30.05.1918
Neðri deild: 35. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1105 í C-deild Alþingistíðinda. (2312)
65. mál, Alþingiskvaðning
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg get ekki sjeð, að nein þörf sje í rauninni á því, að svara hinni síðari ræðu hv. fyrirspyrjanda (S. St). Mjer virðist ekki hafa komið neitt það fram, sem ekki er þegar svarað að fullu, og jeg legg ekki í vana minn að taka upp aftur það, sem jeg hefi áður sagt, — geri það að minsta kosti ekki að þessu sinni. Að eins skal tekið fram það, er hjer segir:
Þar sem hv. fyrirspyrjandi (S. St.) segir, að jeg hafi heitið þm. einhverju um samninga við Dani, þá er það algerlega rangt. Jeg hefi ekki heitið neinu um það. Jeg hefi að eins skýrt hv. þm. frá því, hvað jeg hafi að gert og hvað gerst hafi í málinu, sýnt þeim skeyti og yfir höfuð látið þá vita alt, sem farið hefir milli mín og danskra stjórnarvalda um þetta mál. Það er því tilhæfulaust, að jeg hafi gint þingmenn á nokkurn hátt. Enda hefir alt, sem jeg hefi sagt, verið staðfest með símskeytum og á annan hátt, eins og hv. þm. vel vita.
Það er líka rangt hjá hv. fyrirspyrjanda (S. St.), að hugmyndin um þingfrestun, sem var á döfinni fyrir hvítasunnuna, hafi verið frá mjer runnin. Það voru ýmsir aðrir þm., sem komu með þá hugmynd. Hefðu verið komin skýr svör frá Dönum um það, að þeir ætluðu að senda menn hingað, og hefðu þeir tiltekið ákveðinn tíma til komunnar síðar, þá gat verið talsmál að fresta þinginu þangað til sendimenn kæmu. En eins og á stendur, er vjer höfum ekki fengið fulla vissu fyrir komu þeirra, þá getur ekki verið um frestun á þinginu að ræða.
Jeg finn enga ástæðu til að afsaka, að stjórnin kemur ekki fram með fjáraukalög fyrir þingið. Satt að segja finst mjer þær ásakanir koma úr hörðustu átt, er sparnaðarmaðurinn hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) er að álasa stjórninni fyrir það. það hefir verið um það deilt, hvort rjett væri að leggja fjáraukal. fyrir aukaþing. — Það er mjer alveg óskiljanlegt, hvernig hv. fyrirspyrjandi (S. St.) fer að tala um hugrekki eða hugleysi stjórnarinnar í þessu sambandi. Væri það svo sem nokkur vottur um hugrekki, þótt stjórnin hefði lagt fram fjáraukalög? Auðvitað hvorugt.
Jeg er alveg samdóma hv. fyrirspyrjanda (S. St.), að frumkvæðið í fjárveitingum eigi að koma frá stjórninni, og hún á að ráða miklu um það, hverjar fjárveitingar komast að, en sú skoðun hefir ekki fengist viðurkend hjer á þingi. Þó bæði jeg og aðrir hafi haldið því fram, þá hefir ekki verið við annað komandi en að halda þeirri reglu, að tillögurjettur hvers einstaks þingmanns að þessu leyti sje jafnhár rjetti stjórnarinnar.
Vel má vera, að hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) þyki miklu eytt og telji, að mikið mætti spara. Má vera, að svo sje. En mjer finst ekki, að hv. þm. (S. St.) hafi fullan skilning á því, að tímarnir eru aðrir en áður hafa verið. Nú er ekki með nokkru móti hægt að komast hjá því að eyða, og það jafnvel stórupphæðum, sem hvorki stjórninni nje öðrum hefði dottið í hug að eyða fyrir stríðið, að jeg ekki nefni fyrir 10—20 árum síðan. Sem betur fer eru peningarnir ekki eins mikils virði og áður. En það færi illa, ef eyðslusemin væri eins óttaleg og hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) vill láta af. Jeg get ekki sjeð, að stjórnin gangi á undan með neina fjáreyðslu, þó hún kalli þingið saman. Það er ekki heldur rjett, að þingið sje kallað saman, einungis vegna eins máls. Dýrtíðarráðstafanirnar gátu verið nægilegt viðfangsefni fyrir þingið, ef það hefði viljað snúa sjer að þeim. En jeg verð að segja það, að mjer finst ekki hafa kent þeirrar alvöru hjá hv. þm. í þessu máli, sem jeg hafði búist við. Vonandi fara nú hugir manna að snúast meira að því, er þeir sjá, hvað nú er að gerast.
Jeg vona, að þótt landssjóður þurfi mikið fje að brúka og komist í skuld, eins og ríkissjóðir annara landa á þessum tímum, þá sje samt engin hætta á ferðum frá þeirri hlið. En um það skal jeg ekki deila; það gagnar ekki neitt, og stór orð ein hafa ekki mikið að segja.
Hv. fyrirspyrjandi (S. St.) var að minnast á, að ferðakostnaður þingm. muni hafa orðið gífurlegur að þessu sinni. Jeg veit ekki, hvort hv. þm. blöskrar svo sjerlega mikið, þó þeir heyri nefndar 3.000 kr. í aukakostnað, af alveg ófyrirsjáanlegum ástæðum. Það atvikaðist svo, að „Sterling“ gat ekki flutt hv. þm. N.-Ísf. (S. St.), og stjórnin gat ekki sjeð það fyrir, að „Ingólfur“ mundi stranda. Björgunarskipið „Geir“ setti ekkert upp fyrir sína ferð upp í Borgarnes, til að sækja þingmenn þangað, nema bara fyrir korn, sem hann eyddi í ferðinni. Hve mikið það var veit jeg ekki. — Skal jeg svo láta máli mínu lokið.