27.05.1918
Neðri deild: 32. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í C-deild Alþingistíðinda. (2301)

53. mál, hækkun á verði á sykri

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg hefi lofað hæstv. forseta að gera að eins örstutta athugasemd, svo að ekki þurfi að lengja umræðurnar með því að fresta fundi.

Hv. 2. þm. Árn. (E. A.) var að taka þykkjuna upp fyrir blöðin. Jeg verð að segja, að það væri hart, ef ekki mætti minnast á opinber blöð hjer í þingsalnum. Enda munu þau hafa einurð á að svara fyrir sig annarsstaðar, en jeg er reiðubúinn að standa við það, sem jeg hefi sagt, utan þinghelginnar. Annars veit jeg ekki til, að jeg hafi farið með aðra móðgun í garð blaðanna en að hafa yfir það, sem þau sjálf hafa sagt, en jeg get vel skilið, að þeim þyki lítið gaman að að heyra það endurtekið í þingsalnum.

Út af því, sem hv. 2. þm. Árn. (E. A.) sagði um ræðu mína, að jeg hefði ekkert farið inn á sykurverðið, vil jeg leyfa mjer að minna hv. þm. (E. A.) á, að jeg tók fram þegar í byrjun, að jeg ætlaði ekki að tala um sykurverðið, það er að segja, verðhækkunina eða verðlækkunina.

Atvinnumálaráðherrann hefir að sjálfsögðu svarað þeirri hlið málsins.

Að því er snertir aðgreiningu verslunarinnar frá stjórnarráðinu, þá var það rjett, að meðan verslunin var undir stjórn cand. polit. Hjeðins Valdimarssonar, þá var hún að mörgu leyti alveg skilin frá stjórnarráðinu, þó að skilnaðurinn yrði ekki fullkominn fyr en 1. janúar síðastliðinn. Annars er ekki neitt nýtt fram komið í málinu, sem jeg þurfi að svara; að eins vil jeg undirstrika það, að umræður um þetta mál hafa ekkert að þýða. Málið er fyrir löngu dautt mál. Sykurhækkunin kom engum til útgjalda. Málið er að eins stórt fyrir stjórnarandstæðingana, sem eru þau börn, að þeir halda, að þeir geti unnið stjórninni mein með því.