30.05.1918
Neðri deild: 35. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1078 í C-deild Alþingistíðinda. (2310)

65. mál, Alþingiskvaðning

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg vil fyrst gera þá athugasemd, að það svar, er jeg gef hjer, er aðallega fyrir minn reikning eins, og þótt jeg búist við, að ráðuneytið í heild sinni muni vera líkrar skoðunar í aðalatriðunum, þá er jeg hjer aðallega sá, sem ábyrgðina ber og um er að kenna, því að þau mál, sem snerta Alþingi sjerstaklega, kvaðning þess o. s. frv., heyra undir mína deild. Auk þess má geta þess, að einn ráðherrann, atvinnumálaráðherrann, var helst þeirrar skoðunar, að efasamt væri, hvort þörf væri á að kalla aukaþing þetta saman fyr en á venjulegum tíma, eða í júlí, þótt hann gæfi samþykki sitt til þess, að það væri kvatt saman 10. apríl. Fjármálaráðherra var aftur eindregið þeirrar skoðunar, að kalla ætti þingið saman eigi síðar en gert var.

Þegar jeg var að leggja af stað á konungsfund í fyrra vor, þá fjekk jeg tilmæli um það frá stjórn Sjálfstæðisfjelagsins að reyna að koma því til leiðar í utanför minni, að fullkominn verslunarfáni fengist fyrir Ísland. Jeg reyndi fyrir mjer um þetta og ræddi málið meðal annars við forsætisráðherra Zahle. Tók hann það fram, að hann hefði ekki búist við því, að þetta mál yrði tekið svona fljótt upp aftur, og minti á ummæli sín í ríkisráði 22. nóv. 1913, að frekari aðgerðir í fánamálinu, eða breytingar á hinum almenna siglingafána fyrir utan landhelgi, yrði að bera undir ríkisþing Dana, og að hann ekki gæti sætt sig við það, að þetta mál væri tekið út úr, heldur teldi hann, að rjett væri, ef fara ætti að breyta sambandinu milli landanna, að taka þá upp í einu alt sambandið milli landanna. Annars var það talið þar í Danmörku óráðlegt af sumum að taka þessi mál upp meðan á ófriðnum stæði, og þá sjerstaklega fánamálið. Frá þessu skýrði jeg þingmönnum, er Alþingi kom saman í fyrra sumar. Jeg þóttist ekki geta færst undan að þreifa fyrir mjer um þetta mál, þótt jeg hefði ekki fengið tilmæli um það, nema frá einum stjórnmálaflokki, sem ekki skipar nema minni hluta þings, því að fyrst og fremst taldi jeg alla þingmenn mundu vera samhuga í málinu, og þar að auki mundi allur þorri þjóðarinnar þessu máli eindregið fylgjandi. — Sú varð og raunin á, að þingið alt var hjer á sama máli og afrjeð að halda málinu fram. Og þótt í fyrstu væri lítið eitt deilt um það, hvort rjettara væri að samþykkja frumvarp um fána eða þingsályktun um útvegun konungsúrskurðar um fullkominn siglingafána, þá hurfu allir þingmenn að því ráði, að fara þingsályktunarleiðina, en það var tekið fram, að þótt svo væri að farið, þá væri þingviljinn hinn sami, sem lög væru samþykt. Eftir þeim undirtektum, sem jeg hafði fengið um vorið, var ekki örgrant um, að þingið bæri kvíðboga fyrir því, að komið gæti fyrir, að erindið um fánann fengi ekki áheyrn, en þingið vonaði þó, að þegar það sæist, að alt þingið væri einhuga með þjóðina að baki sjer, þá mundi sigurvænlegt. Því kom sú spurning fram á þinginu í fyrra, hvort ráðuneytið ætlaði að gera synjun um fánann að fráfararefni; það varð þá að ráði, með samþykki þingsins eða viðkomandi nefnda, að gera það ekki milli þinga, því ófært þótti, að landið væri stjórnlaust nokkra stund á þessum tímum, en skjóta skyldi málinu til þingsins á þann hátt, sem jeg gerði á ríkisráðsfundi 22. nóv. f. á., ef synjað væri um fánann.

Nú stóð svo á, að ráðuneytið tekur að sjer að flytja erindi fyrir þingið, erindi, sem bæði þing og þjóð leggja afarmikla áherslu á að fram gangi, en ráðuneytið fær synjun hjá hans hátign konunginum. Eftir rjettum reglum hefði nú ráðuneytið átt að gera synjunina að fráfararefni, en eftir því, sem í garðinn var búið, er ekki hægt að saka það fyrir, þótt það gerði þetta ekki, en þar með var alls ekki loku fyrir það skotið, að þingið gæti ekki krafist þess, er það kom saman, að ráðuneytið, eða jeg sjerstaklega, færi frá. Þingið hafði fullan rjett á að segja við mig: þú hefir tekið að þjer að flytja erindið um fánann, erindi, sem mjer var umhugað framar öðru. Þjer hefir mistekist. Þú verður því að fara. Þetta vakti fyrir mjer, er synjað var um fánann, og því útvegaði jeg samstundis heimild til að kveðja þingið til fundar hve nær sem væri á árinu 1918, með það í huga að gera það sem fyrst, enda leit jeg svo á, að málið væri að öllu svo vaxið og það komið í það horf, að þingið ætti beint heimting á því, að fá að fjalla um það sem fyrst. Það var því stjórnarfarslega fyllilega rjettmætt að kalla þingið saman svo snemma á þessu ári, sem fært þótti. Þess vegna hefði þessi fyrirspurn miklu fremur átt að vera orðuð þannig: Hvers vegna var þingið ekki kvatt til fundar fyr en 10. apríl. En þar til er svarið vitanlega, að þetta dróst svo vegna tíðarfarsins í vetur, íshindrana og hörku.

Þetta, sem jeg nú hefi talað, er að minni hyggju eitt ærið nóg til þess að sýna, að það getur ekki komið til mála að saka stjórnina fyrir það, að ekki var dregið lengur en gert var að kalla þingið saman.

En, segja sumir, það átti ekki að taka upp fánamálið í fyrra, það varð fyrirfram vitað, hvernig fara mundi, en tímarnir eru þannig, að um annað er fremur að hugsa. Enginn skyldi ætla, að þeir, scm þannig líta á málið, sjeu verri Íslendingar en hinir, eða síður ant um að fá fánann. Það er eins og áður; markið er hið sama, en vegirnir einatt ekki hinir sömu. Það hafa auk heldur komið fram í blöðunum raddir í þá átt, að þingið hafi ekki átt með að koma fram með fánamálið, það hafi ekki verið til þess kosið. Mjer virðist hjer kenna mikils misskilnings. Alþingi er auðvitað til þess kjörið að ráða öllum málum þjóðarinnar, með þeim takmörkum einum, sem stjórnarskráin setur. En þá er hin ásökunin, að það hafi verið óhyggilegt að fitja upp á fánamálinu einmitt nú. Rjettara að bíða til ófriðarloka. — Jeg skal nú ekki tína ástæður þær, er færðar hafa verið fyrir því, að oss sje einmitt nú svo afar nauðsynlegt að fá fullkominn fána viðurkendan; um það hefir verið deilt. En jeg hygg, að málið sje ofureinfalt, ofurljóst, ef menn gefa sjer tíma til að athuga allan haginn, allan aðdraganda.

Frá upphafi hefir vakað hjá oss öflug og lifandi tilfinning þess, að vjer erum sjerstök þjóð, sem byggjum eigið land og höfum eigna tungu, með öðrum orðum: þjóðernistilfinningin hefir jafnan verið vakandi hjá oss. Jafnvel á hinum mestu niðurlægingartímum þjóðarinnar hefir þjóðernistilfinningin þó ekki sofið. — Jeg skal ekki fara mikið út í stjórnmálasögu landsins, að eins minna á það, að síðan fyrir miðja síðustu öld hefir hin íslenska þjóð barist fyrir því að fá það viðurkent, að vjer eigum rjett á að ráða öllum vorum málum og að vjer sjeum ekki undir yfirdrotnun annarar þjóðar gefnir. Þótt vegir hinna ráðandi manna hjer hafi ekki ávalt verið þeir sömu, þá hefir markið þó verið eitt, viðurkenning á fullrjetti. Sýnilegt tákn þjóðernisrjettarins er fáninn, en þýðing fána, sem tákn þjóðernis, kemur í rauninni svo að segja eingöngu fram í rjettinum til að hafa hann á skipum hvers lands. Nú fengum vjer 1913 viðurkendan rjett vom til þess að hafa eigin fána að þjóðernistákni á íslenskum skipum innan landhelgi Íslands, en í siglingum til annara landa megum vjer ekki sýna þannig þjóðerni vort, heldur verðum að hafa þjóðernisfána Danmerkur. Fyrir mjer hefir það ávalt staðið svo, sem það væri í rauninni fremur lítils virði út af fyrir sig að hafa leyfi til að sýna þjóðernisfána á skipum landsins að eins í landhelgi, eða með öðrum orðum að eins heima fyrir, en vera fyrirmunað að gera það annarsstaðar, eða einmitt þar, sem aðallega er ástæða til þess. Það, sem ávanst 1913, tel jeg samt mjög mikils virði, en að eins sem spor í áttina til marksins, viðurkenningar fullkomins siglingafána. — Að ekki hefir verið fylgt fastara fram fullkomnari fánakröfu hingað til hygg jeg að hafi komið meðfram af því, að hin almenna skoðun var sú, — og skal jeg viðurkenna, að jeg fyrir mitt leyti hjelt þeirri skoðun fram, — að ekki fengist viðurkendur fullkominn íslenskur siglingafáni, nema áður væri fengið viðurkent fullveldi landsins, eða þá að minsta kosti viðurkent um leið. Nú hafa þeir hlutir, sem eru að gerast í heiminum, breytt mörgu í skoðunum manna, afmáð ýmsar kreddur, og umsteypt ýmsu, er áður voru talin svo sem trúaratriði. Nú ætti ekki að þurfa að búast við því, að fánakrafa vor strandaði á kreddum einum. — Og það er eitt sjerstaklega, sem mjer finst að ætti að gera það skiljanlegt, að fánakrafan fjekk byr undir báða vængi, og það er það, að nú er haldið mjög á lofti í umheiminum þjóðernisrjettinum, rjetti smáu þjóðanna, sem hinna stærri. Það hlýtur að hafa áhrif á Íslendinga að sjá höfðingja hinna voldugu þjóða í orði viðurkenna þetta, sem stöðugt hefir haldið uppi staðfestu vorri og djörfung í sjálfstæðisbaráttu vorri. Það mátti því telja það nær því eðlisnauðsyn, að þessi sjerstaka þjóðerniskrafa vor, fánakrafan, kæmi fram einmitt nú. — En eins og sagt er, strandaði hún á mótstöðu frá Dana hálfu.

Þegar það var ráðið, að synja skyldi um fánann, þá var því hreyft af Dana hálfu, að rjett væri að reyna heldur almenna samninga, og jafna á þann hátt í einu öll deilumál milli landanna, heldur en að taka svona eitt mál út úr hinum sameiginlegu málum, sem svo eru talin. Það væri mjög svo þreytandi, þessar deilur um einstök atriði, hvert eftir annað, og spilli góðri sambúð yfirleitt. Jeg hjelt því fram, að almennar samningsumleitanir ættu ekkert að koma fánamálinu við; það væri einungis íslenskt mál og kæmi ekkert hinum sameiginlegu málum við, og gæti jeg því ekkert tekið í þessa uppástungu um almenna samninga í sambandi við fánamálið. Zahle kvaðst vel skilja þessa afstöðu mína, eftir því sem skoðun Alþingis væri á málinu, en hann væri nú á annari skoðun. Að öðru leyti ljet jeg það þá í ljós, að jeg hefði ekkert umboð til að taka undir uppástunguna um samningaumleitanir, að jeg gæti ekkert sagt um það, hvort Alþingi væri fúst til að taka þær upp, enda ljet jeg í ljós, að jeg væri ekki sjerlega vongóður um, að hepnast mundi að ná samkomulagi í einu um alt. Því var þá og um leið skotið fram frá Dana hálfu, að hentugt mundi má ske að taka upp samningaumleitanir á þann hátt, að maður eða menn kæmu hingað frá Danmörku í því skyni. Jeg fór svo frá Kaupmannahöfn í vetur, að jeg hafði alls enga afstöðu tekið til þessa samningaboðs; að eins ljet jeg það í ljós, að ef til þess kæmi, þá teldi jeg líklegustu leiðina, að sendimaður eða menn kæmu hingað.

Þegar jeg kom heim, skýrði jeg þeim þingmönnum, er náð varð saman hjer, frá afdrifum fánamálsins, og ljet þess um leið getið, að kostur væri á almennum samningum. Í fyrstu voru undirtektirnar undir það fremur daufar, en nokkru síðar hreyfði jeg málinu aftur við allmarga þingmenn, og taldist þá mega gera ráð fyrir, — þar sem því hafði verið skotið fram frá Dana hálfu, — að sendimenn kæmu hingað. Allir þeir þingmenn, sem jeg þá talaði við, tóku vel í málið, og þóttist jeg því geta skrifað það til Danmerkur, að útlit væri fyrir, að þingið mundi gera það, og frá þessu skýrði jeg. Þegar Alþingi kom saman, hnigu allir flokkar þingsins að því ráði, að hafna ekki tilboðinu um samningaumleitanir, en jafnframt skýrði jeg hinum aðiljanum frá því og ljet skýra,að jeg hefði reift málið á þeim grundvelli, að maður eða menn kæmu hingað. Það er því auðsætt, hve fjarri sanni það er, að vjer höfum heimtað samninga í ákveðnu formi eða ákveðnum stað. Vjer höfum að eins tekið kurteisu boði. Þegar brjef mín um, að sennilegt væri, að Alþingi tæki vel í málið, komu til Danmerkur, var komið nálægt kosningunum þar, og fjekk jeg þá það svar, að danska stjórnin gæti ekkert frekar átt við málið fyr en eftir kosningarnar. Mjer kom þetta á óvart, því að mjer hafði verið sagt, að tilboðið um upptöku samninga, eins og reyndar alt, sem kæmi frá Dana hálfu í Íslandsmálum, væri gert með ráði allra flokka þar. Þess vegna hafði jeg ekki ástæðu til að ætla, að sending manna hingað stæði svo í sambandi við kosningarnar þar, að þeir gætu ekki komið hingað fyr, þótt jeg gæti ímyndað mjer, að samningum kynni ekki að verða lokið fyr en eftir að ríkisþingið kæmi saman að kosningunum loknum; en sendimenn hlutu að geta borið sig saman við Danastjórn í símskeytum. Að kosningarnar í Danmörku stæðu þannig í sambandi við sendiför hingað skildi jeg ekki þá, því síður, sem það var eins vel búist við því, er um þessar samningaumleitanir var talað í Kaupmannahöfn í vetur, að þingið kæmi saman enn fyr en varð.

Drátturinn frá Dana hálfu verður reyndar nokkuð skiljanlegri nú, er vitneskja er fengin um, að bryddir á því, að þetta mál sje orðið að deiluefni milli flokkanna í Danmörku. En þótt jeg hefði vitað fyrirfram, að þessi dráttur yrði, þá hefði jeg samt ekki talið forsvaranlegt að draga það lengur en gert var að kveðja þingið til fundar. Áður en þingið kom saman og svar þess var fengið um samningsboð Dana gatdanska ráðuneytið ekki gert frekara í málinu, og það mátti altaf búast við, að einhvern undirbúning þyrfti frá Dana hálfu, áður en sendimenn kæmust af stað, ef svar Alþingis yrði játandi. Á hinn bóginn er það vitanlegt, að því meiri dráttur, sem orðið hefði á því, að Alþingi kæmi saman, því meiri dráttur hlaut að verða á öllum þessum málum, en mjög mikið tómlæti frá vorri hálfu í málunum þótti mjer lítt sæmandi. — Jeg verð því að halda því fram, að einnig með mögulegar samningaumleitanir fyrir augum hafi ekki verið fært að draga lengur en gert var að kveðja þingið saman. En þessa dagana verður úr því skorið, hvort af samningaumleitun verði.

Jeg gat um það, að raddir hafi heyrst um það, að það hafi verið órjett af þingi og stjórn að vera að taka þessi mál upp nú, fánamálið eitt, eða sambandsmálið í heild. Er talið, að sje vitanlegt, að Dönum er þetta viðkvæmt mál og verði heldur til að vekja gremju hjá þeim, og ef samninga verði leitað, en ekkert samkomulag fengist, þá sje ver farið en heima setið, því að þá muni spilt vinfengi Dana, en Danir hafi verið oss mjög innan handar og hjálpað og aðstoðað á margan hátt, meðan á ófriðnum hefir staðið, og þessi hjálp sje oss nauðsynleg.

Það sje fjarri mjer að gera lítið úr þeirri greiðasemi, sem vjer njótum hjá Dönum, án þess að vjer látum nokkuð í móti. Mjer hefir fallið það illa, er jeg hefi sjeð þetta vanþakkað og gert lítið úr í blöðum hjer á landi, en sem betur fer hafa og heyrst raddir í blöðunum, sem viðurkenna greiðasemi Dana. Mjer er það kunnnugra en flestum öðrum, með hve mikilli greiðasemi og góðum hug dönsk yfirvöld og stofnanir hafa greitt fyrir viðskiftum vorum. Og hefir þetta verið af atriði meðal annars fyrir skipakaup vor, vörukaup og peningalán. Vjer höfum fengið skip vor frá Danmörku, Lagarfoss, Willemoes og Borg. Þetta hefðum vjer ekki fengið annarsstaðar á sama tíma, án nokkurs greiða móti, því að alstaðar er þess gætt, svo sem verða má, að verslunarflotinn minki ekki. Útflutningsbann er á skipum, og sala til annnara landa eigi leyfð á þeim, nema einhver fríðindi komi á móti, önnur en kaupverðið. En Danir hafa viðstöðulaust veitt útflutningsleyfi á skipum til Íslands og greitt fyrir leigu á þeim. Sterling fengum vjer að vísu frá Svíþjóð, en að eins fyrir milligöngu Dana, og gegn mikilsverðum greiða frá þeim. — Yfirleitt hefir jafnan verið útflutningsleyfi á vörum hingað frá Danmörku, og höfum vjer fengið mikið þaðan af nauðsynjavörum; skal jeg að eins nefna rúgmjöl og sykur. Rúgmjöl hefir numið nú síðast 5.000 tons um árið, sykur síðustu árin 1.000 tons, og hefir þetta ekki verið gróði fyrir Danmörku, því að þá hefði mátt fá bæði miklu meira verð fyrir þetta annarsstaðar en hjer, og auk þess einhver hlunnindi á móti.

Peningalán fengum vjer allmikið hjá 5 stærstu bönkunum í Kaupmannahöfn fjelagi við íslensku bankana, 7½ miljón króna, þar af 11/3 miljón frá íslensku bönkunum, og hjá einum hinna nefndu 5 banka, Handelsbanken, sem jafnan hefir sýnt Íslandi velvild, þar að auki miljón króna lán, auk dálítils hlaupareikningsláns. Vaxtakjörin voru sanngjörn af hálfu dönsku bankanna, eftir því sem nú gerist og þegar ræða er um lán til annars lands. Yfirleitt eru löndin nú lítið fyrir að veita erlend lán, nema gegn miklum beinum og óbeinum hagnaði. Við lántöku þessa, sem um tíma átti örðugt uppdráttar, naut jeg aðstoðar forsætisráðherra Zahle og fjármálaráðherra dr. Edvard Brandes. Auk þess leyfði dr. Brandes, að 2½ miljónar skuld, sem Ísland var komið í við ríkissjóðinn danska, mætti standa vaxtalaust og afborgast eftir hentugleikum. Jeg bauð, að greiddir væru vextir af skuldinni, er hún væri orðin svona há, en dr. Brandes vildi ekki heyra það, og sagði, að þessi viðskifti væri nú orðin yfir 40 ára gömul og aldrei reiknaðir vextir. Síðar hefir fjármálaráðherra boðið vexti.

Jeg sagði, að dönsk stjórnarvöld hefðu sýnt oss velvild og greiðasemi. Þetta á ekki síst við utanríkisráðherra Scavenius, sem jafnan hefir tekið í málaleitanir hjeðan með velvilja og fullum skilning á aðstöðu vorri. Það má nefna það, að það var góðri milligöngu hans meðal annars að þakka, að vjer fengum Sterling, og ekki síst ber að láta þess getið, að hann hefir alls ekki blandað sjer í þær ráðstafanir, er Ísland hefir gert á ófriðarárunum í beinum viðskiftum við erlend ríki, svo sem í samninga og sendifarir til London og Vesturheims. Þetta afskiftaleysi hans hefir ekki líkað öllum fyrir handan Pollinn, en jeg heyrði haft eftir honum, að hann hefði svarað einhverjum, sem að þessu var að finna, að sjer virtist Íslendingar hafa komið vel ár sinni fyrir borð, og það væri ekki ástæða til annars fyrir Dani en að gleðjast af því.

Þótt jeg fúslega viðurkenni alt þetta og þyki leitt, að það skuli ekki alment metið hjer að verðleikum, þá teldi jeg það illa farið, ef það hefði nokkur áhrif á afstöðu vora í sjálfstæðismálunum eða tefði nokkuð viðleitni vora við að fá viðurkendan fullan þjóðernisrjett vorn. Jeg er þess fullviss, að þeir, sem mestu hafa ráðið um allar þessar fyrirgreiðslur í Danmörku, hafa ekki látið sjer detta í hug, að með þessu væri keyptur nokkur afsláttur á sjálfstæðiskröfum vorum.

En setjum svo, að þær raddir hefðu eitthvað til síns máls, sem telja það rangt af þingi og stjórn að fara nú af stað með fánamál og önnur mál, sem Danir kysu heldur að kyr lægju, þá hefði samt verið ástæða til að kalla þingið saman sem fyrst, því að þá væri stjórnin í alvarlegri sök, og bætti það ekki fyrir henni að skjóta sjer undir þingið, því að engin stjórn má taka að sjer að flytja mikilsvert mál, sem ekki er rjettmætt, bæði að efni og tíma, og missýnist henni í því eða mistakist, þá á hún að fara frá, hvern þátt sem þingið svo hefir átt í því.

Hvernig sem litið er á þessi mál, þá virðist mjer einsætt og ómótmælanlegt, að borið hafi, eftir rjettum stjórnarfarsreglum, að kveðja þingið saman eigi síðar en gert var, og að það hafi alls ekki mátt dragast lengur.

Þá virtist mjer þörf á því að kalla þingið saman vegna vandræða þeirra, sem af styrjöldinni stafa. það var talið sjálfsagt í þinginu í fyrra, að aukaþing yrði í ár, en ekkert um það sagt, á hverjum tíma. Nú lít jeg svo á, að ástandið sje þannig, að í rauninni væri heppilegast, þannig, að í rauninni væri heppilegast að þingið væri stöðugt saman. — það er altaf nóg um að hugsa og úr að ráða, ef menn að eins vilja skilja, að nú eru aðrir tímar en venjulega.

Það má heita, að vjer Íslendingar höfum enn sem komið er ekki orðið mikið varir óþæginda af ófriðnum, í samanburði við flestar aðrar þjóðir. En nú erum vjer að byrja að finna til þess fyrir alvöru. Vjer verðum að haga oss svo og búa oss svo út, sem stöðugt þrengi meir og meir að. Enginn veit, hve nær ófriðnum linnir, en hitt veit hver maður, að nú muni fara hríðversnandi fyrir hlutlausar þjóðir, og þá ekki síður fyrir oss.

Ráðuneytið þóttist sjá fram á, að tímar þeir, er nú fara í hönd, mundu verða mjög örðugir fyrir landið, framleiðsluskilyrðin fyrir vörur til að senda á erlendan markað versna, og má ske verða þannig, að ekki væri unt yfir höfuð að framleiða, að örðugleikar á því að fá nauðsynjavörur að verði æ meiri og meiri, og þær vörur sjerstaklega hækka í verði, svo að nauðsynlegt yrði að takmarka sem mest kaup á vörum frá útlöndum. Það er sem sje augljóst, að ef mikið af afardýrum neysluvörum er keypt frá útlöndum, en vörur þær, er vjer höfum á móti að láta, eru framleiddar með skaða, eða þannig, að það í rauninni hreint peningalega borgaði sig betur út af fyrir sig að framleiða þær ekki, þá sekkur landið fljótt í óbotnandi skuldir við útlönd.

Ráðið við þessu er að reyna að láta landið sjálft framleiða sem mest af því, sem vjer þurfum að nota, því að jafnvel þótt sú framleiðsla verði kostnaðarsöm, þá verður landið í heild ekki fátækara fyrir hana. Nú er það vitanlega aðallega sumartíminn, sem notaður er hjer til framleiðslunnar, og ráðuneytið taldi, að ekki væri of fljótt til tekið, þótt farið væri þegar á þessu sumri að gera kröftugar og almennar ráðstafanir í þessa átt. Það hafði hugsað sjer, að þingið mundi vilja taka höndum saman við stjórnina um þetta, og þá varð þingið að koma saman fyrir sumarið. Það yrðu engar slíkar ráðstafanir gerðar á sumrinu, ef þingið kæmi ekki saman fyr en í júlí. Nú heyri jeg þingmenn segja, að stjórnin hafi ekki lagt svo mikið fyrir þingið í þessa átt. Það er að vísu að nokkru leyti rjett. Þó voru lögð fyrir það í byrjun tvö frumvörp, bæði um dýrtíðarhjálp og fráfærur. Það er kunnugt, hvernig fór fyrir fráfærnafrumvarpinu, sem átti að vera nokkurskonar prófsteinn á því, hvort þingið vildi hallast að þeirri stefnu að reyna að framleiða sem mest af mat til neyslu í landinu. Það er og kunnugt, hve erfitt dýrtíðarhjálparfrv. stjórnarinnar hefir átt uppdráttar. Landsstjórnin hefir látið vinna kol á Tjörnesi; það hefir orðið skaði fyrir landssjóð af námunni, en að minni hyggju ekki skaði fyrir þjóðina. Nú vilja þingmenn helst hætta við þessa framleiðslu. Stjórnin telur nauðsynlegt að hafa heimild til að veita atvinnulausu fólki atvinnu. það vill þingið ekki leyfa.

Jeg býst við, að þegar svona er ástatt, þá sje eðlilegt, að stjórnin sje tregari til að hafa frumkvæði að till. til bjargráða. Annars hafði stjórnin hugsað sjer, að samvinnan milli þingsins og hennar yrði má ske ekki nú fólgin svo mjög í tilbúningi fjölmargra lagafrumvarpa, heldur í því, að taka saman ráð sín um það, hvernig fá má þjóðina til að spara alt, sem sparast getur, setja t.a.m. niður kornvöruskamtinn svo sem verða má, uppörfa þjóðina til að afla sjer innlendra ætigrasa, fjallagrasa o. s. frv., leiðbeina í notkun fæðunnar, má ske gera ráðstafanir til, að ungir vinnufærir menn og konur, sem ekki starfa annars að framleiðslu, gerðu það um tíma, svo sem í þegnskylduskyni. En jeg verð að segja það, að hingað til virðist mjer, sem hv. þm. hafi ekki haft fullan skilning á nauðsyninni á sjerstökum ráðstöfunum í þessa átt.

Og ef ekkert breytist hugur þeirra að þessu leyti, þá verð jeg að játa, að þessara mála vegna gerir má ske ekki svo mikið til, hvort þingið kom saman fyr eða síðar. En jeg vona, að augu hv. þm. hafi þessa dagana lokist upp fyrir alvörunni, og að þeir skilji betur, hvert stefnir, ef ekki er tekið til kröftugra ráða í tíma. Og þá er ekki ófyrirsynju þingið saman komið heldur fyr en síðar.

Þá var það vitanlegt, að hagur landssjóðs var að verða mjög athugaverður og að einhver ráð þurfti að finna til þess að útvega honum tekjur. Nú er óhætt að byggja á því, að að minsta kosti tvö tekjufrumvörp stjórnarinnar, sem lögð hafa verið fyrir þetta þing, verði að lögum 2-3 mánuðum fyr en orðið hefði, ef þingið hefði ekki komið saman fyr en í júlí. Það, sem landssjóði græðist við það, að lögin komast þessum mun fyr í gildi, ætti að minsta kosti að verða nóg til að borga þingkostnaðinn.

Jeg þykist með því, sem jeg hefi tekið fram, hafa sýnt það og sannað, að það hafi ekki að eins verið forsvaranlegt að kveðja þingið saman þegar gert var eða ekki síðar, heldur hefði annað verið óverjandi.

Þá hefi jeg svarað fyrirspurninni alment, eins og hún lá fyrir á þgskj. Öðru því, sem hv. fyrirspyrjandi (S. St.) tók fram í ræðu sinni, er þar með í rauninni fullsvarað, svo að eigi virðist þurfa að rekja þetta mál frekar. Þó skal jeg geta þess, að mjer virtist hann gera ærið mikið úr örðugleikum þm. við þingför í vor. Það er ekki langt síðan, að lögmælt voru vetrarþing, og sýnir það, að menn hafa ekki talið ókleift að fara til þings, jafnvel um miðjan Vetur. Jeg hygg, að hv. þm. (S. St.) hafi haft ferð sína sjerstaklega í huga, er hann gerði þetta atriði að umtalsefni; hún mun að vísu hafa verið erfið. En jeg get ekki svarað neinu góðu til, þó að hann eða aðrir þm. kvarti undan þessum örðugleikum. Hv. þm. verða að sætta sig við að koma til þings þegar kallað er. Hitt getur altaf komið fyrir hjer, að menn hreppi ill veður á ferð, sjerstaklega á sjó, jafnvel á sumrin. Þegar rætt var um það fyrir skemstu hjer á þingi, hvort rjettara væri að hafa regluleg þing á sumrum eða vetrum, þá voru mjög skiftar skoðanir um þetta. Þessi umkvörtun um tímann virðist því ekki á miklum rökum bygð.