14.05.1918
Neðri deild: 22. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (23)
4. mál, almenn dýrtíðarhjálp
Fjármálaráðherra (S. E.):
Það er að eins stutt athugasemd. Jeg held, að málið hafi skýrst töluvert við það, sem jeg tók fram, að þessar till. lægju í alt öðru „plani“ en frv. stjórnarinnar
Háttv. frsm. meiri hl. (P. J.) undirstrikaði það mjög sterkt, að tilgangurinn með lögum þessum væri að eins sá, að leyfa þessi lán, til þess að forða mönnum frá beinni hungursneyð. En það er mjög mikið alvörumál, sem þingið verður að athuga vandlega, hvort rjettara er að veita hjálpina í tíma, eða biða þangað til hungrið fer að sverfa að, hvort þingið vill halda þá leiðina, sem hver einasta siðuð þjóð fer, þá leiðina að reyna að draga úr þeirri miskunnarlausu dýrtíð, sem af stríðinu leiðir, eða bíða með hjálpina þar til á síðustu stundu.
Í sambandi við þetta vil jeg benda á það, sem stendur í 1. gr. í frv. stjórnarinnar, og geta þess, að stjórnin lítur svo á, að neyðin sje komin langtum fyr en hungrið fer að gera vart við sig, og vona jeg, að allir sjái, hve óheppilegt það væri, að stjórnin færi að bíða eftir því að hjálpa þangað til hungrið væri komið. Satt að segja held jeg, að það myndi þykja afskaplegur blettur á háttv. þingi, ef farið væri að samþ. þessar brtt. háttv. meiri hl. nefndarinnar, eftir að það hefir sjeð hungurstimplinum þrýst svo fast á þær, eins og háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.) gerði.
Nei, það verður að hjálpa fyr, og þó að horfurnar sjeu ekki góðar, þá vona þó allir, að það verði ekki beinlínis sjálft hungrið, sem fer að hrópa á þessum vetri, en hitt getur vel hugsast, að talsverð neyð verði, sumstaðar að minsta kosti.
Við skulum nú líta á, hvað aðrar siðaðar þjóðir hafa gert í þessu efni. Það er þá fljótsagt, að alstaðar hefir verið reynt að hjálpa fyr en í óefni er komið. T. d. hefir verið gert ákaflega mikið í Danmörku til þess að hjálpa í tíma, ekki þó svo, að mjög mikið hafi verið gert til þess að selja aðfluttar vörur undir verði, heldur hefir verið haft mjög strangt „kontrol“ á verði á öllum útlendum vörum, og sömuleiðis feitmeti, og öllum gert það kleift að fá þær, og eins að því er mjólkina snertir, þá er víst verð trygt á henni. Auk þess hefir atvinnulausum mönnum verið trygð viss upphæð á viku, mig minnir 19 krónur, og sveitar- og bæjarfjelögum lík hjálp og frv. þetta fer fram á. (M. Ó.: Hvar hefir fjeð verið tekið til þess?) Fjeð, sem til þess þarf, hefir vitanlega verið tekið með auknum sköttum. Jeg vona, að allir sjái, að fje það, sem um er að ræða í þessu frv., er ekki hlutfallslega nema örlítið brot af því, sem aðrar þjóðir álíta sjer skylt að hjálpa um. Og hvernig er það — er ekki með þessum lítilfjörlega styrk verið að gera þjóðina færari um að inna það af höndum, sem hún á að leggja fram með því að styðja að því, að sem fæstir velti um? Svo talar háttv. meiri hl. um, að það megi ekki dreifa hjálpinni. En till. hans, sem eru miðaðar við mann, með ákveðnu láni á hvert sveitarfjelag, þær dreifa einmitt hjálpinni, eins og stjórnarfrv, jafnt á sveitarfjelögin, þannig að ekki er hægt að veita einu sveitarfjelaginu hlutfallslega meira en öðru, þótt hlutfallslega sje meiri neyð í öðru en hinu. Að þessu leyti hefir því háttv. meiri hl. fylgt nákvæmlega sama principinu eins og stjórnin, og er því ekki vel samkvæmur sjálfum sjer. En þótt hin hörðu skilyrði nefndarinnar yrðu nú sett fyrir lánunum, er jeg samt hræddur um, að svo gæti farið, að stjórnin mætti til, beint gegn þeim, að veita lán, því að áreiðanlega gæti verið óverjandi að veita ekki hjálp fyr en í það harðasta væri farið.
Með tilvísun til þess, sem jeg hefi tekið fram hjer á undan, leyfi jeg mjer að vænta, að brtt. meiri hl. verði feldar.