinni. Hjer er þess að gæta, að Reykjavík og nærsveitirnar höfðu staðið hest að vígi með kaup á sykri þeim, sem kaupmenn seldu hjer síðastliðið sumar og haust, og haldið var óbeinlínis niðri verði á, eins og jeg áður gat um.

Forstöðumaður landsverslunarinnar, sem eðlilega rjeði hjer mestu og hafði þá viðlíka vald yfir verslun landssjóðs innanlands eins og hinir nýju forstöðumenn landsverslunarinnar hafa nú, hefir gefið þá skýringu á þessu atriði:

„Birgðunum var þannig varið, þegar sykurinn var hækkaður, að reyndar voru þá allmiklar sykurbirgðir úti um flest hjeruð, en af þessum birgðum voru að eins í þrem sýslum birgðir að ráði hjá sýslumönnum. Í hinum sýslunum höfðu kaupmenn, fjelög og hreppar fengið afhent mestan sykurinn, og þann sykur var að minsta kosti ekki hægt að hækka. Ef sykurinn hefði samt verið hækkaður hjá sýslumönnum, þá hefði hækkunin komið misjafnt niður á hjeruðum, sem varð að varast eftir megni. Hjer mætti segja, að misrjetti hefði samt orðið fyrir Reykjavík og nærsveitir. En einmitt þá var von á til Reykjavíkur töluverðum kaupmannasykri með næstu skipum Eimskipafjelagsins, og var búist við, að honum mætti halda í líku verði og undanfarið, þannig, að Reykjavík og nærsveitir gætu birgt sig upp af honum fyrst um sinn. Á þennan hátt fengi Reykjavík og sveitirnar ódýrari sykurinn, nokkurn veginn jafnlangan tíma, ef sykurverðið yrði ekki hækkað á sýslumannabirgðunum. Hitt er annað mál, að verðhækkun á vörum kemur ætið ósjálfrátt nokkuð misjafnt niður, og hefir þannig ætið að einhverju leyti misrjetti í för með sjer“.

Þar sem jeg sagði áðan, að forstöðumaður landsverslunarinnar hefði að mestu verið einráður um sykurhækkunina, þá má enginn skilja orð mín svo, að jeg sje að skella skuldinni, ef um skuld er að ræða, aðallega yfir á hann. Stjórnin lagði það ekki í vana sinn að krefja hann reikningsskapar í hverju smáatriði, en er jeg spurði hann um ástæður sínar fyrir hækkuninni, þá gaf hann þessa skýrslu, sem jeg nú las upp.

Jeg hefi nú skýrt þetta mál eftir bestu föngum og hygg, að það megi nú ljóst vera hv. þm., að góðar ástæður rjeðu bæði hækkun og lækkun sykurverðsins, sem hjer er um að ræða.

Hjer er ekki um „pólitískt“ atriði að ræða, að mínum skilningi, heldur að eins um eitt atriði í framkvæmdum landsverslunarinnar, sem að sjálfsögðu, ásamt mörgu fleiru, heyrir undir athugun hinnar hv. verslunarnefndar, er þessi hv. deild setti á stofn á öndverðu þessu þingi. Má vænta þess, að það, sem á kann að vanta upplýsingar og athuganir, snertandi fyrirspurn þá, sem hjer liggur ,fyrir nú í dag, það fái sínar uppbætur hjá verslunarnefndinni á sínum tíma. Má þá og þess bíða, enda mun jeg halda teknum hætti, að eltast lítt við smávægileg aukaatriði eða útúrdúra, sem umr. kunna að leiða fram.