01.06.1918
Neðri deild: 37. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í C-deild Alþingistíðinda. (2352)

5. mál, laun íslenskra embættismanna

Frsm. meiri hl. (Pjetur Ottesen):

Eins og þessu máli nú er komið, mun tilgangslítið að ræða það að nokkrum mun. Meiri hl. allsherjarnefndar hefir eindregið lagt á móti frv. og ráðið hv. deild til að fella það. í því efni þykir mjer nægja að vitna til álits meiri hl. á þgskj. 73.

Síðan mál þetta kom úr nefndinni, hefir það átt mjög örðugt uppdráttar hjer í deildinni. Það er víst búið að koma 10 sinnum á dagskrá, en aldrei þótt tiltækilegt að bera það undir atkv., og því altaf tekið út af henni. En nú hefir stjórnin komið ár sinni svo vel fyrir borð, mjer liggur við að segja með allskonar bakdyramakki, að búið er að vekja upp nefnd, er á að taka þannig vaxin mál til nánari yfirvegunar, og þangað ætlast hún svo til að þessu máli verði vísað, þrátt fyrir það, þó allsherjarnefnd hafi athugað það og kveðið upp sinn dóm yfir því. Það er vitanlegt, að einmitt þetta frv. stjórnarinnar kom hreyfingu á öll hin launamálin, og má því telja stjórnina frumkvöðul þeirra allra, og hefir stjórnin því ekki að þessu leyti kallað þingið saman ófyrirsynju.

Jeg skil ekki, að það þurfi að fara að athuga þetta mál aftur í nefnd, þar sem það hefir verið gert, en þetta er auðvitað síðasta hálmstráið, sem gripið er í, til þess að forða þessu frv. frá bana. En það er nú komið sem komið er, nefndin er skipuð, er athuga á öll þessi launamál, og líklega þýðir ekki að spyrna á móti broddunum.